Vísir - 31.10.1968, Blaðsíða 5
V1S IR . Fimmtudagur 31. október 1968.
■V* .8B8S4L -***rqwawaw
Sparið tímann
— með húsráðum dagsins i dag
^slMsMSss;
llTúsráð þurfa ekki alltaf að
vera frá þ\. . gamla daga
til þess að koma að gagni. í
sænsku kvennablaöi er dálkur,
sem er eingöngu helgaður hús-
ráöum og miðla þær húsmæður,
sem senda til hans ráðlegging-
ar, öðrum af reynslu sinni. Hér
á eftir fara nokkur þessara hús-
ráða þar sem ráðin er bót á
ýmsum vandamálum hversdags-
ins.
• Það getur verið erfitt að ná
kertum úr kertastjakanum, þeg-
ar þau hafa brunnið langt nið-
ur. Skrúfið tappatogara i kertis-
stubbinn og dragið hann út, þá
gengur það eins fljótt fyrir sig
og þegar korktappi er dreginn
úr. Maður sleppur einnig með
þessu við vaxmolana.
• Annað ráð varðandi kerti.
Kerti, sem eru látin standa á
borðum eru mikið í tízku um
þessar mundir. Til þess að koma
í veg fyrir þaö, að þau rispi
borðiö og skilji eftir sig vaxfar
er sett ein teiknibóla neðan i
hvert kerti.
• Það getur reynzt erfitt að
hreinsa nýjar kartöflur, sem
hafa verið í geymslu nokkra
daga. Látið þær í kalt vatn stund
arkom og þá er auðvelt að ná
óhreinindunum af.
• Þegar maður þarf aö fletja
kökudeig er gott að setja deigið
milli tveggja plastarka, t. d.
tveggja stórra plastpoka, sem
hafa verið klipptir í sundur. Það
gengur þá mjög vel að fletja
kökurnar og þið losnið við allt
deig á kökukeflið og boröið, auk
þess verða kökurnar þunnar og
góðar.
• Það gengur helmingi hraðar
að þeyta rjómann, ef maður set-
ur skálina í ískalt vatn meðan
maður þeytir.
• Maður kemst hjá málningar-
slettum á gluggum og gleri, ef
maður setur þunnt lag af sápu
á glerið. Það er auðvelt að þvo
það burtu, þegar liturinn hefur
þomað.
• Skemmtilegar og fljótiegar
í saumi em svuntur, sem saum-
aðar eru úr frottéhandklæðum
í hæfilegri stærð. Saumið bara
einn saum í annan kantinn og
þræðið mittisbandið í gegn.
• Þegar þarf að sautna úr
galloni eða öðru efni, sém renn-
ur, er hægt að líma sauminn
niður með límbandi og þá reyn-
ist auðvelt að fá sauminn þráð-
beinan.
• Ef sósan eða jafningurinn
hefur orðið of þunnt, hrærið þá
ofurlitlu af kartöfluflysjum í.
Það gengur fljótar fyrir sig en
að setja í meira mjöl þar sem
það þarf að sjóða í fimm mín-
útur en flysjumar þurfa aðeins
að þrútna ofurlítið. Þetta ráð er
einnig gott, þegar bjarga -þarf
súpu.
• Hræra má skyriö út með
mjólk og ávaxtasafa og e. t. v.
kaupa meira magn í einu og
geyma í fry^tinum.
• Þvoið koparhluti upp úr
heitu vatni, sem sett hefur verið
í uppþvottaefni og sítrónusýra.
Koparinn verður skínandi hreinn
og gljáandi án þess að þurfi að
pússa hann. Skolið á eftir og
þurrkið.
• Notið tvær rykþurrkur við
að jSurrka af. Hristið úr
þeim báðum í einu og vinnan
gengur tvöfait hraðar.
• Þegar smábörnin vilja borða
sjálf setjið þá diska og giös á
plastbakka með kanti. Skolið
síðan af plastbakkanum í stað
þess að þurrka af borði, stól og
gólfi.
• Það er hægt að koma í veg
fyrir það að buxumar poki á
hnjánum með því að sauma
taftstykki innan í rétt við hnéð
og festa í hliöarsaumunum.
• Geymið málningarpenslana í
plastpoka eða dós með loki milli
þess sem málað er. Oftast þarf
að mála fleiri en eina umferð
yfdr flötinn og það er gott að
sleppa við að þvo penslana á
milli þess sem þeir em notað-
ir.
• Fljótlegur fiskréttur: Lauk-
skífa látin krauma smástund á
pönnunni. Fiskflak eða sneiðar
af frystum fiski settar í salt,
pipar, 1 dl tómatkraft, sólselju
og síðast mjólk, sem nærri þek-
ur fiskinn. Látið krauma í tíu
mín. Borið fram með kartöflu-
stöppu.
• Það gengur fljótar fyrir sig
að afhýða lauk, ef maður setur
hann eitt augnablik í heitt vatn.
PENINGAR
Kaupi veðtryggða víxla kr. 100—500 þús, 3ja
—6 mánaða — Tilboð merkt „Viðskipti —
1648“ sendist augld. Vísis strax.
BRONCO '66
lítið ekinn, Volkswagen ’56, Volkswagen ’63
til sýnis og sölu í dag.
Bíla og búvélasalan.
við Miklatorg, sími 23136.
TIL LEIGU
nýtt raðhús nú þegar. — Uppl. í síma 21667
milli kl. 7 og 9 í lcvöld og næstu kvöld.
FELAGSLIF
SKÖVERZLUN
ffitwbs
KARLMANNA
KULDASKÓR
NÝKOMNIR
PÓSTSENDUM.
SKÓVERZLUN
PÉTURS
ANDRÉSSONAR
Æfingatafla knattspyrnudeildar
K.R.
5. flokkur
Sunnudaga kl. 1 C
Mápudaga kl. 6.55 A-B
Miðvikudaga kl. 5.15 D
Föstudaga kl. 6.05 A-B
4. flokkur
Sunnudaga kl. 1.50 A-B
Miðvikudaga kl. 6.55 A
Föstudaga kl. 6.55 B
3. flokkur
Sunnudaga ki. 2.40
Miðvikudaga kl. 7.45
2. iokkur
Mánudaga kl. 9.25
Fimmtudaga kl. 9.25
Meistara- og 1. flokkur
Mánudaga klf 8.35
Fimmtudaga kl. 10.15
„Haröjædar"
Mánudaga kl. 7.45
FRAMLEIÐENDUR:
TIELSA, VESTUR-ÞÝZK
GÆÐAVARA OG
JÓN PÉTURSSON
HÚSGAGNA '
FRAMLEIÐANDl
IsIalslsIálaHElsiIálsiSllIsIaláliIatalsB
lELDHÚS- 1
1 BiH |
bi _ k ig
Bllálálalálálálálálalálalálálá^ii lálála
ifí KAUPIÐ Á FÖSTU VERÐI
ífc STAÐLAÐAR
ELDHÚSINNRÉTTINGAR
ERU ÓDÝRARI, FALLEGRI
OG ÖLL TÆKI FYLGJA
% HAGKVÆMIR
GREIÐSLUSKILMÁLAR
ODDUR HR
UMSOÐS-
OG HEILDVERZLUN
KIRKJUHVOLI
SlMl 21718 og 42137
FULLKOMIÐ SÝNINGARELDHÚS í KIRKJUHVOLI
u