Vísir - 06.09.1968, Síða 1
Horfur á að Surpríse ná-
ist út um háflæíi í dag
58. árg. - Föstudagur 6. september 1968. - 199. tbl.
Vilja mikla hækkun
Skipið fór rtær þvi út á flóÖinu i morgun
Tvær jarðýtur halda skipinu réttu i flæðar-
málinu — Veður hefur hamlað björgun
Samkomulag tókst ekkl um verð
lagsgrundvöll landbúnaðarafurða í
hinni svonefndu 6 manna nefnd, þar
sem sitja fulltrúar framleiðenda or
neytenda. Fulltrúar bænda kröfð-
ust mikillar hækkunar á verði af-
urða sinna, en neytendur vildu ekki
samþykkja neina teljandi hækkun.
Var málinu visað til yfimefndar,
sem tekúr endanlega ákvörðun. 1
yfimefndinni eiga sæti: Fyrir bænd-
ur Ingi Tryggvason, bóndi, og fyr-
ir neytendur Ámi Vilhjálmsson,
prófessor. Hæstiréttur tilnefnir.
oddamann, og hefur hann enn ekki
verið valinn.
1 6 manna nefndinni eiga sæti:
Fyrir bændur Gunnar Guðbjarts-
son, Einar Ólafsson og Vilhjálmur
Hjálmarsson. Fyrir neytendur: Sæm
undur Ólafsson, Torfi Ásgeirsson og
Ottó Schopka.
Allar horfur eru á því að togar-
inn Surprise náist út á háflæði
klukkan sex í dag, ef veður skánar
við Landeyjasand. — Skipiö fór
nær því á flot á flæðinu klukkan
sex i morgun, en þá hafði ekki ték
izt að koma taug yfir í varðskipið
sem bíöur fyrir utan, vegna veðurs
og sjógangs við sandinn.
Vísir hafði í morgun tal af ein-
um björgunarmannanna, Rúnari
Guðjónssyni, bónda að Kleif í Vest
ur-Landeyjum og sagöi hann að
skipiö virtist laust þar á sandinum
og hægðarleikur að ná þvf út um
flóð, ef veður skánaöi.
Tvær jarðýtur eru þar í flæöar-
málinu og halda þær skipinu réttu
með taugum. Rúnar sagði að á fjör
unni í nótt hefði mátt ganga þurr-
um fótum út í skipið. Virtist það
alveg óskemmt, enda hefði það
varla hreyfst á sandinum, nema
hvað því sló flöitu fyrir á flæðinu
í gærdag og situr það þannig enn
þá f flæðarmálinu.
Þarna er mjög aðdjúpt, aðeins
smásandrif undan ströndinni, sem
talið er að skipið sleppi yfir um
háflæöi.
Bændur úr Landeyjum og skip-
verjarnir fimm, sem enn þá eru
fvrir austan til þess aö fylgjast
með björguninni, hafa skipzt á um
að vakta skipið állt síðan það
strandaði f gærmorgun og var vakt
við strandstaðinn í alla nótt.
Síldin stnldrnr við
á suðurgöngunni
• Síldin virðist hafa staldrað
lítið eitt við á göngu sinni suður
á bóginn og var veiðisvæðið
sfðasta sólarhring á svipuðum
slóðum og fyrripart vikunnar,
heldur austar þó. Skipin voru að
veiða á stóru svæði norðan við
73. gráðu N br. og allt austur
á 11. gráðu A 1. — Tiu skip til-
kynntu síldarleitinni afla — sam
tals 905 lestir:
Héöinn 100 lestir, Sigurbjörg
130, Magnús Ólafsson 200, Tungu-
fell 120, Vörður 50, Harpa 60,
Fylkir 20, Gígja 35, Víkingur 100,
Þórður Jónasson með 100
Klaufaskapur og athugunarleysi
orsök símabilunarinnar
Götuleyfi liklega ekki gefið út fyrir vinnu á staðnum þar sem bilunin varð
■ Nær allur Austurbærinn varð símasambands-
laus í gærdag, þegar slitnuðu tveir þúsund-línu
strengir símans í Hverfisgötu, og stór hluti þessa
bæjarhluta kemst ekki í símasamband fyrr en ann-
að kvöld, því að fyrr verður ekki búið að gera viö
bilunina.
