Vísir - 15.11.1968, Side 6
V1SIR . Föstudagur 15. nóvember 1968.
TONABIO
Víðfræg og snilldar vel gerö,
ný, amerisk gamanmynd. —
Myndin er gerð af hinum
heimsfræga leikstjóra Billy
Wilder Walther Matthau fékk
„Oskars-verðlaunin“ fyrir leik
sinn í þessari mynd.
Jack Lemmon
Walther Matthau.
Sýnd kl. 5 og 9.
NÝJA BÍÓ
r HER-l
[NAMSI
Iarinj
sEam histi
BP1
.... ómetanleg heimild .. stór
kostlega skemmtileg. .. . Mbl.
..., Beztu atriði myndarinnar
sýna 'ureign hersins við
grimmdarstórleik náttúrunnar
í landinu. . Þjóöviljinn.
Verðlaunagetraun
Hver er maðurinn?
Verðlaun 17 daga Sunnuferö til
Mallorca fyrir tvo.
Bönnuð yngri en 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
BÆJARBÍÓ
Doktor Strangelove
Æsispennandi amerísk stór-
mynd með hinum vinsæla
Peter Sellers i aðalhlutverki.
íslenzkur texti.
Synd kl. 9.
Miðasala frá kl. 7 .
HATNARBÍÓ
Demantaránið mikla
Hörkuspennandi, ný litmynd
um ný ævintýri lögreglumanns
ins Jerry Colton, með
George Nader
íslenzkur texti.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
WOÐLEIKHUSIÐ
Vér morðingjar
Sýning í kvöld kl. 20
Fáar sýningar eftir.
Puntila og Matti
Sýning laugardag kl. 20
Hunangsilmur
Sýning sunnudag' kl. 20
Aðeöngumíðasaian opin frá kl
.315 til 20. Sími 1-1200.
MINNING:
ÁRMANN SVEINSSON, stud. jur.
Hvað er langlífi?
Lífsnautnin frjóva,
alefling andans
og athöfn þörf.
Margoft tvítugur
meira hefur lifaö
svefnugum segg,
er sjötugur hjarði.
(Jónas Hallgrímsson).
Ármann Sveinsson er látinn.
Hann varð aöeins 22ja ára
gamall, en markaði á skammri
ævi dýpri og varanlegri spor en
margir þeir, sem lengur lifa.
Við hann voru bundnar glæstar
vonir. Því er mikill harmur að
okkur öllum kveðinn við hið
sviplega fráfall hans.
Ármann hafði eldlegan áhuga
á málum þjóðar sinnar, og mál-
efnum stúdenta, og þótt ungur
væri að árum, bjó hann yfir
meiri þekkingu á íslenzkum
þjóðmálum en flestir aðrir.
Hann barðist á mörgum víg-
stöðvum, bæði innan samtaka
stúdenta og samtaka ungra sjálf
stæðismanna. En þótt kraftar
haAs væru þannig margskiptir,
var hann alls staðar sama drif-
fjöðurin, og ósérhlífni hans við
þau störf, sem hann tók sér
fyrir ''endur, var við brugðið.
Við núverandi stjórnarmenn í
VÖKU, félagi lýðræðissinnaðra
stúdenta, nutum þeirrar gæfu
að fá Ármann Sveinsson sem
okkar forustumann s.l. vor. Við
tókum til starfa glaðir í bragði
með brennandi hugsjónir, fullir
af áhuga og eldmóði æskunnar.
Ármann var tvímælalaust okk
ar " mestur. hugsjónamaður ! , ,og
bjó yfir einstökum hæfileika til
að laða .am áhugamál, sem
við hinir bárum í brjósti, og
. koma þeim í þann búning, að
þap vektu áhuga annarra. Hann
birtist okkur.sem harður mála-
fylgjumaður, en maður, sem
virti skoðanir andstæðinga
sinna. Framkoma hans mótaðist
af lipurð, drengskap og trausti
til samstarfsmanna sinna. Hann
var gæddur öllum þeim kostum,
sem sannan foringja mega
prýða.
Undir styrkri stjórn Ármanns
Sveinssonar var hafinn undir-
búningur að framboði VÖKU og
stefnumótun vegna kosninga til
stjórnar Stúdentafélags Háskóla
íslands snemma í sumar. Þar
komu forystuhæfileikar hans
skýrt í ljós. Hann krafðist mik-
ils af öðrum, en þó meira af
sjálfum sér. Sigur VÖKU í
þessum kosningum var að
mestu hans vefk.
