Vísir - 15.11.1968, Side 1
58. árg. — Föstudagur 15. nóvember 1968. - 259. tbl.
9 Hjólreiðamaður, sem hjólaði austur Suöurlandsbraut í morg-
un, varð fyrir jeppabifreið, sem ekið hafði niður Hallarmúlann og
beygði til vesturs inn á Suðurlandsbraut. Eyðilagðist reiðhjólið,
en pilturinn á hjólinu slapp án meiðsla. Ökumaðurinn bar því við,
að hann hefði ekki séð piltinn, en það er orðið algengasta við-
kvæði ökumanna, sem lenda f óhöppum.
Gott heilsufar
/ Reykjavík
— Það má segja, að heilsu-
farið f borginni sé gott þessa
dagana, sagði Bragi Ólafsson,
aðstoðarborgarlæknir í viðtali
Stal víni
úr Naustinu
Brotizt var inn í Naustið f nótt
og stolið 22 flöskum af áfengi.
Þjófurinn hafði gengið á hirzlur
með rofjárni í leit að verðmætum
og unnið mikil spiöll á bamum
uppi á lofti, en einnig hafði hann
reynt að brjótast inn í tóbaks-
hirzlur veitingahússins.
Varla er mánuður liðinn, síðan
brotizt var inn í Naustið og stoliö
áfengi, en grunur leikur á því, að
þarna sé sami þjófurinn á ferö-
inni, því í fyrra skiptið náðist þjóf-
urinn ekki.
Vantraust
Forustumenn stjórnarandstöðu-
flokkanna, þeir Ólafur Jóhannes-
son og Lúðvík Jósefsson, munu á
mánudaginn leggja fram á Alþingi
tillögu um vantraust á ríkisstjórn-
ina. Útvarpsumræöur verða um til
löguna, svo sem vandi er til.
Svo sem kunnugt er, telia stjóm
arandstæðingar ríkisstjórnina bera
ábyrgð á efnahagsvanda þjóðarinn-
ar, og vilja þeir, að stjórnin fari
frá.
’við Vísi í morgun, og megum
við vera ánægð. Það er ekki mik
ið um þessa venjulegu kvilla,
kvef og hálsbólgu og þess hátt-
ar nú.
Aðstoðarborgarlæknir taldi þetta
geta stafað af þvf að óvenju gott
veðurfar hefur verið undanfarið.
Á listanum yfir farsóttir í Reykja
vfk vikuna 26. okt. til 2. nóv. er
mest um hálsbólgu 'og kvefsótt
80 og 74 tilfelli af hvoru, sem er
ekki talið mikið í borg á stærð við
Reykjavik.
Banna skipum sínum veiðar
norðan við Island í vetur
Eigendur stærsta togaraflota
Bretlands, Associated Fisheries,
hafa ákveðið að senda ekki skip
sín til veiða norðan við ísland
í vetur. Hefur togurum þeirra
verið skipað að halda sig sunn-
an við Norðurskautsbauginn á
veiðum sínum við lsland yfir
vetrarmánuðina desember, janú-
ar, febrúar og marz.
Ástæðan er niðurstaða þeirra at-
hugana, sém að undanfömu hafa
verið gerðar á brezku togaraslysun-
um við Norðurland í fyrravetur.
Niðurstaða þeirra athugana er sú,
að tvö af skipunum, sem fórust hér
við land, togararnir Ross Cleveland
og Kingston Peridot, hafi sokkið
með samtals 38 mönnum vegna
þess að stöðugleiki þeirra var ekki
nægjanlega mikill til þess að þola
íshleðsluna, storminn og öldugang--
inn.
Togarahringurinn AF hefur líka
fariö fram á það aö stöðugleiki
skipa hans verði rannsakaður og
hvemig megi bæta hann.
VOKNUÐUM VIÐ OGUR-
LEGAN HÁVAÐA
— />egar mörg hundruð metra aurskriða féll
fáeina mefra frá bænum, segir bóndinn i
Seldal i Norðfirði
^ Viö heyrðum miklar
drunur, rétt um það
leyti, sem við vorum að
fara að sofa, annars var nú
lítið sofið, því að maður
bjóst alltaf við þessu þá og
þegar.
Þannig sagði Guðlaugur Friðriks
son, bóndi í Seldal í Norðfirði frá,
þegar Vísir náði tali af honum í
morgun, en f fyrrakvöld féll gífur-
leg aurskriða úr brekkunum ofan
við bæinn, yfir túnið og girðingar.
— Skriðan féll aðeins fáeina
metra frá bænum. Aðalhlaupiö sat
eftir hér skammt ofan við bæinn,
sagði Guðlaugur, en aurinn rann
hér niður allt tún, fyllti skurði og
braut niður girðingar. Hér er þykkt
lag af aur yfir túninu.
Vísir í
vikulokin
fylgir blaðinu á morgun
til áskrifenda
Þetta var mörg-hundruð metra
breitt, sagði Guðlaugur, þegar hann
var spurður um stærðina á hlaup-
inu, og það staðnæmdist ekki fyrr
en héma í ánni fyrir neðan bæinn
og flaut auövitað áfram eftir henni
niöur í sjó. Niður að ánni eru lfk-
lega 500 metrar, gæti ég trúað.
