Vísir - 15.11.1968, Side 2
2
VÍSIR . Föstudagur 15. nóvember 1968.
Fyrsta keppnin i júdó i gærkvöldi:
,Stefnum að keppnum við önnur iönd
— segir Sigurður Jóhannsson,
formabur Júdófélagsins
■ Á fimmtu hæð fisk-
iðjubáknsins á Kirkju-
sandi er stunduð jap-
önsk menning, eða einn
af snörum þáttum henn-
ar, júdó. Þessi íþrótt hef-
ur um nokkurra ára
skeið verið iðkuð hér á
landi, en það var fyrst í
gærkvöldi að fært þótti
að stofna til kappmóts í
íþróttinni.
„Við höfum aldrei fyrr átt
svo marga ágæta júdómenn“,
sagði Sigurður Jóhannsson for-
maður Júdófélags Reykjavíkur
1 gær, eftir að þessu fyrsta
móti félagsins lauk, en 16
keppendur tóku þátt i 30 glím-
um þetta kvöld. Fimm kepp-
endanna höfðu áður keppt á
erlendum mótum, m. a. einn við
góðan orðstír, Bjarni Björnsson,
sem var með á háskólamóti í
Bretlandi i fyrra.
„Þetta er byrjunin á frekari
keppnum í þessari grein“. sagði
Sigurður. „Við stefnum að því
að keppa síðar við önnur lönd
í júdó. Norðurlandamótiö verö-
ur næst haldiö 1970 í Stokk-
hólmi og þar verðum við meðal
þátttakenda og hefur þátttaka
okkar verið samþykkt, enda þótt
viö séum ekki beinir aðilar að
Norðurlandasambandinu".
Sigurvegarar í fyrstu júdó-
keopninni urðu þessir:
1 1. flokki (meistaraflokkur
er efsti flokkurinn, en ekki var
keppt í þeim flokki nú): Svavar
Carlsen, sem lagði alla sína
keppinauta.
2. flokkur: Hörður Harðarson,
en í 2.—3. sæti komu tvíbura-
bróðir hans Haukur og Ólafur
Ingólfsson jafnir.
1 3. flokki var ekki keppt,
en í 4. og 5. flokki vann Rúnar
Gunnarsson, sem kunnur er
fyrir ágætar kvikmyndir sínar
í sjónvarpinu. Lagði hann báða
keppinauta sína.
í flokki byrjenda, vann Guð-
mundur Ottósson, vann alla 6
keppinauta sína, en hann er
mjög efnilegur nýliði, 22ja ára
að aldri. Næstur honum varð
Jóhann Kristjánsson með 5.
vinninga en hann er 17 ára og
sömuleiðis prýðis efni.
í húsi Júpiters og Mars er
líf og fjör. Auk júdómannanna,
sem eru oft mjög fjölmennir,
urðu alls um 140, þegar flest
var í fyrra, er alls kyns starf-
semi sem ekki á skylt við fisk-
inn og þá allt of sjaldgæfu
peningalykt, sem hann framleið-
ir og sendir upp á hæðir húss-
ins, þama voru t. d. í gærkvöldi
fjölmennir flokkar skylminga-
manna, og á neðri hæð í hús-
inu beljaði bítlahljómsveit af
miklum móð. Um eitt skeið
læröu menn líka dansspor í
þessu húsi, en það mun nú lið-
in tíð.
Það er ánægjulegt, ef nýjar
íþróttir eins og júdó og skylm-
ingar eru að sækja á í heldur
fábreyttu félagslífi okkar. Við
höfum undanfarna áratugi ver-
ið allt of íhaldssamir í íþrótta-
greinavali og nú er mál til
komið að fitja upp á meiri fjöl-
breytni, — með því móti einu
verður hægt að finna hverjum
manni sína íþróttagrein, — fót-
bolti, frjálsar íþróttir og hand-
bolti henta nefnilega ekki öll-
um. — jbp —
í > ' v'% f
,'•> v .....................'*!■ .
v" ■ fri-. •• .• ' .W8HIUI)
Bræðurnir Guðbjörn (t. v.) og ÓIi B. að horfa á leik, þar sem iið
þeirra voru að keppa.
