Vísir - 16.09.1968, Blaðsíða 4

Vísir - 16.09.1968, Blaðsíða 4
* Titt.. Ekki segja „vinkona prinsins" Það er nokkuð einsýnt að Titti nokkur Wachtmeister er einkavin- <ona Svlaprins með meiru. Hún stóð I ströngu nú um daginn. Sænsk blöð og timarit eru orðin svo vön að bendia hana við prins- inn, að hennar eigin hæfileikar sem persónu falla I skuggann. Húsmæðrablað eitt haföi ráðið 'hana til sín, og átti að hafa mynd af ungfrúnni á forsíðu þar sem hún sýndi föt. Nú óttaðist Titti, að hún vrði kölluð vin- kona prinsins I fyrirsögn, en henni var lofað, að hjá þvl yrði sneitt. Þegar ritið var tilbúið kom i ljós, að fyrirsögnin var: ,,Stúlka erfðaprinsins sýnir föt.“ Titti varð ævareið. Með herkjum tókst á síðustu stundu að fá þessu breytt I „Titti sýnir föt“. Titti litla starfar ekki lengur hjá tíma- ritinu. Forráðamenn sjónvarpsins okk- ar hafa nú tekið upp á því að hætta að sýna blessaðan dýr- iinginn, að minnsta kosti um sinn. Þess vegna birtum við hér mynd af honum I essinu sfnu, svo að hann falli ekki I gleymsku. Á myndinni sést hann I rifinni skyrtu kjá við Claudíu Lande, sem leikur með honum I kvik- myndinni ,,Crossplot“, sem fjallar væntanlega um eitthvert ráða- brugg. Leikkonan er fædd I Belgíu og hélt fyrir nokkrum dögum til Elstree-sj ónvarpsstöðvarinnar í Bretlandi til að hitta hinn ó- viðjafnanlega. Annars stendur Roger Moore I ströngu þessa dagana og vonast eftir skilnaði frá konu sinni, en þau slitu raun ar samvistum fyrir mörgum ár- um. Brúðurin dáleidd við brúðkaupið Er Diane Podkowat, tuttugu og fjögurra ára, gifti sig I Detroit I síðustu viku, var hún undir áhrif um dávalds. Hluti hinnar órólegu sálar hennar svaf vært, á meðan afgangurinn af ungfrúnni játaðist Tom Schoemith, glaðvakandi ung- um manni, tuttugu og sjö ára. Presturinn, rómversk kaþólsk- ur, hikaði lengi við að gefa þau saman. Lærðir menn safnaðarins sökktu sér niður í forskriftir páfa. Menn fýsti að vita, hvað Guð og páfinn teldu rétt I þessum efnum. Hjónavígslan fórst ekki fyrir þrátt fyrir allt. Ástæður þess ara undarlegheita voru sem hér segir: Diane og Tom. Hvað segir páfinn við þessu? Bæði Diane og Tom höfðu fyr- ir alllöngu gert sér ljóst, að ung frúin mundi ekki þola þá tauga- spennu, sem giftingin hefði I för með sér. Tár mundu streyma, og andlitsfarðinn renna. Lausu augna hárin mundu detta. í stuttu máli sagt: Þetta yrði algjört hneyksli á mælikvarða Ameríkana. Þau hjónaleysin leituðu ráða hjá vini sínum, Ron Hutchins. Sá hafði áður starfaö að dáleiðslu sem sérgrein. Nú var hann marg- faldur milljönamæringur I hús- gagnasölu og dáleiddi fólk að- eins I hjáverkum. Þau urðu ásátt um, að dáleiðsla gæti hindrað hneyksli I kirkjunni. Presturinn óttaðist, að Diane mundi svara með jái, þegar hún ætlaði að segja nei. Diane sjálf var aðeins hrædd um að veröa sér til skamm ar. Daginn fyrir brúðkaupið tók Tom á leigu forsetaíbúðina i Poncharten gistihúsinu I Detroit. Diane var dáleidd. Hún las á skilti sem dávaldurinn hélt á. Hann mælti nokkur c ð, hreyfði hend- umar lítið eitt, og það var allt og sumt. Allt gekk nú samkvæmt áætlun og ritningargreinum. Di- ane gekk virðulega inn kirkju- gólfið. Andlitsfarðinn var á sin- um stað. Brúðkaupsmyndin heppn aðist vel. Nú voru þau hjón eitt. kvaddur Dýrlingurinn Áfengisbölið Aðili, sem hefur mikil afskipti af dryggjusiúkum, vill vekia at- hygli á, nversu almenn of- drykkja er í Reykjavík. Finnst jafnvel að alls konar upplausn vegna drykkjuskapar hafi held- ur aukizt. Það hefir valdið aukn- um vandræðum, hversu algeng- ura það er, að konur drekka meira en áður í óhófi. Miklu vi'öar en almenning órar fyrir, eru jafnvel barnmörg heim IIi, þar sem drykkjuskapur geng ur nærri börnunum og þaö væri jafnvel æskilegt bamanna vegna að Ieysa heimilin upp og koma bömunum fyrir annars staðar. En verulega aðstöðu vantar til StScs, að börnum verðl komið fyrir vegna þessa til lengri eða skemmri dvalar. Ofdrykkja hefur alltaf verið vandamál, en aldrei eins og nú, hvernig sem á því stendur. Verst er, þegar drykkjan fer svo fram á heimilunum innan um bömin og endar með ofstopa og jafn- vel misþyrmingum. Þegar slíkt margendurtekur sig, þá getur ekki farið hjá því, að bömin verði fyrir varanlegum slæmum áhrifum. Það vantar meiri afskiptl af þessum málum og það þarf c.'.kna aðstööu til, aö til þess kvaddir aðilar, geti gripið inn í málln þar sem verst er ástatt, og að minnsta kosti bjargaö bömunum til betra umhverfis, þar til um hægist ef von er um að málin komist að nýju I eðli legt horf. Þrátt fyrir mikil skrif og um- tal um slæma drykkjusiði og áfengisflóð, þá eru aðgerðir næsta litlar til að koma þeim til hjálpar sem misstiga sig í umgengni við áfengið. Eins kon ar sálarkreppa hrjáir margt þetta ofdrykkjufólk, og það sem þarf, er f mörgum tilfellum að- eins læknishjálp. Bindindisfélög vinna nytsamt starf meðal ungs fólks aðallega i skólum, en það vantar félags- málasamtök til að koma þessu afvegaleidda fólki til hjálpar vegna óhóflegs drykkjuskapar þess og reyna að koma því á réttan kjöl aö nýju, ef hægt er. Hið opinbera þyrfti síðan að að- stoða slíka félagsstarfsemi með þvi að leggja til aðstöðu vegna bæði bamanna og drykkjusjúkl- inganna sjálfra i þeim tilfellum sem þess þarf. Slík mál þýöir ekki að taka með vettlingatökum, heldur festu og þó hlýhug. Vinbann mun heldur ekki leysa málin, því að einangrun þjóðarinnar er ekki lengur staðreynd og sam- neyti við aðrar þióðir er orðið svo mikið, og á eftir að aukast, að það leysir ekki lengur vand- ann. Ofdrykkjuna þarf vafalaust að leysa með öflugu félagsmála- starfi á svipaðan hátt og bar- áttan er háð gegn berklum, krabbameini og hjartasjúkdóm- um. Ofdrykkjan er staðreynd, en spurningin er aðeins vm vinnutilhögun og hvemig standa eigi að verkefninu. Ekki þarf að efa árangur, ef unnið er af heii- um hug að framgangl mála. Þrándur f Götu. i

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.