Guðlaugur sagði að hlaupið hefði
vísast stórskemmt bæinn heföi það
komið á hann.
Talsverðar skemmdir urðu á
húsum á Neskaupstað vegna vatns-
elgs og rann vatn undan hlíðinni f
gegnum eitt hús, svo að yfirgefa
varð það. Vegasambandslaust er
enn við Neskaupstað og er f ráði
að gera bráðabirgðavað yfir Norð-
fjarðará. Ríður á miklu að staður-
inn komist í vegasamband, því að
söltunarstöðvamar em að verða
tunnulausar og nú berst mikiö af
síldinni, sem veiðist einmitt til
Norðfjarðar.
Meira af hroli-
vekjum í sjón-
varpinu í vetur
4= Sjónvarpið mun halda áfram að
flytja framhaldsmyndaflokka
líka þeim, sem nú er nýlokiö, Mel-
issu, og varð ákaflega vinsæll með-
al áhorfenda.
* Næsta þriðjudag verður nýr
flokkur eftir sama höfund tek-.
inn til meðferðar. í þeim flokki em
þrjár sakamálasögur, sú fyrsta heit-
ir „Leitin að Harry“ og verður sýn-
ingum á þeirri mynd lokið fyrir jól.
Aðalhlutverkið leikur Jack Hedley. ;
Tveir II ára teknir i nóft fyrir innbrot:
BRUTUST INN í
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Tveir ellefu ára gamlir drengir
vora handteknir í nótt, grunaðir
um að vera valdir að innbroti í bún
ingsherbergi Þjóðleikhússins, en
þaðan var stolið í gærkvöldi ávis-
unum og fleira smávegis. Dreng-
imir viðurkenndu að hafa stolið
veski fyrr um daginn frá einum
starfsmanni heildverzlunarinnar
Heklu, en í því voru um 5000 kr.
i peningum, auk ávfsanaheftis.
Helming peninganna höfðu dreng-
irnir eytt, þegar þeir fundust.
,,Hef ekki efni á ai selja varahluti
fyrír hálfvirði"
— segir Albert Guðmundsson, sem
hefur lokað Renault-umboðinu
„ÞAÐ ERU TVÖ ÁR síðan ég
sagði Renault-umboðinu upp,
en samkvæmt samningi við
Renault-verksmiðjurnar á að
vera 6 mánaða uppsagnar-
frestur á umboðinu. Renault-
verksmiðjurnar hafa því feng-
ið fjórum sinnum lengri tfma
en tilskilið er til að finna nýj-
an umboðsmann. Það er senni
lega tóm vitleysa í mér að
hafa ekki hætt fyrir tveimur
árum í stað bess að halda
þessu gangandi allan þennan
tíma,“ sagði Albert Guð-
mundsson umboðsmaður Ren
ault hér á Iandi í viðtali við
Vísi í morgun, en hann hefur
nú Iokað umboðinu.
Ég hélt þessu gangandi með-
an verksmiðjurnar voru aö
finna nýjan umboðsmann hér á
landi til þess að brúa bilið í
varahlutaþjónustu við Renault-
eigendur, til þess aö bregðast
þeim ekki, sem ég hef selt
bifreiðir. Ég hefði reynt að
halda umboöinu opnu einhvern
tíma ennþá, ef þessar ráöstaf-
anir ríkisstjórnarinnar hefðu
ekki komiö til, en ég hef ekki
efni á því að selja varahlutina
fyrir hálfviröi. Ég hef hrein-
lega ekki efni á því að borga
meira með varahlutunum.
Verkstæðið veröur opið á-
fram. fyrst um sinn þannig, að
hinir um 650 Renault-eigendur
geta fengið þjónustu áfram.
Varahlutir verða afgreiddir til
verkstæöisins, en ef menn vilja
ekki skipta við verkstæðið af
einhverjum ástæðum, get ég
pantað varahluti fyrir þá, sem
þess óska, en þeir verða einnig
að greiða það, sem þeir kosta.
Ég tel það mjög miður að
kastað skuli vera hnútum í við-
gerðamennina á verkstæðinu,
þó að umboðinu hafi nú verið
lokað, eins og gert var í einu
Reykjavíkurblaðinu í morgun.
Þetta er samvizkusamir og góö-
ir menn og eiga ekki slikar að-
finnslu skiliö, sem þar kemur
fram.
Aöspuröur um hvaða ábyrgð
Renaultverksmiðjurnar heföu
gagnvart Renaulteigendum,
sagði Albert að hann teldi, aö
verksmiðjunum bæri að sjá fyr-
ir varahlutaþjónustu. Annars
ættu menn kannski frekar að
leita til ríkisins, frekar en til
þeirra, sem flytja bifreiöimar
inn. Ríkið leggur á 3. hundrað
prósent á bifreiðirnar, en álagn-
ing innflytjenda er bundin við
5,5% og lækkar kannski.