Vísir - 06.09.1968, Page 16
■ :M>
VISÍR
Kringlitmýrarbraut
opnuð innon
sknmms
Framkvæmdum við Kringlumýr-
arbraut miðar vel. Er búizt við, að
hún veröi opnuð til umferöar eftir
hálfan mánuö. Lokið er vinnu viö
„að komast í gegnum hæðina“, og
hitaveitustokkurinn hefur verið
lækkaður. Nú stendur til aö mal
bika spottann niður að Sléttuvegi.
Undirlagið verður Iagt í næstu
viku. Er hér um að ræða hálfs
kflómetra kafla.
AGA gCHAN
til Hefkjnvíkur
eftir hádegið
\
\
\
\
\
í dag er væntanlegur hingað f
til lands Sadruddin Aga Khan, ?
forstjóri flóttamannahjálpar S. ;
Þ. Hér mun hann eiga viðræð-
ur við forsætisráðherra, utanrík
isráðherra og forseta íslands,
méðan á dvölinni stendur, og J
ennfremur mun hann hitta að I
máli forustumenn „Herferöar ||
gegn hungri.“ l
Sadruddin Aga Khan kemur /
við hér á ferðalagi sín um I
Norðurlönd, en héðan heldur
hann á morgun til Stokkhólms,
og þaðan fer hann til Helsing- .
fors, Kaupmannahafnar og Osló- »
ar 1
6-700HESTAR AF HÍYl BRUNNU
■ Sex til sjö hundruð
hestar af töðu eyðilögð-
ust, þegar eldur brauzt
út í hlöðu hestamanna-
félagsins Fáks við EHiða
ár í gær. — Eldurinn
brauzt út laust fyrir kl.
tólf í gær og kom
slökkviliðið þegar á vett
vang með fjóra bíla.
Slökkvistarfið tók um
tíu klukkustundir og í
nótt voru fjórir menn á
vakt við heyið, tveir frá
slökkviliðinu og tveir
frá Fáki. — Talið er að
ekki hafi kviknað í út frá
hita í heýinu, heldur séu
eldsupptökin utanað-
komandi.
Þegar Vísir kom á staðinn kl.
um hálf eitt í gær hafði mikill
mannfjöldi safnazt í kringum
brunann og auðveldaði hann
ekki slökkvistarfið. — Mikinn
reyk lagði af heyinu og eldtung
ur brutust öðru hvoru upp um
þekjuna, sem búið var að rjúfa.
Slökkviliðsmenn urðu að rífa
mikið af járnklæðningu hlöð-
V 10 síða
/ HLOÐU FAKS / GÆR
— Enginn heyskortur samt hjá félaginu — Nóg framboð á
heyi, segir Bergur Magnússon, starfsmaður Fáks
Vefrarstarf
Kvikmyndaklúbbs-
áns að hefjasf
Blaðamönnum gaist í gær kostur
á að sjá tékknesku kvikmyndina
„Brottflutningur úr Paradís“, sem
Kvikmyndaklúbburinn mun hefja
vetrarstarfsemi sína með. Myndin
ljallar um meöferð Þjóðverja á
Gyöingum í Tékkóslóvakíu í heims-
styrjöldinni síðari.
Á döfinni er að sýna tékkneskar
myndir eingöngu út þennan mán-
uð, en sýningar eru á hverju kvöldi
í Litla bíói, Hverfisgötu 44, kl. 9,
nema á fimmtudögum.
Á næstunm verður þar frum-
sýnd stutt íslenzk mynd, „Höfnin“
eftir Þorstein Jónsson, en þetta er
fyrsta mynd hans.
Hugmyndin er sú njeð starfsemi
klúbbsins, að koma upp kvik-
myndasafni hér á landi eins og tík-
ast i flestum öörum löndum, og t. d.
er í bígerö að festa kaup á sænsku
myndinni „Fjalla-Eyvindur" eftir
Victor Sjöström.
Á laugardag milli 1 og 6 fer inn-
ritun nýrra meðlima fram i Litla
bíói.
Slökkviliðsmenn bera hey úr hlöðu Fáks. Mest allt Iieyið var borið út úr hlöðunni, rennandi blautt.
