Vísir - 16.09.1968, Blaðsíða 10

Vísir - 16.09.1968, Blaðsíða 10
10 Frá þjóðdansa félagi Reykja- víkur Aðalfundur félagsins verður haldinn að Fríkirkjuvegi 11 fimmtudaginn 19. sept. n.k. STJÓRNIN. 2 lyklar töpuðust frá Ingólfsstræti 5 cj Laugavegi 1 s.l. laugardag. - Vinsaml. skilist á afgreiðslu Sjóvá, Ingólfsstræti 5. Ford Cortina árgerö '66 óskast til aups. Staðgreiösla. Uppl. í síma 34797 eftir kl. 7 e. h. Síldarstúlkur Vil ráða vanar stúlkur til síldarsöltunar á Raufarhöfn og á Seyðisfirði. Uppl. í síma 32799. JÓN Þ. ÁRNASON. Einbýlishús Til sölu er vandað einbýlishús á góðum stað í Smáíbúðahverfi. Stór stofa og bílskúr er nýbyggt við húsið. í risi eru 3 svefnherbergi, bað og geymsla. Mjög fallegur garður. Skipti á 3ja—4ra herb. íbúð koma til greina. Fasteignasala Sigurðar Pálssonar byggingameistara og Gunnars Jónssonar lögmanns Kambsvegi 32. Símar 34472 og 38414 Kvöldsími sölumanns 35392. Kennara vantar að barna- og miðskólanum í Bolungavík. Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 32435, Reykjavík. Tilboð óskast í nokkrar fólksbifreiðii, hópferðabifreið og nokkrar sendiferðabifreiðir, er verða sýndar að Gensásvegi 9, miðvikudaginn 18. septem- ber kl. 1—3. Tilboðin verða opnuð kl. 5. Sölunefnd varnarliðsins. Frá Þjáöleikhúsinu Félög og starfsmannahópar. Kynnið yður hið nýja fyrirkomulag okkar á afslætti á aðgöngumiðum. Upplýsingar í síma 11204 frá kl. 10—12 virka daga. VISIR . Mánudagur 16. september 1968 Fossvogskirkjugarð ur stækkaður Grafreitum fyrir 2.000 bætt við Unnið er að stækkun Fossvogs- kirkjugarðsins til vesturs. Er áætl- að, að þar skapist rúm fyrir nýja grafreiti fyrir um 1800—2000 manns. Árlega munu um 700 jarð- aðir í garðinum. Það er algengt, að fólk utan bæjar sé jarðað þar, auk Reykvíkinga, og er sú tala hærri en þeirra Reykvíkinga, sem jarðaðir eru utan bæjarins. Fram- kvæmdirnar eru á vegum borgar- innar og eru þær mjög kostnaðar- samar. Bæta þarf ofan á tveggja metra þykku lagi, og gera ræsi undir öllum grafreitum, til þess aö vatn safnist ekki fyrir. Hvað gerir KR-b gegn Evröpubikar- iiði Valsmanna? Dregið var í gær um það, hvaða lið lenda saman í undan- úrslitum bikarkeppni KSÍ. KR-b leikur við Val. Vestmannaeyjar gegn Fram. Síðarnefndi leikurinn fer fram um næstu helgi, en sá fyrrnefndi um aðra helgi, þ. e. þegar KR- ingar eru komnir heim frá Grikk landi. Framkvæmdirnar eru taldar brýn nauðsyn, enda er grafarstæði að þrjóta í gamla garðinum. Heyhlaða — > 1. síöu. Hvanneyrarbúsins í sumar og kvaðst Guðmundur ekki geta sagt til um það á þessu stigi málsins, hvort gera þyrfti einhverjar ráð- stafanir til frekari heyfanga vegna þessa skaða, en í þessari hlööu var geymt fóður ofan í kindur og hesta. Slökkvistarfið stóð enn þá yfir, þegar Vísir hafði samband við Hvanneyri í morgun. Að slökkvi-t starfinu unnu brunaliösmenn úr Borgamesi og slökkviliðinu í Reyk holti. Auk þess dreif að mikinn mannfjölda úr sveitinni í kring. BHhlsJHLM Jafnaðarmenn — I -óöu únista“ og orsökin væri hin sov- ézka innrás í Tékkóslóvakíu. Samkvæmt yfirliti frá NTB ár- degis urðu. úrslitin þessi eða nán- ast þessi (opinber tilkynning um lokaúrslit ókomin); Hægri flokkurinn 32 (áöur 33), eitt þingsæti tapaö. Centerfl. 