Kunnmgsskapur okkar Ár-
manns Sveinssonar hófst fyrir
tæpum fimm árum, er við vor-
um nemendur við Menntaskól-
ann í Reykjavík. Æ síðan reynd
ist hann mér traustur og góöur
félagi, úrræðagóður, þegar ég
leitaði til hans, og eindæma
hjálpfús. Á samstarf okkar bar
aldrei skugga, fyrir því minn-
ist ég hans með hlýhug og
þökk.
Ármann Sveinsson kveikti
þann áhuga í brjóstum okkar,
sem með honum unnum, að
seint mun slokkna. Störf hans
og hugsjónir munu verða okk-
ur sem lýsandi kyndill inn í
óráðinn heim framtíðarinnar.
Skarð er fyrir skildi í fylking-
um Vökumanna, sem seint verð-
ur fyllt.
Ég votta Helgu Kjaran, ekkju
Ármanns Sveinssonar, syni
þeirra Birgi, svo og ættingjum
öðrum einlæga samúð í sorg
þeirra.
Sævar Bjöm Kolbeinsson.
Jjað fór fyrir mér sem fleirum,
þegar fréttist um andlát
Ármanns, að ég trúði ekki þeirri
harmafregn.
Það gat ekki verið að einn
svipmesti og dugmesti forystu-
maður stúdenta væri látinn, aö-
eins 22ja ára að aldri.
Það gat ekki verið, að glæsi-
legum félagsmálaferli vpri lok-
ið, Ármann átti svo inörgum
verkefnum ólokið.
— En eigi má sköpum renna.
Ég var svo lánsamur að eiga
í félagsmálum náið samstarf við
Ármann á síöastliðnum þremur
'árum eöa frá því hann kom í
Háskólann, en einkum þó á
þessu ári Ekki var hægt annað
en ci.'.st að kappi, ósérhlífni
hans og einurð, enda voru af-
köst hans firnamikil. Mig fýsir
að nefna hér fáein dæmi um
afköst hans á sviði félagsmála
stúdenta aðeins frá upphafi
þessa árs. I febrúar hafði hann
forystu um og skapaði málefna-
grundvöllinn fyrir ályktun
VÖKU, félags lýðræðissinnaöra
stúdenta um flokksræöi og varð
landskunnur fyrir að veröleik-
um. í apríl varð hann formaður
VÖKU og tók skömmu síðar
sæti í stúdentaráði, sem fulltrúi
lagadeildar. í ágúst samdi hann
að mestu samning þann, sem nú
gildir um samstarf stúdenta-
ráðs og Sambands íslenzkra
stúdenta erlendis. í september
og október stjórnaði hann kosn-
ingabaráttu VÖKU í kosningun-
um til Stúdentafélags Háskól-
ans, sem lauk með sigri VÖKU.
Auk þess vann hann mikilvæg
störf fyrir Samband ungra sjálf-
stæðismanna í sumar og fleira
mætti nefna.
— Nú er þessi einarði baráttu
maður að velli lagður, langt
fyrir aldur fram. — Það er
sem storm hafi lægt. —
— Stúdentar og einkum
VÖKU-félagar standa í eilífri
þakkarskuld við Ármann Sveins
son fyrir störf hans í þágu mál-
efna þeirra.
— Ármann, ég þakka þér,
ssnl'ai'mennur stúdent og yinur,
fýrir alltof 'skamma samveru og
sámvinníí; 'Megi ötul barátta þín
veröa okkur lifendum fordæmi
og hvatning. —
— Ég votta Helgu Kjaran og
ungum syni þeirra, Birgi, svo og
öðrum aðstandendum og vinum,
mína dýpstu samúð.
Júlíus Sæberg Ólafsson
stud. oecon.
t dag verður til moldar borinn
Ármann Sveinsson laganemi.
Fregnin um sviplegt fráfall hans
10. nóvember síðastliðinn kom
sem reiðarslag yfir alla stúd-
enta við Háskóla Islands, og
þá einnig okkur, sem völdumst
ásamt honum á síöasta hausti
í stjóm Stúdentafélags Háskóla
’slands. Þar áttum við þvi láni
að fagna að starfa meö honum
og kynnast mætavel. Þegar
starfstímabiliö var á enda nú í
háust, vorum við þess fullviss,
að þau kynni ættu eftir að end-
ast lengi og verða jafnvel enn
betri. Við trúðum því, aö stúd-
entar ættu eftir að njóta góðs
af kröftum hans og áhuga á mál
efnum stúdenta, lands og þjóð-
ar. Við sjáum nú á bak honum,
snögglega og óvænt, og okkur
setur hljóöa.
