Vísir - 06.09.1968, Side 12

Vísir - 06.09.1968, Side 12
V í SIR Föstudagur 6. september ld68. |——BW—w—>—■ 1 — Með 8RAUKMANN hltastilli ó hverjum ofni getið þér sjólf ókveð- ið hitastig hvers herbergis — 6RAUKMANN sjólfvirkan hitastilli ðr hœgt að setja beint á ofninn eða hvar sem er á vegg í 2ja m. fjarlœgð irá ofni Sparið hitakostnað og aukið vel* líðan yðar BRAUKMANN er sérstaklega hent- ugur á hitaveitusvœði SIGHVATUR EINARSSON&CO SÍMI 24133 SKIPHOLT 15 f týnda landinu Pal-UI-Don leitar Es- Rat höfðingi ásamt hermönnum sínum að strokufanga þeirra, Tarzan. Lokið öllum útgönguleiðum úr gilinu. Leitið í hverjum runna. Bíddu pabbi, ég veit hvar hala- lausi maðurinn er. Það var ekki það, hugsaöi hún, það var bara svo fjölmarga hans iíka aö muna. „Vitanlega man ég eftir yöur“, svaraði hún. Hann var einhvers konar aðstoöarmaður ein-1 hvers, einn af hinum mörgu ungu : mönnum er unnu í kvikmyndaveri Firmins, ný kynslóð og ekki sér- lega athyglisverð. „En þeir kunna mjög vel með öll tæki að fara“, sagöi Firmin. ,'Og þeir gæta þess vel að ekkert fari í súginn ...“ „Ég var sendur hingað með töskur hr. Firmins" sagði ungi maðurinn Hún kinkaði kolli. „Hann er • þarna“, sagöi hún. , . Firmin kom stikandi út um bak- dyrnar í fylgd meö Trölla. Maö- \ ‘ urinn f loöfrakkanum hafði tekið til við að hringja bjöllunni á af- greiðsluborðinu í gríð og erg. „Ekki er þetta nein ferðataska!“ hrópaði hann. „Hvar eru fötin mín .. .náttfötin og allt þaö?“ „í þessum töskum þarna“, svar- aöi ungi maðurinn og benti á stóru töskurnar sem bílstjórinn hafði bor- ið inn. Svo benti hann á handtösk- una, sem hann hélt á sjálfur. „Ég vona að þér misvirðiö ekki við mig, þótt ég hafi gripið tækifærið Dg komið með nokkur skjöl, sem þér gleymduð að undirrita í gær.“ Þegar Firmin bauð unga mann- inum að fá sér í glas, afþakkaði hann það hæversklega kvaðst verða að halda um hæl meö bílnum til Skeljavíkur og taka flugvél til BÍLAKAUP - BÍLASKIPTI Shoðið bílona, gerið góð kaup ^ Óveniu glæsilegt úrval Vel með farnir bílar í rúmgóðum sýningarsal. Umboð'ssala ViS tökum velútlífandi Höfum bílana iryggSa bila í umboSssölu. gegn þjófnaði og bruna. SYHINGARSALURINN SVEINN EGILSSON H.E LAUGAVEG 105 SÍMI 22466 I baka suður á bóginn. Síðan opnaöi I hann handtösku sína, dró upp úr | henni skjöl og lagði á boröið. Þau Christian og Laura héldu inn á : barinn. Hún settist aftur við borðið, þar sem glasið hennar stóð. Þegar , Christian gekk yfir að barborðinu j að sækja sér að drekka, tók hún eftir því, að maðurinn, sem hún j hafði séð frammi á ganginum, leit til hans eins og hann þekkti hann og virðist ætla að yrða eitthvað á i hann. En þá varð manninum litið til hennar og sagði eitthvað við konu sína, eða Laura gerði að minnsta kosti ráð fyrir aö hin skap- , tryllta, rauðklædda kona, sem sat hjá honum við borðið væri eigin- kona hans. j Stormsveipirnir buldu á barká- 1 etunni og hvinu við kýraugun, og Lauru fannst sem hún heyrði skark alann í lyftunni í fjarska, og þaö var eins og hún heyrði hrjúfa og hvísllága rödd Gail Kerr í eyrum sér: Það gerast hérna hlutir, sem þér fáið ekki skilið, blandið yður ekki í það ... Hafði Gail Kerr einungis‘;átt; þar viö Christian sjálfan, eitthvað það, sem væri að gerast hið innra með honum, einhver harmræn átök, eöa hafði þessi viðvörun hennar víðtæk ari merkingu? Laura minntist enn orðanna, sem hún hafði heyrt sögð inni í bókasafnsherberginu: „Chris ... ég á við það, að þeir kynnu að myrða þig ...“ Christian kom nú að borðinu með glas sitt og tók sér sæti. „Skál, fangi.. . skál”. Hann lyfti glasinu. Þau drukku, augu þeirra mætt- ust. „Eruð þér líka fangi?" spurði hún. „Erum viö það ekki öll?