Vísir - 26.11.1968, Qupperneq 16
Fyrsta gufuaflstöðin á tsiandi
verður væntanlega tekin í notkun í
íanúar n.k. Þetta er gufuaflstöð,
seni Laxárvirkjun lætur reisa i
U'arnarflagi viö Mývatri. Stöðin mun
framleiða 250ö kw, og þó að hún
sé lítil mun hún verða hagkvæm í
rekstri. Stöðin verður mikil nýjung
hér á landi, þö að ítalir hafi fram-
leitt rafmagn úr gufuorku um
margra ára skeið.
Nýlokið hefur verið að reisa
stöðvarhúsið í Bjarnarflagi, en upp
setning vélanna er að hefjast þessa
dagana. Ein borhola hefur veriö
gerð fyrir aflstöðina. Hún er rúmir
1100 metrar á dýpt og reyndi^t
botnhitinn um 28 stig. Óvíst er
enn um gufumagnið, en stöðin þarf
um 50 tonn af 260 stiga heitu
vatni. Þessi borhola hefur verið
i tengd við leiðslurnar til kísilverk-
smiöjunnar í bili, þar sem hún
; hafði ekki nægjanlega gufu fyrir. I
Nú er verið að bora aðra holu ;
í fyrir aflstöðina. Enn er að sjálf-
sögðu óvíst hvaða £rangur hún
gefur, en talið er sennilegt að ;
bora þurfi enn fjórar holur, mest. ,
Þessi
i| 170 upprennandi listamenn
jia einni og sömu skemmtun
-k Hjálparsjóður æskufólks heldur áfram að afla sjóðnum tekna.j!
og á laugardaginn mun sjóðurinn gangast fyrir skemmtun í Há-*I
skóiabíói í þessu skyni.
-k Þarna ir.un gefast tækifæri til að hlýða og horfa á 170 unga ogjj
upprennandi listamenn og konur, en þetta unga fólk er m. a. úrj*
nemendakór Kennaraskólans og hljómsveitum Tónlistarskólans, semjl
]>eir Björn Ólafsson, konsertmeistari, og Ingvar Jónasson, fiðlu-'J
leikari, stjórna.
★ Myndin að ofan er af ungum fiðluleikurum úr tónlistarskól-Ij
anum við æfingar.
landi, gufuaflstöð.
ISIR
uaguryso.
Mmm heiðrti
stádenfsir 1. des?
„Per ardua ad astra“ eða
„Enginn verður óbarinn biskup“
eru einkunnarorðin, sem letruð
u á Stúdentastjörnuna, en
hún er sérstakt heiðurstákn,
sem Stúdentaakademía mun i
fyrsta skipti veita 1. desember
a.k. á fimmtíu ára afmæli full-
veldis íslenzku þjóðarinnar.
í hinni nýskipuðu Stúdenta-
akademíu eiga sæti þrettán
stúdentar. Kver hinna sex há-
skóladeilda á þar tvo fulltrúa,
en forseti akademíunnar er til-
nefndur af stjóm Stúdentafé-
lagsins.
Stúdentastjaman skal veitt
slenzkum manni fyrir framúr-
skarandi starf á sviði vísinda,
mennta eöa lista. Undantekn-
ingu má gera og veita fleiri
mönnum Stúdentastjörnuna
saméiginlega ef þeir hafa leyst
af hendi í félagi viðurkenning-
irvert verkefni. Starfið skal
unnið einhvem tíma á næstu
imm árum fyrir veitingardag,
en heimílt er að taka tillit til
verka, sem unnin voru utan
bessara tf- marka. Við hátíð-
(ega athöfn á fullveldisdaginn
gerir forseti akademíunnar
grein fvrir ákvörðun hennar og
•’fhendir stiömuna.
50 ÁRA FULLVELDIS
VEGLEGAN HÁTT 1. DESE
□ FIMMTÍU ára full-
veldis verður minnzt
á veglegan hátt 1. des.
n.k. Á fundi með frétta-
mönnum í gær skýrðu
stúdentar frá fyrirhug-
aðri hátíðadagskrá.
Hátíðadagskráin hefst með
guðsþjónustu í Dómkirkjunni kl.
10.30, biskupinn yfir íslandi pré-
dikar. Kl. 14.30 hefst hátíða-
samkoma í Háskólabíói. Forseti
íslands, dr. Kristján Eldjárn, flyt
ur aöalræðuna. Formaður Stúd-
entafélags Háskólans, Ólafur
Guðmundsson, flytur ávarp, og
stúdentastjarnan verður afhent.
Stúdentakórinn syngur og Litla
lúðrasveitin leikur.
Um kvöldið verður efnt til full
veldisfagnaöar að Hötel Sögu.
Háskólarektor Ármann Snævarr
flytur þar ræðu, og auk þess
veröa flutt margs konar skemmti
atriði.
Á fimmtudag verður fluttur
útvarpsþáttur í tilefni fullveld-
isdagsins. Fjallar fyrri hlutinn
um þjóðfélagslegt hlutverk Há-
skólans. Síöari hlutinn fjallar
um það hverjar séu skyldur stúd
enta sem þjóðfélagslegs afls.
í tilefni 50 ára fullveldisaf-
mælisins hafa stúdentar gefið
út rit, sem nefnist „Mennt er
rnáttur", en það flytur 17 grein-
ar um starfsvið menntamanna.
Laugardaginn 30. nóvember
n.k. verður haldin listkynning f
Þjóðleikhúskjallaranum á vegum
bókmennta- og listkynningar-
nefndar stúdenta. Listkynningin
hefst með því að Jóhann Hjálm-
arsson ræðir um stöðu íslenzkra
nútímabókmennta.
Stúdentablaðið kemur út 1.
des. eins og venja er. Ritstjóri
er Magnús Gunnarsson, stud.
oecon. í ritinu eru aö þessu
sinni fjöldamargar greinar og
viðtöl, og þar að auki Ijóð og
minningargreinar.
— þrátt fyrir mikla aðsókn
• í kvöld er siðásta sýning i
Reykjavík á síðari hluta mynd-
ar Reynis Oddssonar um hernáms-
árin. Sýningar hafa nú staðið yfir
í sex vikur í Nýja bíói, en þar að
auki hefur myndin verið sýnd víða
um land.
Á næstunni verður haldið áfram
að sýna myndina úti á landi, en
þó verður gert hlé á þeim sýning-
um yfir jólin.
I Magnús Axelsson tjáði blaðinu,
' að fyrirsjáanlegt væri, að tap yrði
; á myndinni, þrátt fyrir góða að-
; sókn vegna gengislækkunarinnar
I hækkuðu skuldir erlendis um 600
þúsund kr., og sú hækkun ríður
j baggamuninn.
Eins og áður hefur komið fram
er í ráði að gera norska útgáfu af
Hernámsárunum, en ekki er byrjað
að vinna aö því fyrirtæki ennþá
vegna fjárskorts.
’.V.V.V.VV.V,