Vísir - 01.10.1968, Blaðsíða 3

Vísir - 01.10.1968, Blaðsíða 3
VÍSIR . Þriðjudagur 1. október 1968, Þessi mynd er im.i við þvottalaugarnar gömlu, til aö minna á þær sómakonur, sem þvoðu þvott sinn þar, áður en sjálfvirknin kom til sögunnar. „Einar Benediktsson“ á Mikla- túni, og að baki honum gnæfir tákn skáldanna. Fyrir utan Hallveigarstaði stend- ur „Fýkur yfir hæðir“. Ásmund- ur segir, að hún mætti vera stærri. „Vatnsberinn“ var á sínum tíma umdeilt verk, og kannski hafa þær deilur tkki hjaðnað að fullu í tilefni þess, að enn ein mynd Ásmundar hefur bætzt í hóp þeirra, sem fyrir voru, brá Mynd sjáin sér í ferö um borgina til að rifja upp kunningskapinn við eldri myndirnar, sem hvíla á stöJIum sínum á víð og dreif í borgarlandinu. okkar, og almenningur lætur sig skipta f]est það, er að myndunum,iýtur. Til dæmis eru flestir fáanlegir til að þvarga um það tímunum saman hvort Bertil Thorvaldsen hafi verið ís- Ienzkur maður ellegar danskur, og það er sjaldgæft, að menn hafi ekki á reiðum höndum á- kveðna skoðun á „Vatnsberan- um“ — sem ýmsir telja af- skræmislegt hrúgald, en aðrir á- líta hið hedegasta meistaraverk. Ásmundur Sveinsson mun að líkindum vera þekktastur ís- lenzkra myndhöggvara, og nú eftir margra ára listferii hans er svo komið, að myndir hans eru uppi viða í Reykjavík. Síðast núna við Hamrahlíð, „Öldugjálf- ur“, nýtízkulegt verk, sem að undanförnu hefur gert víð- reist og jafnvel verið til sýnis í öðrum heimsálfum. Verk Ásmundar eru dreifð um borgina, sum í einkaeign og önnur í eigu borgarinnar. Þau eru orðin hluti af' umhverfi Reykvíkingsins, gamlir kunn- um í þau — önnur heföbundnari. ÖJl eru þau að vissu marki leikur að formum, virðast kannski einföld i sniðum og auð veld smíð, en þegar betur er að gætt býr að baki þeim djúp hugs un og ströng sjálfsögun alvar- legs listamanns. Tj’itt af sjö furðuverkum forn- aldar var risinn á Rodos, svo feiknlegur að stærö, að sög- ur af mikilleika hans flugu um öll lönd. Hér á íslandi tuttug- ustu aldar eigum við nú senni- lega enga höggmynd jafnmikla þessari, sem trónaöi fyrir ár- þúsundum á hinni fomfrægu eyju í egíska hafinu. Engu að síður eigum viö fjölmargar höggmyndir, sem prýða borgina ingjar, sem maður mundi sakna ef þau væru horfin einn góðan veðurdag. Þau eru misjöfn að efni og stíl — sum svo framúrstefnuleg, að hinum ráðsettari mönnum renn- ur kalt .vatn milli skinns og hörunds, þegar þeir reka aug- MYNDSJA ,Járnsmiöurinn‘ " „Öldugjálfur“ heitir þessi mynd, sem nú um helg ina var setf upp við Menntaskólann við Hamrahlíö. „Það hlýtur að vera óskadraumur hvers myndhöggvara, að verk hans komi fyrir almenningssjón- ir“, sagði Ármundur og ’ék á als oddi. (Ljósm. V ísis Bfagi Guð..iundsson). ■ „Gegnum hljóðmúrinn” er falleg mynd, sem sómir sér vel fyrir utan Hótel Loftleiðir. Inni í Laugardal er „Móöir Jörð' i I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.