“ Hann byosti. Hliðardyr barkáetunnar opnuð- ust. Parker kom inn úr borðsalnum og hringdi bjöllunni til merkis um að kvöldveröur væri til reiöu. — Hjónin sem Laura hafði séð uppi , á ganginum stóðu á fætur. Christi- an varð litið til þeirra, og um leið brá fyrir sama svip á andliti hans og kvöldið áður. þegar pósturinn afhenti honum bréfið. Hún þóttist geta lesið kvíða og ótta úr augna- tilliti hans. Og þegar hann stóð á fætur, varö hún gripin hugboði um aö eitthvað óþægilegt vofði yfir, og það styrkti hugboö hennar, er hún sá hr. Bean koma fram fyrir bar- boröiö, tók eftir áhyggjusvipnum á andliti hans og að hann virtist ætla að koma í veg fyrir að þau, hjónin næðu tali af Christian. Þá skall stormsveipur á káetunni svo brakaði og brast í viðum og um leið og honum slotaði, gall við rödd konunnar á rauða kjólnum. „Dr. St. Laurent...“ hrópaði hún „en hvað það er gaman að sjá yður e'ftir öll þessi ár. Þér munið eftir okkur, er ekki svo?“ 1 „Að sjálfsögöu”, svaraði Christ ian; „Gott kvöld, frú Hawkins .. gott kvöld læknir". Hann heilsað gráhærða manninum með handa bandi. „Hve lengi hafið þér dvalizt hér?“ Konan á rauða kjólnum gaut augunum á Lauru. „Við vorum að koma í kvöld". „Ég hef dvalizt hér alllengi...“ svaraöi Christian. „Þér eruð þó ekki að njóta hveiti brauðsdaganna öðru sinni i her- bergi 2-L, er það?“ Konan i rauða kjólnum hló við, nístandi kalt. Christian dró svarið. „Ég bý í smáhýsi í grenndinni“. „Og konan yðar, hin fagra Linda hvernig líður henni?" Það varð drykklöng þögn, og á . meðan birtist Gail Kerr i dyrunum og Firmin að baki henni, og þaö var eins og pau fyndu það bæði á sér aö ekki væri viðeigandi aö rjúfa' bögnitra', þvi að bæöi námu staðar... jafrivel «tormurinn og hafið höfðu hljótt um sig ... „Hún er látin .. “ Það var því líkast sem þrem stein- um hefði verið varpað í djúp þagn , arinnar og spegill yfirborðsins ver- ið rofinn og yrði aldrei gáralaus aftur. Og stormbyljimir buldu aft- ur á húsum svo brakaði og brast i viðum og holskeflumar brutu 1 falda sína við Nornarif ... I i ÁTTUNDI KAFLI. I i Þaö var hátt til lofts og vítt til veggja inni í borðsalnum, ekki síð- ur en frammi í anddyrinu, og öll innsmíði bar vitni, að þar höfðu list fengir menn verið að verki og I hvorki skort valinn efniviö né tíma 1 til að vanda það sem mest. Bitarn- ir undir loftinu voru skreyttir listi legum útskurði, veggimir þiljaðir ljósbrúnum, fáguðum harðviði. — Allur borðbúnaður var í stfl viö það postulín og silfur frá því á síðustu áratugunum fyrir aldamótin. Þetta kvöld minntu gestirnir, sem sátu boröin í hinum víðu salarkynnum einna helzt á skipbrotsmenn. sem holskeflan á málverki frú Bean hafði skolað í land i flöktandi bjarma kertaljósanna, þar sem þeir gátu veriö öruggir fyrir brimi og stormi að minnsta kosti þá stund ina, hugsaði Laura, þegar hún var setzt að kvöldveröi meö Firmin. „Nú verð ég að ganga frá fjármál unum, fyrst og fremst", sagði hann. „Ég ætla mér ekki að haga því þannig aö kvikmynda fyrst eins konar sýniþætti til að leggja fram fyrir bankastjóra um leið og ég fer fram á lán. Nei. ég get ekki unnið nema ég sé algerlega sjálfráöur og óháður, ég er þannig gerður ...“ „Gene' mælti hún, „ég get ekki undirritað neinn samning eins og er.“ Hún hafði sagt þetta áður, vissi að hún átti eftir að endurtaka það hvað eftir annað. Hún tók það ekki nærri sér. Tók það ekki nærri sér heldur þótt Firmin léti dæluna ganga, hún hlustaði ekki á hann nema með öðru eyranu, sat þama í flöktbjarma kertaljósanna, horfði yfir að borðinu þar sem Christian sat, virti fyrir sér andlit hans og glímdi viö ráðgátuna i svip hans og fasi. Og hún fann að orðin þrjú, sem hann hafði látið falla i bar- káetunni fyrir stundarkomi, harm urinn i lágri röddinni, þegar hann mælti þau, gerðu henni þá aátu enn erfiðari viðfangs. RÓ8Í8 hitanum sjólf meS .... OGREIDDIR BEIKHINGAR LÁTIÐ OKKUR INNHEIMTA... Það sparar ybur t'ima og óþægindi INNHEIMT USKRIFST OFAN íjarnargótu 10 — 111 hæð —Vonarstrætismegin — S'imi 13175 (3l'mur) —^ ’-S.li

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.