■ Stanzlaust hefur verið unnið að því í alla nótt
og í morgun að tengja saman þessar 2000 línur,
sem slitnuðu, en í morgun voru viðgerðarmenn bún
ir að tengja ca. 600 línur.
„Það er að minnsta kosti 15
klukkustunda verk að tengja
saman þúsund línur, miðaö við
þægilegar aðstæður“, sagði yfir-
maðilr línudeildar símans, Ólaf-
ur Þórðarson, í morgun í sam-
tali við Vísi, Ólafur kvaö þetta
vera mestu bilun, sem Landsfm-
inn hefði orðið fyrir.
Á meðan verða fyrirtæki,
stofnanir og einstaklingar að
bíða símalaus, sem leiðir af
sér alls konar tafir og erfiðleika
í viðskiptum, enda finna nú
margir áþreifanlega, hve mikil
þægindi eru að því að hafa
síma.
Klaufaskapur og athugunar-
leysi virðist vera orsök bilun-
arinnar, sem varö, þegar unnið
var að viögerð holnæsislagnar
frá húsinu nr. 12 við Hverfis-
götu (horni Ingólfsstrætis) í
gærdag. Verktakanum, sem vann
að viðgerðinni fyrir húseigand-
Ffiiitm sækja um
bæjurfógeta-
embætti
Umsóknarfrestur um bæjarfógeta-
embættið á ísafirði er nýlega runn-
inn út.
Um embættlð hafa sótt: Ásmundur
5t. Jóhannsson, bæjarfógetafulltrúi,
Akureyri, Björgvin Bjamason,
sýslumaður, Hólmavik, Bragi
Steinarsson, fulltrúi saksóknara
ríkisins, Einar G. Einarsson, bæjar-
fógetafulltrúi, ísafirði, Einar Odds-
son, sýslumaður, Vík.
Auglýst hefur verið til umsóknar
eitt embætti borgarfógeta í Reykja-
vík, en samkvæmt lögum nr. 98/
1961 er gert ráð fyrir að borgar-
fógetar skuli vera 5 til 7, en þeir
eru nú 6. Hafa verkefni borgarfó-
getaembttisins aukizt verulega
hin síðari ár, svo að um alllangt
skeiö hefur þótt þörf á fullri tölu
borgarfógeta samkvæmt ákvæðum
laganna.
Treystu þjófarnir
á símleysið?
O, hver andsk.... síminn er
ekki í lagi. Þessi setning hraut
af vörum margra Reykvíkinga í
gærdag og gerir enn. Ólag
komst á símkerfi bæjarbúa eftir
hádegið í gær og olli það mikl
um vandræðum. Kom símleysiö
misjafnlega niður á fyrirtækjum,
því að síminn fór ekki hjá öllum.
Er ekki búizt við að viðgerð
verði lokið fyrr en um helgi og
brugðum við okkur því á
nokkra staöi og könnuðum
hvernig þetta hefði komiö niður
á fyrirtækjum.
Við hittum fyrst aö máli Stef-
án Ricther, en hann vinnur við
Fasteignaþjónustuna í Austur-
stræti. Stefán sagði, að símleys
ið hefði komið mjög illa við þá
og sennilega hefðu þeir misst
sölu á nokkrum ibúðum. Annað
vandamál skapaöist einnig, það
var að menn komu þangað og
dvöldu langtímum saman, þann
ig að ekki var hægt að sinna
öllum viðskiptavinunum, sem
komu.
Hjá Flugfélagi íslands hittum
10. síöa.
Bók eftir Kiljan um
mánaðamótin
„Kristnihald undir Jökli“
nefnist ný bók eftir Halldór
Laxness, sem koma mun út
um miðjan þennan mánuð
hjá Helgafelli.
Ragnar Jónsson útgefandi
skýrði blaðinu frá því, að þetta
væri alllöng bók, á fjórða hundr-
að síður, eða um átta stunda
lestur. 1 fyrstu verður bókin gef-
in út í um 5000 eintökum, enda
er það fyrsta skáldsagan, sem
Nóbelsskáldið sendir frá sér í
næstum áratug.
Ragnar Jónsson sagði, aö aðal-
persóna bókarinnar væri prestur
undir Jökli, kallaöur Jón prím-
us. Þessi sæmdarklerkur gerir
10. stða.