Vísir - 06.09.1968, Qupperneq 7
VtSIR . Föstudagur 6. september 1968.
7
morgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlönd
I
ÍL
andsfundur stjórnarflokks Rhodesíu
ræðir uppkast að nýrri stjórnarskrá
Stefnt er að aðskilnaðarfyrírkomulagi að
suður-afriskri fyrirmynd
Salisbury, Rhodesíu: Landsfund-1 ef til vill örlagaríkasti — og munu
ur Rhodesíu þjóöarsamfylkingarinn deilur veröa harðari en nokkurn
arinnar, stjórnarflokksins, h'ófst í tíma frá því lýst var yfir sjáifstæði
gær, og kann að verða einn sögu- Rhodesíu fyrir brátt þremur árum,
legasti landsfundur í sögu þess og I en deilurnar eru milli Ians Smiths
forsætisráöherra og þeirra, sem
honum fylgja, og hægri armsins,
sem telur Ian Smith ekki vera
nógu skeleggan gagnvart Bretum
og aö yfirráð hvítra manna séu ekki
nægilega tryggð í stjórnarskrár-
uppkasti því, sem rætt veröur á
flokksþinginu.
í uppkastinu er aöskilnaðar- eöa
Tító endurtekur
Tékkóslóva kíu
Tító forseti Júgóslavíu endurtók
í gær kröfu um, að hernámslið
Varsjárbandalagsins yrði flutt burt
frá Tékkóslóvakíu.
Hann fullyrti, að Tékkar og Slóv-
akar heföu getað leyst öll sín vanda
mál sjálfir án íhlutunar, ef þeim
hefði ekki veriö meinaö það.
Tító forseti sagöi þetta í ræðu
sem hann flutti til heiðurs Vokt-
ar Ould Daddah, forseta Mauritaniu
sem er í heimsókn í Júgóslavíu.
Tító forseti sagði aö afstaða Júgó
slavíu til Tékkóslóvakíu, grundvall
aöist á virðingu fyrir sjálfsákvörö
Pravda sakað um
svívirðilegan áburð
ötanríkisráðuneyti Banda-
rikjanna sakar blaðið
Pravda í Moskvu um sví-
virðilegan áburð, er það
segi vestrænu bandalags-
ríkin hafa áformað nokkru
fyrir hernámið að ná yfirT
ráðum í Tékkóslóvakíu, og
hefðu vestur-þýzkir liðs-
foringjar farið dulbúnir
sem ferðamenn til Tékkó-
slóvakíu slíku áformi til
undirbúnings.
Isvestija blað sovétstjórnarinnar
segir sovézkan hermann hafa verið
skotin til bana í Tékkóslóvakíu, en
annan hafa særzt er skotið var á þá.
Árásarmaðurinn komst undan að
sögn blaðsins. Sendiráð Tékkó-
slóvakíu í Sviss tilkynnti í gær. að
Hajek utanríkisráðherra hefði á-
kveðið að hverfa heim til Prag
bráðlega.
Framtíð hans sem ráöherra er
sögð mjög óviss, þar sem hann hefir
sætt harðri gagnrýni Sovétríkjanna
síðan er hann flutti ræðu sína í
Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna á
dögunum.
Tilkynnt er í Moskvu að frestaö
hafi verið för kórs úr Rauða hern-
um til Japans, en ríkisstjórnin taldi
óheppilegt að ferðin væri farin nú
vegna áhrifa hernámsins f Tékkó-
slóvakíu. Slíkri söngför til Bret-
lands var einnig frestað nýlega
af sömu ástæðum.
unarrétti allra þjóöa, sjálfstæði
þeirra og frelsi.
Með þetta aö bakhjarli heföi ver
ið unnt að sætta sig við Bratislava
samkomulagiö, er viðurkenndi rétt
landanna til þess að veija leiðir til
sósíalismans og staðfest samstarf
milli þeirra á jafnræðisgrundvelli
— og með tilliti til þess „getum viö
ekki fallizt á ríkjandi ástand í
Tékkóslóvakíu".
Hann endurtók, að þjóðir Tékkó
slóvakíu og löglega kjörnir full-
trúar þeirra, ættu að fá að leysa
vandamálin, og bæri að veita þeim
allan stuðning til þess.
„apartheid“ grundvallaratriöið staö
fest, sem framtíðarfyrirmynd að
þróuninni í landinu á sviði félags-
og stjórnmála.
Þeir sem gerst fylgjast með mál-
ur, eru ekki þeirrar skoðunnar, aö
andspyrnan frá hægri arminum
leiði til falls Smiths og stjórnar
hans, en hún getur valdið klofningi
í flokknum og veikt stööu Smiths
sem hins óumdeilanlega leiðtoga
landsins.
