Vísir - 26.11.1968, Blaðsíða 7
V1SIR . Þriðjudagur 26. nóvember 1968.
V
morgun
útlönd í morgun
útlönd
morgun
• §
útlönd í morgun
útlönd
Ráðstafanirnar til verndar frankanum
hyrjuðu að koma í Ijós í gær
— Horfurnar uppörvandi oð margra áliti,
en aðrir efagjarnir um frambúðarárangur
■ Opinber talsmaður í Bonn
sagði í gærkvöldi, að já-
Icvæði þeirra ráðstafana, sem
gerðar voru í síðastliðinni viku
í Bonn frankanum til stuðnings,
hefðu byrjað að koma í ljós í
gær.
■ Af hinu mikla fé, sem
streymdi tii Vestur-Þýzka-
Iands í fyrri viku, er menn bjugg
ust við, að markið yrði hækkað,
var eitt þúsund milljónum marka
skipt aftur í gjaldeyri annarra
þjóða.
Staða þeirra gjaldmiðla, frankans,
dollarans og pundsins, sem spá-
kaupmennskan bitnaöi á, batnaði í
gær. Meiri varúðar gætti í öllum
gjaldeyrisviðskiptum.
Lausar stöður
I Slökkviliði Reykjavíkur, sem veitast frá 1.
janúar 1969 að telja.
L Staða eftirlitsmanns í eldvamareftirliti.
2. Staða ritara (skrifstofustúlku).
3. Nökk'rar stöður bmnavarða.
Samkvæmt 10. grein Brunamálasamþykktar
fyrir Reykjavík, skal ekki veita stöður bruna-
varða öðrum en þeim, sem eru á aldrinum 21
—29 ára.
Lann samkvæmt kjarasamningi starfsmanna
Reykjavíkurborgar.
Eiginbandarumsóknir um stöður þessar á-
samt upplýsingum um náms- og starfsferil
smdist undirrituðum fyrir 8. desember n.k.
Reykjavík, 23. nóvember, 1968.
Slökkviliðsstjórinn í Reykjavík.
Hellu — Rangárvóllum
Sím-
Söluþjónusta - Vöruafgreiðsla ÆGISGÖTU 7.
ar 21915-21195.
Tvöfalt einangrunargler framleitt úr úrvals vestur-
þýzku gleri — Framleiðsluábyrgð.
LEITIÐ TILBOÐA -
Eflið ísienzkan iðnað. - Það eru viðurkenndir þjóðar-
hagsmunir.
Sveitarstjórastarf
Staða sveitarstjóra Patrekshrepps er hér með
auglýst laus til umsóknar frá og með 1. janú-
ar 1969.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og
fyrri störf, ásamt kaupkröfum, sendist undir-
rituðum, sem veitir nánari upplýsingar. Um-
sóknarfrestur til 10. desember n.k.
Patreksfirði, 20. nóvember 1968.
Oddvitinn í Patrekshreppi
Ásmundur B. Olsen.
Meðal hinna ströngu ráöstafana,
sem gripið hefur verið til í Frakk-
landi, er að Frakkar verða að skila
til Frakklands öllum gjaldeyri fyrir
útflutning. Ströngu eftirliti hefur
verið komið á með þessari ráðstöf-
un og öðrum, sem stjómin hefur
gripið til.
Willy Brandt utanríkisráðherra
Vestur-Þýzkalands vísaði í gær á
bug sem fjarstæðu getsökum um,
að vestur-þýzka stjórnin notaði
forða sinn af erlendum gjaldeyri til
þess aö auka stjómmáíaleg áhrif
srn í álfunni. Hann kvað afstöðu
vestur-þýzku stjómarinnar þá, að
velmegun nágrannaþjóðanna væri
mikilvæg velfamaði vestur-þýzku
þjóðarinnar.
I fréttum frá Washington segir,
aö þær 500 milljónir dollara, sem
Bandaríkin hafi lagt fram frankan-
um til verndar, skiptist þannig, að
Seðlabankinn — Federal Reserve
Bank — hafi lagt fram 300 milljón-
ir og ríkissjóður 200 milljónir.
Meðal þeirra, sem nú telja horf-
urnar uppörvandi, er Fowler fjár-
málaráöherra Bandarikjanna, en
fjármálamenn margir vestra eru
sagðir efagjarnari um, að jákvæöur
árangur þeirra ráðstafana sem
gripið hefur verið til, veröi varan-
legur.
Fowler gaf í skyn að bandarísk
aðstoð við frankann kynni að verða
aukin.
