Vísir - 06.09.1968, Page 3

Vísir - 06.09.1968, Page 3
V1SIR . Föstudagur 6. september 1968. 3 Skipverjarnir viö Diiinn, er nuui pa ui Keyiý \7ið vöknuðum viö vondan ~ draum, sögðu skipbrots- mennimir af Surprise, sem strandaði austur á Landeyja- sandi (Rangársandi) í gærmorg un. En fréttamaður Vísis hitti þá, þegar þeir komu, 1 bæinn um hádegisbil í gær. Fimm menn urðu eftir aust- ur á sandinum til þess að sjá til með tilraunum við að ná skipinu út, en varðskipið Ægir kom að strandstað um klukkan ellefu f morgun. Þó var ekki búizt við því að skipið næöist úr í gær vegna þess hve hvasst var viö sandana. — Viö vorum allir sofandi, nema þeir sem voru í brúnni, sagði einn skipverjanna við Vís- ismann. Togarinn fór úr höfn á laugardag og við vorum að lóna austur með landinu. Hann var hvass úti fyrir en skárri upp við landiö. — Við hrukkum upp þegar skipið tók niðri og vissum ekki hvaðan á okkur stóð veðrið. — Hann mun hafa tekið þama niðri á sandrifi fyrst, sagði annar skipverjanna, og farið yfir það. —Og björgunin gekk greið- lega? — Við vorum búnir að taka til gúmbátana, áður en björgunar- mennirnir komu á staðinn, en það hefði verið ólíkt ónotalegra að fara í land f þeim. — Við skutum línu í land til þeirra og síðan drógu þeir nælontaug frá skipinu. Annars kváðust þeir félagar vera orðnir þreyttir á frétta- mönnum. Fréttaritarar blaðanna tóku á móti þeim strax austur á sándinum. — „Það er búið að mynda okkur í bak og fyrir, sögðu þeir. Nú viljum við fara ■aö komast heim. Þeir vom þó léttir i lund, þrátt fyrir volkiö og létu brand ara óspart fjúka. — En þeir vildu gjarna komast heim til^ þess að raka sig og h'éilsa upp á ættingjana, sem auðvitað hafa oröið óttaslegnir þegar þeir fréttu um strandið. — Hvort þeir teldu aö tækist að bjarga skipinu? — Ja, við von um það að minnsta kosti, sögðu þeir. Eniþað er af björgun þeirra að segja, að hún gekk með eins- dæmum greiðlega og var mönn unum tuttugu og átta að tölu öllum bjargað f land á tuttugu mínútum eða svo. — Og fara ekki sögur af greiðari ferðum björgunarstóls milli strandaðs skips og lands. Við kvöddum þá á Snorra- brautinni, þar fengu sumir sér leigubíl, aðrir lölluðu meö búss- umar undir hendinni áleiðis heim. Surprise á strandstað við Sigluvík á Landeyjasandi. Myndina tók B.G. ör lofti í gærmorgun. Við viljum gjarnan fara að komast heim, sögðu þessir skeggj uðu sjóarar, þreyttir eftir viðburðaríkan morgun. Við vökn- uðum við vondan draum f

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.