Ljósmyndari Vísis B. G. tók þessa mynd um hádegisbilið I gær.
Rafmagnsveitan og húseigendurnir viB Giljalahd:
Mistökin verða leiðrétt
• Vegna skrifa Vísis 3. þ. m.
um óhagstæða staðsetningu svo
nefndra stofnkassa eða útivar-
kassa við húsin Giljaland 26 —
32 hefur blaðinu borizt greinar-
gerð viðvfkjandi málinu frá
Rafmagnsveitu Reykjavíkur. í
: henni segir m. a.:
„Eigi er því að leyna, að við
mælingu hefur kassinn reynzt
vera rúmlega hálfum metra utar
í en vera áttl. Skylt er að viður-
íslenzkar myndir á
hátíðum erlendis
kenna þessi mistök og verða þau
leiðrétt þegar í stað.
En það leysir hins vegar ekki
vanda húseigenda. Eins og afstöðu-
myndin sýnir (þvi miður er ekki
10 siða
i
Neytendasaatök
undir innsigli
Bókhald Sveins sent Sakadómi
Það er l'átítt, að íslenzkir kvik-
myndahöfundar eigi myndir á kvik-
myndahátfðum, sem haldnar eru
víða um lönd, og einsdæmi mun
það vera, að íslenzkur kvikmynda-
gerðarmaður eigi myndlr á þremur
hátfðum í einum og sama mánuðl.
Um þessar mundlr eru þó kvik-
myndir eftir Þorgeir Þorgeirsson
sýndar á kvikmyndahátíöum í
Ltibeck í V.-Þýzkalandi og í Lo-
camo í Sviss og ein mynd eftir
hann er sýnd í sambandi við Tón-
listarhátíö í Stokkhólmi. Auk þessa
var mynd hans „Maöur og verk-
smiðja“ sýnd við góðar undirtektir
á Edinborgarhátiðinni í Skotlandi
í síðasta mánuði.
Myndir Þorgeirs hafa verið
sýndar hér á landi, en erlendis
! mun hann sýna mynd sína um
I Kópavogskaupstað í nýrri útgáfu,
; sem hann hefur nýlokið við að
! klippa. Enginn talaður texti fylgir
I myndlnni í hinni nýju útgáfu.
Innsigli var sett á skrifstofu
I Neytendasamtakanna í fyrradag.
Formanni samtakanna um ára-
! bil, Sveini Ásgeirssyni hefur ver
i ið vikið úr starfi framkvæmda-
! stjóra og formanns. Á fundi í
I stjórn samtakanna s.l. þriðjudag
var Hjalti Þórðarson, skrifstofu-
stjóri á Selfossi kjörinn formað-
ur, en Kristján Þorgeirsson ráð-
inn framkvæmdastjóri.
Ákaflega erfitt er að fá upplýs-
ingar fyrir þá neytendur, sem lesa
fréttir dagblaðsins Vísis. Hinn nýi
! framkvæmdastjóri var á „hlaup-
I um“ aö sögn og mátti ekki vera að
I því að segja lesendum frá því hvað
' er að gerast í félaginu þeirra. „Það
I verður gert á félagsfundi". sagði
hann. Ekki var hann í aðstöðu til
að segja nánar um hvenær sá fund
ur yrði haldinn Hins /egar kvað
hann þaö rétt að reikningar sam-
takanna yrðu sendir saksóknara
embætfinu til rannsóknar.
Vísir náði tali af hinum nýja
formanrii samtakanna. Hjalta Þórð
arsyni, skrifstofustjóra á Selfossi
og innti hann eftir málsátvikum
en hann varðist allra frétta og sapi’
ist bundinn af samþykkt stjórn
arinnar um að skýra ekki nánar frf
málinu. fyrr en eitthvað fleira læ"
fyrir, Myndi stjórnin flytja skýrslv
um rannsókn málsins á framhald;
aðalfundi félagsins: sem ekki hefut
verið ákveöiö enn. hvenær verð>
haldinn, en yrði þö væntanlega
strax og niðurstöður rannsóknar s
bókhaldinu lægju fyrir.