Óli B. fimmtugur
Óli B. Jónsson, þekktasti knatt-
spymuþjálfari landsins, heldur upp
ð fimmtugsafmællð sitt suður á
Miami-strönd í Flórída í dag.
Óli B. hefur komið víða við. Ég
minnist hans sem þjálfara persónu-
lega hjá K.R. og síðar Þrótti, en
auk þess hefur hann þjálfaö Kefla-
vík, Vestmannaeyjar og Val, —
og það var sama hvar Óli B. kom
við, hann vann alls staðar gott
Keppendur á fyrsta júdómðtinu ásamt starfsmönnum.
Schmidt kom ekki!
,Ég er bjartsýnn", segir Axel Einarsson,
formaður HSI fyrir leikina
B Þýzka landsliðið kom til
Reykjavíkur í gærdag, — og
dómararnir sænsku einnig. Hans
Schmidt, aðalstjarna þýzka
landsliðsins, kom ekki með lið-
inu, meiddist iila í leik skömmu
verk, sem kom fram á betri ár- j fyrlr brottförina. Schmidt, sem
angri liðanna, sem hann þjálfaði. j hefur 19 landsleiki að baki, átti
Nú hefur Óli tekið við þjálfun I ekki hvað minnstan þátt í að
síns gamla félags, K.R., og ekki j sigra fsland í leikjunum í fyrra
efum viö að K.R. haföi gert rétt ■ í
þegar það „valdi íslenzkt" í þessu j
tilliti.
:ýzkaiandi.
Þjóöverjarnir búa á Hótel Sögu,
a. íþróttahöllina, og í hádeginu
ætla þeir að synda í útisundlaug
að íslenzkum sið, enda þótt nú sé
kominn vetur, en slíkt mundi þykja
mesta fásinna I þeirra heimalandi.
„Ég er bjartsýnn á úrslitin,“
sagði Axel Einarsson, formaður
HSÍ í viðtali i gær, „ég held að
við vinnum. Þessi leikur fer mikið
eftir varnarleiknum, ég veit að
skotmennirnir standa sig. Það gera
Þjóðverjar hins vegar líka, og því
_ jbp — I og í dag skoða þeir Reykjavík, m. I ríður svo mikið á vörninni og
markvörðunum“.
Mikill áhugi er greinilega fyrir
leikjunum og búast má við fjöl- ■'
menni báða leikdagana, á laugar-
dag og sunnudag. Sala aðgöngu-
miða er hafin hjá bókabúðum Lás-
usar Blöndal.
OPIÐ TIL
KLUKKAN
10 í KVÖLD
Skolið núna
Kaupið núna
s £^ct<ar?cX-> öí) i ry
Simi-22900 Laugaveg 26 f
Skotkeppni
um helgina
Skotfélag Reykjavíkur hyggst'
halda síðasta útimót ársins uppi í
Leirdal um næstkomandi helgi, ef
veður leyfir. Verður þá keppt um
Goðaborgarstyttu félagsins, sem
Niels Jörgensen verzlunarmaður
gaf félaginu til þess að keppa um
i skeet, þ. e. a. s. keppendur reyna
að hæfa með hagiabyssu leikskífu,
sem varpað er til flugs af kastvél-
um.
Þessi íþrótt sem enn er lítt kunn
hér á landi hefur verið stunduð
um nokkurra ára skeið af all-:
mörgum félagsmönnum skotfélags-
ins og má búast við spennandi
keppni um helgina ef veöurguðirnir'
leyfa.
Verði fært veður verður keppn-
in eftir hádegi um kl. 2 laugardag-
inn 16. þ. m. en frestast ella til
sunnudagsmorguns (17. þ. m) —
Væntanlegir keppendur eru beðmv
að hafa samband við flugskífu-
nefnd í síma 50859 eða 41429.