Vísir - 06.09.1968, Blaðsíða 4
, •> mr i
„Teikning, sem á að sýna
Furðufugl
vill veröa
forseti
Pat Paulseen er grínisti eða
gamansamur ef einhver vill hafa
það þannig. Hann vill verða
nærsti forseti Bandaríkjanna,- en
hann hefur ekki enn fengið nógu
marga fjársterka menn með sér
til þess að komast eitthvað áleið-
is.
Pat Paulseen er á móti öllu.
Þar af leiðandi er hann einnig á
móti öllum hinum kandidötunum
Nýlega sagði hann við blaðamann
í Bandaríkjunum, að Hubert
Humphrey, Richard Nixon og
George Wallace væru allir í fram
boði og hvað myndi það skaða
þótt hann bættist á listann? Grín-
isti yrði ábyggilega bezti forseti
Bandaríkjanna! Hann hélt áfram:
Allir hinir frambjóðendumir eru
mjög góðir menn, en ég myndi
halda systur minni frá þeim, ef
þeir vildu giftast henni.
Kjörorð hans í baráttunni eru
að hann vill senda alla svertingja
í Bandarikjunum heim til Afríku
og alla hvlta menn heim til
Evrópu. Þá yrði ekkert vanda-
mál, ef það yrði gert, sagði Paul
seen.
Skjótið fyrst,
spyrjið síðan!
Vandamálin eru mörg og flók-
in í svertingjahverfinu Harlem íi
New York. Það eru ekki einungis'
svertingjamir sem skapa þau,
heldur einnig lögreglan! Algengt
hefur verið að lögreglumenn hafa
fyrst skotið menn til dauða og
síðan ætlað að yfirheyra þá. Hef-
ur þannig margur saklaus maður-
inn týnt lífinu í þessu spillta
hverfi.
Fyrir skömmu sannaðist þessi
regla lögreglunnar, þegar ungur
lögreglumaður sem ekki var i
starfi kom að bifreið sinni, en
um leið og hann fór inn í bifreið
ina var hann skotinn til bana. Þeir
sem skutu hann voru lögreglu
menn, sem einhverra hluta vegna
álitu að hann væri að stela biln-
um.
að Klavs Bang segir satt
Punktalina á Ijósmynd á að af-
sanna röksemdir lögreglunnar í
Kaupmannahöfn þess efnis að það
var ekki af gáleysi, að hin 25 ára
gamla Jette Bang lét lífið. Lögregl
an ákærir mann hennar Klavs
Bang um að hafa myrt konu sina
með byssuskoti.
Lögreglan leggur mikla áherzlu
á, að Klavs Bang hafi ekki getað
setið á stólnum, eins og hann seg
ir sjálfur er skotið reið af.
Skotstefnan er sú að áliti lög-
reglunnar að útilokað hafi verið
annað fyrir Kiavs en að standa
upp. Kúlan hefur farið inn við
efsta rifbein hægra megin og út
rétt fyrir ofan vinstri mjöðm.
Þess vegna hlýtur Klavs Bang að
ljúga — að áliti lögréglunnar —
þegar hann segir, að hann hafi
setið á sessu ajndspænis konu
sinni, sem sat í sófanum.
TVÖ GLÖS AF VlNI.
Þegar reynt var að setja glæp-
inn aftur á svið 1 bækistöðvum
lögreglunnar og notuð voru hús-
gögn af heimili hjónanna voru
teknar ljósmyndir af því hvern-
ig atburðurinn gerðist. Það kem-
ur í ljós, þegar skotstefnan er
teiknuð á ljósmyndirnar, að út-
skýring unga mannsins getur vel
verið sönn, að því er verjendur
Klavs Bang halda fram.
Það voru tvö glös af vini á sófa
borðinu milli ungu hjónanna er
skotið reið af. Klavs Bang heldur
w fram, að hann hafi ekki haft
hugmynd um að byssan hafi ver-
ið hlaðin. Þegar gikkurinn var
dreginn upp hleypti hann af án
þess að líta beint yfir til konu
sinnar eða miðað þangað. Það var
hending ein sem réði þvi að hlaup
ið beindist að henni.
HALLAÐI SÉR FRAM?
Verjandinn Jörgen Holm, stað-
hæfir, að Jette Bang hafi aðeins
þurft að haila sér áfram í sófan-
um til þess að taka vínglas upp
af borðinu til þess að skotstefn-
an komi heim. Annars gæti hún
Iíka hafa verið að standa upp
og í þeirri stellingu, sem
maður er venjulega í þegar stað
ið er upp úr djúpum stól með
þvi að teygja handleggina fram
og halla sér í sömu átt. Á þenn-
an hátt getur verið að skotið
hafi lent við efsta rifbein hægra
megin og farið út fyrir ofan
vinstri mjöðm.
H&6Z4 Afc&’/rJ —
wr
OPHK/
N\To* M
En hvers vegna hleypti Klavs
Bang af öðru skoti, sem fundizt
hefur i gólfinu. Klavs Bang héfur
einnig skýringu á reiðum hönd-
um á því, og verjandi hans telur
að sú akýring sé ve! skiljanleg
Hinn 26 ára gamli sálfræðinemi,
- Vx ** » Ml m 𣠫
Klavs Bang, hleypti af skoti sem
lenti I gólfinu, vegna þéss að
hann — eftir að hafa skötið konu
sína — f uppnámi sinu gat ekki
skilið að byssan hefði verið i
rauninni hlaðin og hættuleg.