Forsætisráðherra Frakklands,
Couvé de Murville, gerir í dag ýtar-
lega grein fyrir því á þingi, sem
stjómin hefur gert frankanum og
efnahag landsins til vemdar.
Tollgæzla f Frakklandi hefur ver-
ið mjög aukin og f mörgum landa-
mærastöðvum hefur tollgæzlumönn
um verið fjölgað um helming og
menn úr sérþjálfaðri lögreglu til
taks þeim til aðstoðar. Þetta er gert
til þess að hindra smygl á gulli og
til aukins eftirlits með að lög verði
ekki brotin og hin nýbirtu fyrir-
mæli önnur og reglur.
London í gær: Fé það, sem að
undanfömu hefur streymt til Vest-
ur-Þýzkalands vegna orörómsins
um verðhækkun marksins, fór f gær
að streyma til annarra landa í
þeirra eigin gjaldmiðli svo tugum
millj. marka skipti. Af v.-þýzkri
hálfu er sagt, að sterkur orðrómur
og áróöur, sem átti rætur að rekja
til .Parísar, London og fleiri borga,
hafi leitt til hinnar miklu eftirspurn
ar á markinu. Endurtekið hefur
veriö af opinberri hálfu í Bonn, að
allt verði gert sem unnt er til stuðn
ings við frankann. Á vegum Efna-
hagsbandalags Evrópu hefur verið
birt tilkynning um stuðning við
frankann.
Staða frankans, punds og dollars
batnaöi í gær, — en varúð ein-
kenndi gjaldmiðilskaup.
1 París hefur verið tilkynnt
strangt eftirlit með allri gjaldeyris-
verzlun og tilfærslu á gulli og
ferðamannagjaldeyrir hefur verið
takmarkaður.
Þótt bandarísk stjómarvöld hafi
látið í Ijós vonir um batnandi horf-
ur á alþjóðapeningamarkaði, eru
fjármála- og túnkamenn ekki eins
bjartsýnir um varanlegan árangur,
og gefa nánar gætur að öllu, sem
áhrif kann að hafa á þessi mál.
SENDILL
Sendill á skellinöðru óskast til starfa milli kl.
7 og 8 á kvöldin.
DAGBLAÐIÐ VÍSIR
Aðal-
fundur
Landsmálafélagsins Varðar verður haldinn í
Sjálfstæðishúsinu fimmtudaginn 28. nóv. n.k.
kl. 8,30.
Fundarefni:
1. Venjuleg aöalfundarstörf
2. Lagabreytlngar
3. Gunnar J. Friðriksson, frkv.stj. flytur
erindi: Staða íslenzks iðnaðar í dag.
Á eftir verða umræður.
Stjómin.
• I NTB-frétt frá Genf í gær
segir, að ef til vill veröi Al- ■
þjóða Rauði krossinn aö hætta
hjálparstarfsemi sinni vegna fjár-
skorts. Þetta var í gær haft eftir
einum helzta ráðamanni stofnunar-
innar, Pierre Gaillard. Hann ræddi
við fréttamenn og kvað stofnunina
þurfa 9 milljónir svissneskra
franka fyrir miðbik desembermán- '
aðar, vegna flutningskostnaöar, en
til þess að geta framkvæmt áætlun
sína um aðstoð til febrúarloka
þarf stofnunin 22 millj. svissneskra
franka. Fjár er einkum þörf til
flutnings á þei.u birgðum, sem
stofnunin ræður yfir.
• Michel Stewart utanríkisráð-
herra og samveldismálaráð-
herra Bretlands er lagður af stað.
til Pakistan og Indlands og mun
hann eiga viðræður við ráðherra
þar um ýmis mál, svo sem fólks-.
innflutningsmálin. Ennfremur mun
hann ræða við þá um fyrirhugaöa
ráðstefnu forsætisráðherra sam-
veldisins í janúar.
• í neðri málstofu brezka þings- '
ins í gær gagnrýndi Edward
Heath ríkisstjórnina fyrir meðferð
hennar á efnahagsmálunum. Taldi
hann hana hafa sýnt, að hún væri
ekki fær um aö stjórna þeim mál-
um svo vel færi. — Jenkins fjár-
málaráðherra varð fyrir svörurn
Hann játaði, aö ekki hefði tekizt
að minnka óhagstæðan greiðslu- .
jöfnuö eins mikið og stjómin heföi
gert sér vonir um, en samt heföt
miðað í rétta átt. Hann kvað ráð-
stafanir þær, sem boðaðar voru i
fyrri viku til þess að minnka inn-
flutning og auka útflutning og
draga úr eyðslu vera beina afleið-
ingu ffármálata'eppunnar.
I
J.