Vísir - 11.12.1968, Blaðsíða 12

Vísir - 11.12.1968, Blaðsíða 12
VISIR . Miðvikudagur 11. desember isoa. Það var eias og Houghton gæti sér til um hugsanir hans. „Alex- andría er ein af fjölskyldunni, hún hefur verið alin upp i þeim sanna fjölskylduanda ...“ Hann lækkaði röddina. „Hvað lengi heldurðu svo að hjónabandið endist, ef systir mín kemst að því, að þú hafir ver- ið að gamna þér við þessa stelpu- drós hinum megin við fljótið?" Þá fyrst skildi Charles aö hverju Houghton hafði stöðugt verið að sveigja. Það var þess vegna, sem hann hafði beðið; þess; hótun var rýtingurinn, sem hann hafði leynt undir skikkjulafinu. „Þannig liggur þá landið Char- les ... þú hefur um tvennt að velja. Annaö hvort gengurðu í leik með mér og ég held hlífiskildi yfir þér, eða þú ríst gegn mér og glatar öllu, einnig Alexandríu. Svona ein- falt er það, gamli minn“. Charles reis úr sæti sínu. Hann var stirður í bakinu og sársaukinn í fætinum lítt bærilegur. „Ég verð víst að svipta þig þeirri fólskulegu ánægju, Houghton sæll“, mælti hann furðu rólega, „þar eð ég er á leiöinni upp til Alexandríu, stað- ráðinn í að segja henní sannleik- ann. Sjálfur", Houghton sperrti upp brúnimar. „Einmitt það? Ég leyfi mér að draga það í efa“. Og þegar Charles var kominn út að dyrunum. „Þú hefur ekki hug til þess. Þú þorir ekki að hætta á að glata öllu ... öllu, einungis til þess að láta mig setja ofan“. Charles nam staðar við þrösk- uldinn og leit um öxl. „Hvemig sem fer á milli okkar Alexandríu, þá selur hún ekki hlutabréfin“, sagði hann. Hann sá að Houghton föinaði. Sá hann taka pípuna úr munni sér, halda henni milli handanna og ganga skref fram. „Fjandinn hirði þig“, hvæsti hann. „Þú snerir fööur mínum gegn mér. Þú hefur engan rétt á að vera hérna og hefur aldrei haft. Þú hef- ur aldrei unnað Alexandríu. Það hef ég sagt henni. Hvað eftir ann- að....“ Hann hreytti oröunum út milli samanbitinna tannanna. „Ég hef sagt henni það. Þaö hef- ur enginn unnað henni, nema ég.“ Charies starði á hann, furðu ÝMISLEGT ÝMISLEGT 33435 rökum af ottkui nvers xonai tnurm og sprengivinnu ! húsgrunnum og ræs um Leigjum ú» toftpressur 09 víbr sleða Vélaleiga Steindórs Sighvats iOnai Alfabrekla við Suðuriands braut aimi 10435 TEKUR ALLS KONAR KLÆÐNlNGAR FUÓT 06 VÖNDUÐ VINNA ClRVAL AF AKLÆÐUM LAUCAVEð 62 - SlHI 10625 HEIHASlMI tUU BOLSTRUN Svefnbekklr i úrvali á verkstæðisveröi GlSLI JÓNSSON AkurgerOi 31 Smi 35199. Fjölhæt iarðvinnsluvél ann- ast lóðastandsetningar. gref húsgrunna, bolræsi o.O. lostinn. Það heyrðist lágur smellur, þegar Houghton braut pípumunn- stykkið á milli fingranna. í þetta skiptið fannst Charles, sem hann væri skyndil. sviptu allri fótfestu, og við honum gini gjá, hyldjúp og myrk. Og hann sá Houghton — eöa öllu heldur fann hann taka furðulegum breytingum í þögninni. Hvemig hann virtist allt í einu koma auga á pípubrotin, snúa sér undan eins og hann vissi ekki, hvern ig hann ætti að bregðast við athæfi sínu og leggja brotin loks gætilega á öskubakkann. „Góða nótt, Charles", mælti hann svo lágt, að nálgaðist hvfsl. „Ég vona að þú segir henni aflt. Það veit guð, ég vona það“. Charles svaraði engu, en hélt fram í anddyrið og síðan upp stig- ann, hægum skrefum: Þessu atriði var lokið. Það, sem hann hafði komizt að raun um annars vegar og fengið gmn um hins vegar, kom honum ekki að neinu gagni. Sú tilfinningaflækja, sem lá bak við framkomu Houghtons, var honum ofviða. Hið eina, sem hann greindi ljóst og sárt, var hin hræðilega og myrka átakaflækja mannlegra tilfinninga. Hann fann til vaxandi samúðar — ekki einungis gagnvart Charles hinum, heldur þeim öllum, undantekningarlaust. Hafði Charles hinn einnig fundið þetta — var þessi tilfinning ef til vill eitt af því, sem honum hafði að sWustu orðið ofraun og stuðlað þannig að minnís hvarfj hans? Hann gat ekki orð- ið þeim að neinu iiöi, engu þeirra ... þvert á móti var hann til neydd ur að valda enn meiri sársauka og þjáningum. Það hefði farið bet- ur að hann væri enn í New York á stefnulausu rangli um götur og stræti. Þegar hann kom að svefnher- bergisdyrunum nam hann ósjálf- rátt staðar og svipaðist um. Dym- ar að herbergi Austin Parsons, fyr- ir enda