í félagsstarfi kunna skoðanir
stundum að verða skiptar um
stefnu og starf. Svo var og í
félagi okkar. En leiðina að því
eftirsóknarveröa marki, að
efla samstöðu stúdenta og á-
hrif, þeim sjálfum og þjóöinni
til heilla, vildum við öll fara,
— og ekki sízt hann. Hann
fylgdi hugsjónum sínum og
skoðunum fast fram. En dreng-
skapur — mesti kosturinn í
hans fari — Ieiddi hann ávallt
fyrst á braut samkomulags og
skilnings á viðhorfum annarra.
Þessum eiginleika gæddur vann
hann hug og hjarta allra þeirra,
sem með honum störfuðu.
Af þessum sökum valdist
hann á stuttri ævi til fjölda
trúnaðarstarfa. Meðal annars
var hann forseti Framtiöarinn-
ar, málfundafélags Menntaskól-
ans í Reykjavík. í Háskóla ís-
lands átti hann sæti í stúdenta-
ráði og var starfandi formaður
Vöku, félags lýðræðissinnaðra
stúdenta. Hann átti sæti í stjórn
Stúdentafélags Háskóla íslands
síðastliöinn vetur og vann að
„uki að öðrum verkefnum á veg-
um félagsins. öll þessi störf
voru leyst af hendi með þeim
þrötti og prýði, er jafnan ein-
kenndi hann. Drengskapur hans
og störf öll skapa honum minn-
isvarða, sem ekki mun riða f
ólgusjó tímans.
Eftirlifándi eiginkonu hans,
Helgu Kjaran, og ungum syni
þeirra, Birgi, vottum viö dýpstu
samúð okkar. Við horfum til
baka með þakklæti í huga.
Stúdentar syrgja af heilum
hug.
Samstarfsmenn í stjóm S.F.H.Í.
1967—1968.
Ármann Sveinsson, stud jur.
Kveðja frá Stúdentaráði Há-
skóla íslands.
’jVfl'aðurinn með ljáinn hefur
skyndilega höggvið skarð í
raðir íslenzkra stúdenta. Það
10. síöa
STJÖRNUBÍÓ ULUGARÁSBÍÓ
Harðskeytti ofurstinn fslenzkur texti Sýnd kl. 5 og 9. Bönnuð innan 14 ára. Drepum, karlinn Hörkuspennandi ný amerisk mynd í litum með íslenzkum texta. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð börnum.
HÁSKÓLABÍÓ
LEYNIMELUR 13 í kvöld MAÐUR OG KONA laugardag Uppselt YVONNE sunnudag MAÐUR OG KONA þriðjudag Aðgöngumiðasalan í Iðnó er opin frá kl. 14. Sími 13191.
Endalaus barátta Stórbrotin og vel leikin lit- mynd frá Rank. Myndin ger- ist á Indlandi. byggð á skáld- sögu e.tir Ranveer Singh. Aöalhlut”erk: Vul Brynner Trevor Howard íslenzkur texti. Sýnd kl 5 og 9 Bönnuð innan 16 ára.
SAMLA BÍÓ |
1
WINNER OF 6 ACADEMY AWARDSl
MEIRÓGOLÐWVN'MAVER míuw
ACAflOPOWIPROOUCDON
DAVID LEAN'S FILM
OF BOHIS PAST£RNAKS
DOCTOR
ZHH^LGOIN-—v-‘—:XS6’
METR0C0L0R
Sýnd kl. 5 og 8.30.
AUSTURBÆJARBIO
Njósnari á yztu nöf
Mjög spennandi ný amerísk
kvikmynd i litum og cinema
scope.
íslenzkur texti.
Frank Sinatra.
Bönnuð innan 12 ára.
Sýnd kl. 5 og 9.
Eg
er kona II
Jvenju djörf og snennandi, ný
dö isk iitmvnd gerð eftir sam-
nefndr söt Siv Holms
Sýnd aðeins kl. 5.15.
'no ' oornurr nnan 16 ára
Leikfélag Kópnvogs
Ungfrú éttansjálfur
Höfundur: Gísli Ástþórsson.
Leikstjóri: Baldvin Halldórsson
Leikmynd: Gunnar Bjarnason
' Frumsýning n.k. laugard. 16.
nóv. kl. 8.30 í Kópavogsbíói.
Aðaöngumiðasalan er ODÍn frá
kl. 4.30. Sími 41955.
Fmmsýningargestir vitji miða
sinna í aðgöngumiðasölu Kópa
vogsbfós fyrir laugard.kvöld.