Vísir - 01.10.1968, Side 4
I
Ingmar Bergman byggir verk sín á
*
andlitssvip leikkonunnar
Liv Ullmann sífellt i aðalhlutverkum
Sænski kvikmyndaleikstjórinn
frægi, Ingmar Bergman, styöst
nú í æ ríkara mæli við leikkon-
una Liv Ullmann. Hún leikur
meðal annars í kvikmynd hans
„Persona“, sem sýnd hefur verið
hér á landi. Það er einkum and-
lit leikkonunnar, sem Bergman
nýtir til að skapa áhrifamikil
atriði. Tveimur síðustu myndum
hans lýkur með nærmynd af
andliti Liv Ullmann.
í kvikmyndinni, sem fjállar um
„úlfa“, sennilega í mannslíki, tal-
ar leikkonan um sjálfa sig og
eiginmann sinn og lýsir basli
þeirra hjóna. Hún leitar að orð-
um: „Ef ég hefði ekki, ef ég hefði
bara getað, já, ég get ekki tjáð,
hvað ég á við ...“ í lokaatriðinu
hallar hún höfðinu dálítið til hlið-
ar, eins og hún vilji spyrja ein-
hvern og segir: „Það er mjög
margt, sem maður hugsar. Það
eru svo margar spurningar. Stund
um skilur maður hvorki upp né
niður og verður alveg ...“ Hún
finnur engin orð til að lýsa til-
finningum sínum, og merkingin
kemur ekki í ijós í kvikmyndinni.
í annarri kvikmvnd Bergmans,
„Skömmin", liggur Liv Ullmann
ásamt mótleikara sínum i báti.
Hún hefur flúið ásamt eiginmanni
sínum undan styrjöld. Bátinn hef-
ur rekið inn I kös líka hermanna,
sem fljóta í vatninu. Árarnar
rekast í líkin. I lokaatriðinu tal-
ar leikkonan um draum: Brenn-
andi rósir og barn, sem hallar
sér að barmi hennar. Hún segir:
„Ég vissi alltaf, að mér var ætlað
að gera mér grein fyrir einhverju
mjög mikilvægu, sem einhver
hafði sagt, ef ég hefði gleymt,
hvað það var ...“ Enginn svar-
ar.
Myndin „Persona" er einnig að
verulegu leyti byggð á andliti Liv
Ullmann. — Ingmar Bergman
reynir að koma til skila boð-
skap sínum með því að láta svip-
inn tala.
Kristín Svía-
prinsessa móðguð
Á kvikmyndavikunni í Sorrento Mai Zetterling og eiginmaður
móðgaði Mai Zetterling, Kristínu
Svíaprinsessu opinberlega. Það
var á frumsýningu á mynd eftir
Mai Zetterling, „Stúlkurnar", að
prinsessan kom í heimsókn. —
Allir viðstaddir risu á fætur, nema
hennar.
Eftir á sagði Zetterling, að hún
hefði ekki verið neitt yfir sig
uppveðruð af heimsókn prinsess-
unnar, en af Kristínu prinsessu er
það að segja, að hún lét, sem hún
sæi ekki framkomu Zetterling.
Þetta andlit, í senn ungt og þroskað, er uppistaðan í síðustu
kvikmynd sænska meistarans Ingmars Bergman.
Anthony
Quinn
illa leikinn í
Daman leit rétt sem snöggvastj.
undir rúmið sitt og tók síðan að,J
berja frá sér ofsaiega. Höggin’"
hittu í mark, þar sem verstí
gegndi. Ot undan fletinu skreiðl’
Anthony Quinn. Það var Annají
Magnani, hin ítalska, sem einskis‘1
sveifst i þessum átökum. Húnl*
sparkaöi í bakhluta Quinns, beití
hann í hálsinn og lamdi í höfuð-Ij
ið. Þegar Quinn kvartaði undanj>
meðferðinni og sagði, að ekki>J
stæði i kvikmyndahandritinu, aöl"
hún ætti að bíta hann, svaraði
Anna: „Hugsaðu ekki um það.«J
Mundu bara að ég á að vinnaj*
þessi slagsmál." Anna fór' til*I
læknis, eftir upptökuna. Þá komlj
í ljós, að hún hafði sjálf bein-jí
brotnað, er hún sparkaði í mót->J
leikara sinn! I*
Prinsessur geta orðið gamlar
og gjaldþrota
Fritz er yngsti bróðir Sibyllu og
höfuð ættarinnar. Hann hefur nú
lýst sig gjaldþrota.
Sibylla Svíaprinsessa stendur
nú á sextugu. Margir átta sig ekki
á því, að prinsessur geti orðið
gamlar, en þannig hefur nú far-
ið fyrir Sibyllu. Á efri árum
verður hún fvrir því áfalli, aö
hún og hinir þýzku ættingjar
hennar viröast vera nær gjald-
þrota. Konungsættin af Coburg-
Sachsen-Gotha riðar til falls. Lauk
ur ættarinnar, yngsti bróðir Sib-
yllu, Fritz, 49 ára, hefur hlotið
dóm í Hamborg. Hann á aö greiða
13 milljónir króna í bætur, Prins-
inn lýsti yfir gjaldþroti. Systir
Sibyllu, Calma, sem ,er 53ja ára
aö aldri, hefur stefnt stjórn fjöl-
skyldusjóðsins. Hún krefst þess,
að gerð sé grein fyrir eignum
sjóðsins og Sibylla hverfi úr stjórn
inni.