gangsins stóðu í hálfa gátt.' Án þess að hann vissi sjálfur hvers vegna, hélt hann þangað. Ljós logaði á lágum lampa þar inni. Miðaldra, feitlagin hjúkrunar- kona, sem sat og las í ódýru tíma- riti, leit gremjulega á hann, reis ekki úr sæti sínu, svaraði ekki þegar hann bauð henni gott kvöld lágum rómi. Austin Parson lá undir hvítri ábreiðu, báðar hendurnar ofan á henni. Hann var með opin augun. Sá hann Charles standa þama? Það varð ekki á neinu séð. Hann lá þarna eins og lík, sem átti það eitt eftir að skilja formlega við. Svo gersamlega einn, að óumræði- legri einmanaleika var ekki unnt að hugsa sér. Og Charles var í þann veginn að hverfa aftur á brott, þegar hann sá vísifingurinn á hægri hönd Aust in Parsons lyftast eilítið — og hnfga sfðan máttvana niður aftur. Charles hrökk við — var þetta ímyndun hans, eða gát það átt sér stað. Hann beið. Hreyfingin endurtók sig ekki, en hann beið samt. Ef fingurinn hafði í raun og veru hreyfzt? Þannig leið mínúta, tvær minút- ur, þrjár. Charles langaði til að athuga andlit og augnatillit Par- sons, en þorði ekki að hafa augun af hægri hönd hans. Og skyndilega var eins og hann fengi svar við spurningu sinni, svar, sem tók af allan vafa. Vísi- fingurinn lyftist aftur, örlítið, hneig svo máttvana niður. í þetta skiptið var hann viss. Hann fann hjartað berjast ákaft á barmi sér. Skvndilega vaknaði með honum heit von. Hafði Austin Parson séð að hann starði á hægri hönd hans? Var hann að reyna að koma á eins konar sambandi við hann? Sem betur fer getur þú ekki haft áhrif á hann framar, hafði Hough- ton sagt fyrir skammri stundu. Samt sem áður hafði Charles heyrt Houghton hvísla í símann ... slíkt hneyksli mundi ríða föður mínum að fullu. Hvernig mátti hneyksli hafa áhrif á sjúkleika Parsons, ef hann hefði ekki minnstu hugmynd um hvað fór fram í kringum hann. Var þaö hugsanlegt að Houghton hefði grun um að ef til vill væri faðir hans ekki gersvipt- ur allri skynjun og skilningi? „Sefur hann ekki?“ spurði Charl- es hjúkrunarkonuna lágt. „Hvers vegna er hann ekki sofnaður?” Hjúkrunarkonan leit á hann og hirti ekki um að leyna gremju sinni yfir þessari truflun á lestr- inum „Kemur þaö elcki út á eitt, hvort hann sefur eða ekki? Hann gerir ekki neitt, og þreytist því ekki, svo það er ekki við því að búast að hann sofi“. „Hafið þér ekki undir höndum einhver lyf til að gefa honum, svo hann geti sofnað?" Sparið peningana Gerið sjálf við bflinn. Fagmaöur aðstoðar. NÝJA BlLAÞJÓNUSTAN Sfml 42530 Hreinn bíll. — Fallegur bfll Þvottur, bónun, ryksugun NÝJA BlLAÞJÓNUSTAN Sfmi 42530 Rafgeymaþjónusta Rafgeymar 1 alla bíla NÝJA BlLAÞJÓNUSTAN Sfmi 42530 Varahlutir t bflinn Platínur, kerti, háspennu- kefll, ljósasamlokur, perur, frostlögur, bremsuvökvl, olíur o.fl o.fl NÝJA BlLAÞJÓNUSTAN Hafnarbraut 17. Simi 42530 Svissnesk úr. Þórður Kristófersson úrsm. Sala og viðgerðaþjónusta Hrfsateig 14 (Hornið við Sondlangaveg.) Sími 83616 Pósthóif 558 • Reykjavík. ' STOPHIM! ÞONT LÆT H/M RBACH THE Tarzan, þaöer ég, Kórak. Kórak, sonur minn... hér í Pal-ul-don, Stöðvið hann. Látið hann ekki ná haia- eða er þetta tilraun til að leika á mig? lausa guðnum. Ibúðir til sölu 2ja herb. íbúð viö Óöinsgötu. 3ja herb. íbúð f Kópavogi útb. kr. 200 þús. 3ja herb. íbúð við Lokastfg 1 steinhúsi, mjög gðð íbúð. 3ja herb. ibúð í Laugames- nverfi góöir greiösluskilmálar. Ný 3ja herb. íbúð á jarðhæð við Skólagerði, mjög falleg fbúð. Ný 4ra herb. íbúð í Kópavogi. Nýtt glæsilegt einbýlishús í \ Árbæjarhverfi, skipti á minni 1 íbúð koma til greina. Fokhelt einbýlishús með 2 bfl- skúrum í Amamesi, húsið seilst f þvf ástandi sem kaupandi ósk- ar. Fokheld 6 herb. sérfiæð með bílskúr í Kópavogi, útb. kr. 200 þús. Hef ávallt íbúöir sem skipti koma til greina með. Fosteipo- miðstöðin Austurstræfi 12 Síroar 20424 - 14120 heini. 83974. /^K Velj«m Wislenzkt til fölagjafa ÍAxS/V' RAUDARÁRSTiG 31 SáUH 23022 ÍsUmdingiit ísnioU I Vestfirðingar Norðlendú-ga og Austfirðingar heima oj heiman! Fylgizt með « .fSLENDINGI - fSAFOLD“ • Áskrift kostar aðeins 300 kr. Áskriftarsíminn er 96-21500. BLAÐ FYRIR VESTFBRÐl NORÐUR- OG AUSTURLAND

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.