Vísir - 06.09.1968, Page 6
6
Smáauglýsingar
þurfa að berast auglýsingadeild blaösins
eigi síðar en kl. 6 daginn fyrir birtingardag,
AUGLÝSINGADEILD VÍSIS er í
AÐALSTRÆTI 8
Símar; 15610 • 15099
V1SIR . Föstudagur 6. september 1968.
TONABIO
(„Boy, Did I get a wrong
Number")
tslenzkur texti,
Víðfræg og framúrskarandi vel
gerð, ny, amerísk gamanmynd
í algerum sérflokki enda hefur
Bob Hope sjaldan verið betri.
Myndin -r i litum.
Bob Hope v
Elke Sommer
Phillis Diller
Sýnd kl. 5 og 9.
mmm
SKALTU
NÁUNGANN
(Elsk din næste)
Mjög vel gerð, n-"' dönsk gam-
anmynd 1 Iitum. Myndin er
gerð eftir sögu Willy Brein-
holts, 1 myndinni leika flestir
snjöllustu leíkarar Dana.
Dirch Passer
Christina Chollin
Walter Giller
Sýnd kl. 5.15 og 9.
HÁSKÓLABÍÓ
Hetjurnar sjö
(Gladiators 7)
Geysispennandi amerísk mynd
tekin á Spáni f Eastman-litum
og Techniscope.
Sichard Harrison
Loredana Nusciak
íslenzkur texti.
Bönnuð bömum innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Síðasta sinn.
STJORNU BIO
Ræningjarnir i Arizona
Ný amerísk kvikm'”- '
Audie Murphy C
Sýnd k"l. 5, 7 og 9.
Bönnuð bömum innan 14 ára.
AUSTURBÆIARBÍÓ
Puher sjóliðstoringi
Bráðskemmtileg amerlsk gam-
anmynd i litum og Cinema
scope Islenzkur texti.
Robert Walker
Buri Ives
Sýnd kl. 5 og 9.
Listir -Bækur -Menningarmái
Merkar bækur frá Helgafelli og j
Menningar s j óði
— rætt við Ragnar Jónsson og Gils Guðmundsson
TVTú er sumri tekið að halla, og
bókaútgefendur famir að
skipuleggja bókaútgáfu komandi
vetrar. Eins og undanfarin ár
mun kenna f>ar margra grasa.
Tveir forleggjarar, þeir Ragnar
Jónsson, eigandi Helgafells og
Gils Guðmundsson, hjá Bókaút-
gáfu Menningarsjóðs, urðu við
þeirri beiðni að skýra nokkuð
frá því, hverjar bækur þeir
hefðu í huga að gefa út.
Ragnar Jónsson sagði: „Ný
skáldsaga eftir Halldór Laxness
verður að sjálfsögðu metsölu-
bók okkar. Ný skáldsaga eftir
Nóbelsskáldið, hin fyrst i nær
áratug, er vitanlega viðburður
ársins í bókmenntaheiminum.
Til að byrja með prentum við
5000 eintök af þessari bók, sem
nefnist „Kristnihald undir
Jökli.“ Það upplag endist vart
til jóla, en núna verðum við
líka að sýna varkámi i fjárfest
ingum eins og aðrir, þegar að
kreppir, og bankamir eru ekki
allt of hrifnir af þvi að Iána pen-
ingana sina út á menninguna."
„Viljið þér segja eitthvað frá
efni bókarinnar?“
„Já. Aðalpersóna sögunnar er
prestur undir JÖkli, Jón að nafrii
og kallaður Jón primus. Hann
er göfugmenni, djúpvitur og
mannlegur og gerir við primusa
fyrir fátækt fólk í sókninni og
aðstoðar bændur við að jáma
baldna fola.
Biskupi þykir samt kristni-
haldið ekki í sem beztu lagi og
sendir fulltrúa sinn vestur. Fyr
ir þetta verk er ekki til neinn
sérstakur staður i bókmennta-
sögunni. Þetta er nýtt verk, nýr
still, ný stórfengleg mynd af
íslandi. Þetta er löng saga — á
fjórða hundrað siður, átta
stunda kapplestur. Hún kemur
út um miðjan september."
„Og hvað er fleira af stórtíð-
indum?"
„Þórbergur og Einar ríki.
Nafnið er ekki fullsmíðaö enn.
Sjálfur kalla ég hana „Einar
græðir.“ Bókin segir frá þeim
árum Einars, þegar allt var í
uppgangi hiá honum, ný verzl-
un á hverri viku, ný atvinnu-
tæki. Saga Einars ríka verður
ein fullkomnasta atvinnusaga
þjóðarinnar. Stílistinn Þórberg-
ur svífur hér yfir vötnunum.
Hann sér um snilldina.
Einnig kemur út ný ljóöabók
eftir eitt helzta ljóðskáld yngri
kynslóðarinnar, Hannes Péturs-
son. Það er fjórða bók Hannes-
ar, þótt hann sé aðeins þrítugur.
f bókinni, sem höfundur kallar
„Innlönd" eru fimmtíu kvæði.
Aðaljólabók ársins eru verk
Hannesar Hafstein í útgáfu Tóm
asar, sem skrifar ritgerð um
skáldið og brautrvðjandann.
Bókin kemur út fyrsta desember
í tilefni fullveldisins.