Lítill vafi er, aö stjórnarskrár-
frumvarpið verður samþykkt á
landsfundinum. Gert er ráö fyrir
fimm ára hægfara þróunarskeiöi án
verulegra breytinga á ríkjandi fyrir
komulagi á kjöri fulltrúa til aö
fara með mál landsmanna, áður en
stofnað veröur til héraðs- og kyn-
þáttalöggjafar sem verður grund-
völlur þjóðþings, þar sem hörunds
dökkir menn raunverulega munu
vart eignast fulltrúa, vegna erfið
leika á aö uppfylla þau efnahags-
skilyrði sem sett veröa, en þó eiga
j hörundsdökkir jafnvel á næstu
fimm árum ekki að vera fulltrúa-
lausir á þingi. Framtíðarfyrirkomu
lagið verður nánast eftir suöur-af-
rískri fyrirmynd.
Verkalýðsl)ingið brezka
mótfallið kaupgjaldsstefnu
stjórnarinnar
Felldi að styðja lagasetningu hennar með
7 millj. atkvæða mun
Brezka verkalýðsþingið sam-
þykkti í gær með yfir 7 milljón
atkvæða meirihluta tillögu þess efn
is, að það væri mótfallið Iagasetn-
ingu um eftirlit stjórnarinnar með
kaupgjaldi og verðlagi og stefna
sambandsstjórnarinnar í þessu máli
var samþykkt með aðeins 34.000
atkvæða mun, en greidd var 8y2
milljón atkvæða.
Frank Coussens formaöur stærsta
verkalýössambands landsins var að
alflutningsmaður fyrri tillögunnar.
Hann kvað verkalýösfélögin eiga
• Clifford Clark landvarnaráð-
herra sagði í gær, aö eftir það sem
gerzt hefði í Tékkóslóvakíu væri
hann mótfallinn allri fækkun í her-
afla Bandaríkjanna í Evrópu. Hann
kvað kostnað leiða af aö hafa veru-
legan herafla í Evrópu, en það væri
örlítið brot af því, sem Bandaríkin
yrðu að fórna í mannslífum, ef til
heimsstyrjaldar kæmi. eða Banda-
ríkin yrðu „einangruð í fjandsam-
legum heimi“.
• Jiri Hajek utanríkisráöherra
Tékkóslóvakíu er enn í Sviss og
mun fara til Prag aö lokinni dvöl-
þar. Hann mun hafa rætt við sendi-
nefnd Tékkóslóvakíu á ráðstefnu
landanna, sem ekki ráða yfir kjarn-
orkuvopnum.
að hafa óskoraðan rétt til samninga
um kaupgjald.
Barbara Castle ráöherra, sem fer
| með þessi mál kvað lögin um eftir-
| lit meö kaupgjaldi og verölagi hafa
| veriö sett af brýnni nauösyn vegna
; efnahags landsins og engin breyting
yrði á afstöðu stjórnarinnar vegna 1
samþykktarinnar. |
Búizt var við hörðum deilum um
þessi mál á flokksþingi Verkalýðs-
flokksins, en fram eru komnar um
80 tillögur varðandi þessi mál og j
flestar fjandsamlegar ríkisstjórn- j
Johnsopi á fundi í
gær með ráð-
herrum sínum
Fjórir mánuðir eftir af
forsetatið hans
Johnson forseti hélt fund i gær
meö ráðherrum sínum og leiötogum
Demókrataflokksins. Mun hann
hafa rætt viö þá hlutverk sitt og
afstööu þá fjóra mánuði, sem eftir
eru af forsetatímabili hans.
Forsetinn er enn sagöur vona að
hann geti rætt við Kosygin for-
sætisráðherra Sovétríkjanna, en
það er viöurkennt af opinberri hálfu
að innrásin í Tékkóslóvakíu sé til
hindrunar áformum í þessum efn-
um.
Á fundi í Blaðamannafélagi
Bandaríkjanna ræddi Clifford land-
varnaráðherra nauðsyn þess, aö
Bandaríkin væru hernaðarlega öfl-
ug til þess að hafa sterka samnings-
aðstöðu gagnvart Sovétríkjunum og
kvað hann það, sem gerzt hefur í
Tékkóslóvakíu hafa leitt þetta
greinilega í ljós.
Þegar Dubcek fagnaði Tító forseta við
komuna til Prag nokkru fyrir hernámið
Kenneth Kaunda
Rhodesía og S.Þ.
Fáir senda skýrslur um þáttfóku i refsiaðgerðum
U Thant framkvæmdastj. Sam-
einuðu þjóöanna hefir gert grein fyr
ir svörum, sem borizt hafa frá ríkj-
um í samtökunum við fyrirspurn
um refsiaðgerðir af þeirra hálfu
gagnvart Rhodesíu (samkvæmt fyr-
irmælum Sameinuðu þjóðanna).
Svör bárust frá miklu færri
en búizt var við, m. a. frá aöeins
15 af 28 sem hafa krafi?t þess,
_að Bretar. hreki Rhodesíustjórn frá
með'valdi. Sumir telja sér nauðsyn i
að halda áfram viðskiptum viö
Rhodesíu — og þeirra meðal
Zambia, enda á hún mikið undir
að samgönguf og viöskipti haldist,
en enginn notar stærri orð um
Rhodesíu en Kenneth Kaunda for-
seti Zambíu, og þar eru þjálfaðir
flugumenn, sem fara til hermdar-
verka inn í Rhodesíu.