Ljósmyndimar sem voru tekn-
ar þegar atburðurinn var settur
á svið munu verða lagðar fram,
ef ríkissaksóknarinn ákveður að
ákæra Klavs Bang fyrir morð —
sem hann neitar að vera sekur
um — og ekki fyrir manndráp af
gáleysi sem hann játar á sig.
Hjálpið, finnið mig?
þrír eru þegar dauðir
— sagði morðinginn i simann
— Ég hef drepið þrjá. Takið
mig áður en ég drep fleiri, sagði
grátandi maður í simann, er hann
hafði hringt til lögreglunnar f
Fort Lauderdale í Florida fyrir
skömmu. Maðurinn hringdi tvisv
ar, þó án þess að segja hver hann
væri.
Með þessar upplýsingar hófst
mikil leit lögreglumanna um borg
ina og innan tíðar fannst fyrsta
likið, en það var á fáfarinni götu,
það var lik ellefu ára gamallar
stúlku, Marilyn Clark, og hafði
hún verið skotin I gegnum höfuð-
ið. Skömmu síðar tilkynni lög-
reglumaður, að hann hefði fundið
móður stúlkunnar við flugvöllinn
í útjaðri borgarinnar, en hún
fannst sex kílómetra frá liki dótt
ur sinnar.
Móðirin hafði einnig verið skot
in í höfuðið og líðan hennar var
mjög tvísýn þegar síðast fréttist.
Þriðja fórnarlambið hefur lögrégl
an ekki fundið ennþá. Maðurinn
sagðist hafa kastað þvi I sjóinn.
Allir íbúar borgarinnar eru nú
varaðir við að hýsa ókunn-
uga og bifreiðastjórar að taka
upp nokkra fraþega á þjóðvég-
unum. Morðinginn er ófundinn.
Hent á lofti.
Það fer ekkl á mllli mála,
hvað hæst ber þessa dagana
manna í millum. Hvar sem mað
ur kemur, er rætt um nýja inn-
flutningsgjaldið og viðræður
stjórnmálaflokkanna. Nú vantar
ekki áhugann á stjórnmálunum.
Nokkuð ræða menn líka um
hamstrið, sem allir vlrðast vera
steinhissa á, Ifka þeir sem nældu
sér í Isskáp á síðustu stundu.
Áhugasamur kunningi minn
um stjórnmál, var að fara i við
skiptaerinúum til útlanda. Hann
ræddi ástandið þegar ég hitti
hann á dögunum. Hann sagði að
það væri undarlegt, að það
skyldi enginn virðast vita, hvað
þarf að gera, og þó höfum við
F.fnahagsstofnun, Hagstofu og
svo höfum við hagfræðideildir
bankanna. Og svo þarf margar
vikur til að sjá, hvað þarf að
gera. Viðræðurnar geta ekki
förnu hafa getað sagt að sjúkl-
ingurlnn væri með hressasta
móti, en nú yrði hann þvi mið
gerðin yrði, þá heppnaðist hún
svo vel, að hægt yrði að henda
hækjunum að fullu og öllu.
Ijðfí/h&iGötK
staðið eingöngu til að flnna,
hvað á að gera, heldur hvað á
að þora að ganga iangt i að-
gerðum.
Þessi áhugasami kunningi
minn sagðist oft vera spurður
af kunnugum1 aðila úti, hvernig
sjúklingurinn hefði það, en þá
væri átt við fjármáiaiífið á ís-
Iandi. Hann sagðist að undan-
ur að segja að sjúklingurinn
iægi á skurðborðinu, og lækn-
arnir stæðu allt i kring með
hnífana á iofti, en þeir vissu
bara ekki hvar skera ætti, þvi
þeir væru ekki sammála um
hvar meinið Iægi.
Svo glotti hann kunningi
minn yfir samlíkingunni, og
sagðist vona, að hver sem að-
Ennfremur sagði hann rétti-
lega, að allar slíkar fjármála-
aðgerðir væru miklö undir fólk-
inu sjálfu komnar, hvemig þær
heppnuðust, svo að mikið væri
undir því komið, að allir sýndu
bjóðhollustu og þegnskap, — og
tækju inn meðulín og færu eft-
ir ráðleggingu læknanna, sem
hefðu lækninguna með hönd-
um.
Einnig furðaöi kunningi minn
sig á þvi, að ekki skyldi vera
meira um hagræðingu og spam-
að rætt, og þyrftu ýmsir aðilar
að leggja áherzlu á þá þætti
með þvi að ganga á undan í þvi
efni. Það má gera hagræðingu
og breyta um tii batnaöar á svo
mörgum sviðum.
Þannig ræddi hann kunningi
minn málin. eins og svo margir
aðrir, sem velta fyrir sér lands
ins gagni og nauðsynjum. Um
leið og ég óskaði honum góðrar
ferðar, sagðist hann vona, að
sjúklingurinn yrði þegar farinn
að rísa upp við dogg, þegar
hann kæmi til baka.
Þrándur í Götu.
I