Við Halldór Laxness stóðum
í dálitlu stímabraki viö yfirvöld
in á sinum tíma út af fornritaút-
gáfum okkar. Nú hefur Laxness
gjörsigrað f því máli, þvi að
yngri fomritafræðingar keppast
við að feta f -fótspor -hans með
því aö gefa' út forhrit með nú-
tímastafsetningu. Grettissaga
kemur út í annarri útgáfu á full
veldisdeginum með myndum
þeirra Þorvalds og Schevings.
Sama dag koma út öll verk Jón
asar Hallgrímssonar með nýjum
teikningum eftir Jón Engilberts.
Fjórða bókin, sem kemur út
þann dag er Niálssaga í
enskri þýðingu Magnúsar Magn-
ússonar og Hermanns Pálssonar,
myndskreytt af Þorvaldi Skúla-
syni, Gunnlaugi Scheving og
Snorra Arinbjarnar. Þetta er
hrein lúxusútgáfa f stóru broti
og bundin í nautsskinn einung-
is. Bókin er gerð aðeins f fimm
hundruð eintökum og kostar
3100 kr. auk söluskatts.
LAUGARASBIO
Járntjaldið rofið
(slenzkur textl.
Julie 4narews
Paul Newman.
Endursýnd fcl. 9.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Sautján
Húi umtalaða 'ianska litkvik-
mynd. — Sýnd kl. 5 og 7. —
Bönnuð bömum.
HAFNARBIO
GAMLA BÍÓ
ROBIN KRÚSÓ
liðstoringi
Bráöskemmtileg ný Walt Disn-
ey kvikm. ' f litum með:
Dick Van Dyke
Nancy Kwan
tslenzkur texti.
Sýnd kl. 5 og 9.
Sumuru
Spennandi ný ensk-þýzk Cin-
emascope-litmynd með
George Nader
Frankie 4valon
ShJ -ley Eaton
tslenzkur texti
Bönnuð ínnar 16 ára.
Sýnd kl 5. 7 og 9.
NYJA BÍÓ
Barnfóstran
(The Nanny)
fslenzkur texti.
Stórfengleg, spennandi og af-
burðavel leikin mynd með:
Bette Davis
sem lél l Þei. þei kær? Kar-
totta
Bönnuð bömum yngri en 14
ára.. — Sýnd kl. 5. 7 og 9.
Næstu daga koma út bækur
Jóns Thoroddsens, Maður og
kona og Piltur og stúlka, mynd-
skreyttar og einkum ætlaðar
unglingum. Ný smásagnasöfn
koma út eftir Kristmann og Jón
frá Pálmholti. Ný skáldsaga, hin
fyrsta eftir ljóðskáldið Jón Ósk-
ar. Ný Ijóðabók eftir Vilborgu
Dagbjartsdóttur. Ot eru komnar
nú þegar, Ijóö eftir HalTdóru B.
Björnsdóttur, og heildarútgáfa
ljóða og teikninga eftir Jónas
Svavár. — Annars er ekki full-
ráðið um útgáfuna i ár. Eitt-
hvað bætist enn við.
/■'’ ils Guðmundsson sagði, aö
'Jr stærsta útgáfuverk Menn-
ingarsjóðs f ár yrði tveggja
binda rit eftir Vilmund Jónsson,
fyrrverandi landlækni. „Það heit
ir „Lækningar og saga“ og skipt
ist niður i sjálfstæðar ritgerðir
mislangar um sögu felenzkra
lækninga og sjúkrahúsmála."
Ekki getur orðið af þvf f ár,
að Menningarsjóður gefi út
verk, sem beðið hefur verið eft-
ir, en baö er Alfræðibókin, sem
gefin verður út á næsta ári f
tveimur bindum.
„Þá er að nefna bókina „Tólf
kviður úr Divina Comedia" eftir
Dante, en þær eru þýddar af
Guðmundi Böðvarssyni. Þeim
fylgir einnig ýtarleg ritgerð um
verkið eftir þýðandann.
Þá má nefna litla bók, „Bréf
frá Jóhanni Sigurjónssyni,
skáldi." Þessi bréf eru til bróð-
ur Jóhanns, sem bjó á Laxa-
mýri.
I bókaflokknum „Lönd og
lýðir“ kemur núna út bók um
Færeyjar.
í þessum bókaflokki eru nú
þegar komnar út um 16 bækur,
svo að farið er að sfga á seinni
hlutann. Þessi bók um Færeyj-
ar hefur Gils Guðmundsson
samið.
Að lokum sagði Gils Guð-
mundsson, aö á döfinni væri að
gefa út bók um skáldskap síð-
ustu ára, en hún mun þó varla
koma á þessu ári. Bökaútgáfa
Menningarsjóðs fyrir þessi ára
niót hefur ekki verið endanlega
skipulögð, og Gils sagði, að
ekki væri óliklegt að ein eða
tvær bækur kæmu f viðbót við
þær, sem þegar hafa verið tald-
ar, en ekki vildi hann láta neitt
nánar uppi um það.
Auk bókaútgáfunnar eru nú
að koma út hjá Menningarsjóði
jarðfræði- og gróðurkort af ís-
landi, sem hljóta að teljast til
nýjunga.
Gils Guðmundsson kvaðst
vera vongóður um, að ekki yrði
samdráttur f bókasölu, þrátt fyr
ir að aðstæður til útgáfu væru
erfiðari en oft áður, vegna hækk
aðs verðlags á efni til bókagerð-
ar.