Konungsættin Coburg-Sachsen-
Gotha var ríkasta ætt Þýzkalands
fyrir síðari heimsstyrjöld. Eignir
voru metnar á 25 milljarða. Mest-
ur hlutinn lenti í Austur-Þýzka-
landi eftir stríðiö. Hallirnar í
V.-Þýzkalandi voru þjóönýttar,
nema ein, með 65 herbergjum.
í Austurríki á ættin enn tvær
hallir, og hefur önnur 250 her-
bergi. Eignir vo.ru árið 1965 um
180 milljónir íslenzkra króna og
árið eftir „aðeins“ 60 milljónir.
Nú síður enn á ógæfuhliðina fyr-
ir Sibyllu prinsessu og hinum
þýzku ættmönnum hennar. 80
milljónir „gufuðu upp“ i fyrra.
Bankastjórar Wolffs bankans í
Hamborg segja málið ofur einfalt:
Einkaeignir prinsessunnar rýrni
hratt vegna gífurlegrar eyðslu
hennar. Sjóðurinn greiði ýmis
gjöld og hafi engar tekjur lengur
af skógrækt. Sibylla verður nú
að lifa af tekjum sínum úr sjóð-
um Bernadotteættarinnar sænsku.
Sennilega herðir hún sultarólina!
Á einu ári hafa 80 milljónir króna
„gufað upp“ úr fjölskyldusjóði
Sibyllu prinsessu í Þýzkalandi.
Ljósastilling enn á ný.
Það kemur manni spánskt fyr-
ir sjónir, að ljósastillingum bif-
reiða skuli almennt vera svo á-
bótavant, að þörf skuli vera á
að bjóða upp á ljósastillingar.
Þó má það þykja mikil rausn að
sú þjónusta skuli vera boðin bif-
reiðaeigendum ókeypis.
í sambandi við H-umferð og
síðustu allsherjar skoðun bif-
reiða var það gert að skyldu að
sýna Ijósastillingarvottorð, að
öðrum kosti var þvi hótað að
taka bifreiðar úr umferð með
þvf að klippa af númerin. Má
ætla að allir bifreiðaeigendur
hafi hlýtt þessu boði, enda væru
þeir ekki enn á ferðinni ella.
Ljósastillingarvottorðin voru gef
in út af blfreiöaverkstæðunum
að lokinni skoðun Ijósa, og í
mörgum tilfellum skipti á ljós-
kerjum vegna umferðarbreiting-
arinnar.
er varðar IjósastiIIingar. Það er
kannski þess vegna, sem þessi
þjónusta er boðin ókeypis nú?
Auðvitað eiga allir að stuðla
að heyra til undantekninganna.
Þó að bessi \)3ónusta sé boöin
út ókeypis nú, þá kostar hún
fjöldann óhemju fé. Flestir
Xjfötufy&x Götu
Yfirlýsing umferðarlögregl-
unnar nú um ófullnægjandi Ijósa
útbúnað mikils borra bifreiða er
því jafnframt yfirlýsing um að
einhver hinna mörgu bílaverk-
stæða hafi tekið peninga fyrir
ófullnægjandi þjónustu að því
að því að hafa bifreiðar sínar
í lagi, en hins eiga bifreiða-
eigendur einnig kröfu til aö sú
þjónusta sem þeir kaupa sé í
lagi almennt, þó auðvitað geti
átt sér stað mistök á þessum
sviðum sem öðrum. En það á
verða að skreppa frá vinnu, ann
að hvort á eigin kostnað eða
fyrirtækja sinna, og sú er
reynslan af bílaverkstæðum
borgarinnar að flest verkstæðin
eru yfirleitt yfirhlaðin af verk-
efnum undir venjulegum kring-
umstæðum hvað þá þegar stefnt
er til þeirra öllum bifreiðum
borgarinnar á einni viku.
Þessar ljósastillingar á að
framkvæma á Iengri tíma en
einni viku, svo að bifreiðaeig-
endur komist hiá að bíða tím-
unum saman, því það kostar líka
peninga. Einnig eru meiri líkur
til að Ijósastillingin verði ekki
handvömm öðru sinni, ef hæfi-
legur tími er til framkvæmd-
arinnar.
Fyrst það er augljóst nú, að
mikill þorri bifreiða sé með ó-
fullnægjandi Ijósaútbúnað, þá
er sjálfsagt að láta Iagfæra síört,
en það er áreiðanlegt, að sú lag-
færing verður ekki framkvæmd
í einni viku svo að vel fari.
Þrándur í Götu.
t