39 (áður 35, 4 unnin). Folkepartiet 33 (áður 43, 10 töpuð). Borgerlig samling 1 (áður 1). Jafnaðarmenn 123 (áður 113, unnin 10). Kommúnistar 3 (áður 8, — fimm töpuð). TIL SOLU Skoda Oktavía '63 til sýnis og sölu að Suöurlandsbraut 59,- Bifreíðasölusýning í dag Seljum í dag: Landrover dísil árg. ’68, keyrðan 8 þús. km. Mercedes Benz árg. ’62, góður bíll. Saab árg. ’67, vill skipta á Ford Bronco árg. ’66. Vauxhall Velox árg. ’64, verð og greiösla samkomulag Saab árg. ’63, verð kr. 115 þúsund. Trabant station árg. ’64 til ’67. Allar gerðir af jeppum, vörubílum, sendibílum, með stöðvarplássi. mælir og talstöð geta fvlgt. Gjörið svo vel og skoöið bílana. Bifreibasalan, Borgartúni 1 Símar 18085 og 19615. Eusébio — M->- 1. síðu. stólsætin um hádegið á morgun. Valsmenn fá aðeins 68% af að gangseyri í sinn hlut, en af gangurinn rennur til Laugar- dalsvallar og hinna ýmsu sjóöa, sem tengdir eru knattspyrnunni. Það hefur ávallt verið hefð aö bjóða erlendum liðum til matar veizlu, aö kappleik loknum, en nú hefur borizt skeyti þar sem þeir óska ekki eftir slíkri veizlu. Þeir munu verða fyrsta íþrótta liðiö sem afþakkar slíkt boð. Ekki segja þeir það vera neinn fjandskap við Val, heldur að þeir eigi svo erfiða dagskrá framundan. Rusl — —>• 16 slðu mönnum, að kveikt hefði verið í ruslinu af óvitum, en það er nú í rannsókn hjá lögreglunni. Þá var slökkviliöið einnig kvatt á laugardagskvöldið aö Grettisgötu 3, en þar hafði einnig kviknað I rusli í húsa- sundi. Eldurinn var slökktur, áð ur en nokkur skaði hlauzt af honum. Það líður varla sú vika, að slökkviliöið sé ekki kvatt út einu sinni eða oftar vegna elda. sem kviknaö hafa í rusli ein- hvers staðar. Sjaldnast hafa hlot izt af þessu nein teljandi spjöll, en fyrr eða síðar kemur að því, að af þessu hlýzt verulegt tjón. Yrði það þá eingöngu fyrir kæru leysi fólks, sem ekki nennir að fjarlægja rus! sitt eða eyða því, áður en það safnast saman. Meira til fyrirmyndar er hrein læti íbúanna I nýja Fossvogs- hverfinu, en þar hefur mátt líta undanfarin kvöld bál á víð og dreif um hverfið. Þau hafa íbú- arnir kveikt með levfi slökkvi- liðsstjóra í rusli. sem gjarnan vill safnast við nýbyggingar. Brenna þeir ruslið jafnóðum, en láta það ekki liggja I hirðuleysi, þar til einhver óvitinn kveikir í því þegar sfzt skyldi. Með því að evða rusli sfnu þannig þjóna íbúarnir tvennum tilgangi. Þeir fá snyrtilegra um hverfi við hús sín og draga úr eldhættunni. BELLA — Mér heyrist vera partí hérna binum megin. Ætti ég aö fara yfir og biðja um að fá lánaðan einn bolla af hveiti? RMMET Hæstlaunaði fiöluleikari í heimi er talinn hafa verið Austurríkis- maðurinn Fritz Kreisler (1875— 1962), er talið að hann hafi unnið sér inn meira en 160 milljónir króna á ferli sínum. 3 björt forðabúrs eða skrifstofu herbergi geta fengizt til leigu í 2 mánuði, frá 1. október til 30. nóvember. A. Obenhaupt. Vísir, mánud. 15. sept. 1918. VEÐRIf) i DAG Hæg austan eða suðaustan átt í dag, en suðaustan stinningskaldi og rigning í nótt. Hiti 8-11 stig. TILKYNNINGAR Hvað ungur nemur — gamall temur. Foreldrar, sýnið börnum yðar fagurt fordæmi i umgengni. Bókasafn Sálarrannsóknafé- lags sl nds og afgreiðsla tima- ritsins Morguns. Garðastræti 8. sími 18130 er opin á miðvikudags kvöldum kl. 5.30 til 7 e.h. Skrif- stofa félagsins er opin á sama tíma.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.