Vísir - 23.12.1968, Blaðsíða 6

Vísir - 23.12.1968, Blaðsíða 6
V1SIR . Mánudagur 23. desember 1968. Á Boðaslóð Loftleiðir h.f. ætla frá og með apríl/maí-mán- uði n.k. að ráða allmargar nýjar flugfreyjur til starfa. í sambandi við væntanlegar um- sóknir skal eftirfarandi tekið fram: © Umsækjendur séu ekki yngri en 20 ára — eða verði 20 ára fyrir 1. júlí n.k. —- Umsækjendur hafi góða almenna mennt- un, gott vald á ensku og öðru erlendu tungumáli, helzt þýzku, frönsku eða Norðurlandamáli. © Umsækjendur séu 162—172 cm á hæð og svari líkamsþyngd til hæðar. © Umsækjendur séu reiðubúnir að sækja kvöldnámskeið í febrúar/marz n.k. (3—4 vikur) og ganga undir hæfnispróf að því loknu. 0 Á umsóknareyðublöðum sé þess greini- lega getið, hvort viðkomandi sæki um starfið til lengri eða skemmri tíma. © Umsóknareyðublöð fást í skrifstofum fé- lagsins, Vesturgötu 2 og Reykjavíkur- flugvelli, svo og hjá umboðsmönnum fé- lagsins úti um land, og skulu umsóknir hafa borizt ráðningárdeild félagsins, Reykjavíkurflugvelli, fyrir 6. janúar n.k. WFTIEIDIR TZlettur í Bfldsey. Þá minnist ég þess, að einhvem tíma kom ég í Stykkishólm, hitti þar eldri mann og bað hann að ferja mig og bömin mín út i Breiða- fjarðareyjar, hvers hann var fús til. Á leiðinni út, varð ég þess vísari að þama var á ferð gam- all eyjabóndi, og hann átti ennþá sína eyju. Nú var hann kominn til lands, drukknaður i mannhafinu og menningunni og gat ekki lengur hirt eyjuna sína. Gamlj maður- inn bauð mér góö boð, ef ég vildi vera í eyjunni hans einn vorbjartan hálfan mánuð meöan æðurin var áð vagga með ung- ana sfna niður að „Boðasjóð". Hvers vegna tók ég þessu ekki? Ef til vill vegna þess að mig skorti þá innri skynjun, sem listamannsauga Veturliða Gunnarssonar sér f breiðfirzkri bám? Skuggaþungan desemberdag geng ég niöur Skólavöröustíg- inn. Á gangstéttinni utan við blómaskálann hans Svavars, stendur skilti, sem á er letrað: Málverkasýning Veturliða Gunnarssonar. Garðurinn er laðandi umhverfi, ef til vill er eins með listamanninn, sem er að sýna þar. — Hveit veit? Veturliði er fæddur á Suður- eyri í Súgandafirði. Þeir em bræður hann og Guðbjartur. — já, stundum ieituðu menn að nöfnum í biblíunni eða fom- sögunum áður en barn var vatni ausið. Ég ólst upp í fjölunni. Hún sjálf og allt, sem henni fylgir er ævintýri. Þat er alltaf eitthvað nýtt að gerast, Fjaran er sá heimur, sem fóik yfirleitt þekkir ekki og kynnist lftið þótt það aki f bíl, t. d. umhverfis Snæfellsnes. í myndum mínum vil ég gefa fólki kost á þátttöku í þvf, sem ég þama hef upplifað. 1 þeirri túlkun reyni ég aö vera trúr. Hverpig öðrum tekst að skilja það, er ekki mitt vandamál. — — Ég óska ekki eftir að vera lítill Fransmaður hér norður í hafi. Ekki tfzkufyrir- bæri, heldur maður, sem reyni að skilja rödd og svipmót þeirr- ar náttúm, sem ég er fæddur til að þjóna. — Þar sem bamsfingur stmku blöðmþang vorlangan dag. Og báran hljóðláta kvað sitt fagnaöarlag. — — Hvers vegna svo margar myndir frá Breiðafirði? — Breiðifjörður og Strandir opinbera þann undraheim og skapa þá stemmningu, sem aldrei hefur komið fram í mynd- list áöur. Ef fólk ætlar aö finna himna- rfki á jörð, þá verður það að gjöra svo vel og skilja eftir bíl- inn, ferðast á milli Breiðafjarð- areyjanna, skilja eftir klukk- una, vera óháð öllum tíma og sofna og vakna, þegar náttúran býður. Þú velur myndum þínum ýmis óstaðfærð nöfn, t. d. Boöa- slóö? — Boðaslóð er sú slóð, sem hafið hefur tileinkað sér — fjaran. — Mér skilst að þú sért róm- antískur i list þinnr? — Já, ég er það og vil vera það Rjórpantík eru ailar okkar innri tilfinningar. Þeir sem fara Veturliði Gunnarsson. á mis við hana hafa ekki lifað lffinu — eða ekki þorað það — em ónáttúrlegir. Rómantfk er víðtækt hugtak. Það er að þora að vera maður, kannast viö sinn uppruna — ekkj leikbrúða sviptivinda og-ónáttúrlegra afla. — Þitt listnám? — Ég hef verið í mörgum skólum víðsvegar, en ég forðast að láta koma fram í mínum myndum neinar reglur. List lýtur engum reglum og ég virði þær aðeins að þvf marki, sem ég get notað þær í þjónustu þeirrar tjáningar, sem mér finnst gera verk mfn sönnust á hverjum tfma. Ég hef aldrei getað málað eftir resepti eða listaverkatíma- ritum. - Er ekki svipað erfitt að vera skáld og listmálari? — Skáldin hafa fleiri tröppur og vinna í keðjuverkandi hring. Gagnrýnin þar er „hringekja ástarinnar". Málarar eiga enga penna til að lyfta þeim f hæðir. — Er von á fleiri sýningum hjá þér á næstunni? — Ég ætla mér að sýna í Unuhúsi f febrúar f vetur. Þar hef ég hugsað mér að sýna ein- göngu myndir frá þeim stemmn- ingum, sem ég hef orðið fyrir á fótgöngu minni um Strandir. — Þar er nú ekki fjölbýlt orðið? — Ég var ekki að leita byggð- ar. Ég þræddi fjöruna? — Og veðrið? — Ég hreppti öll þau veður, Ræft er v/ð Veturliða Gunnarsson, listmálara En það er erfitt að vera spá- maöur heima hjá sér. Hinir svokölluðu menningarvitar, sem lifa fyrir þaö að sjá sjálfa sig f ræöustól, þeir eru svo upp- teknir, t. d. við að bjarga þjóð- um í Vietnam og af baráttunni við reglurnar og skipulagið, sem þeir hafa sett sjálfum sér til dýrðar. Þessir myndlistaskólar í dag eru nánast föndumámskeið, sem senda nemendur frá sér með það á tilfinningunni aö þeir séu einhver ofurmenni i „kúnst- inni“ fyrir það eitt aö hafa til- einkað sér handverksreglur. Ótal skólastelpur eru sendar út á einhver svokölluð lista- námskeið koma svo heim og halda sýningu til að punta upp á fjölskylduna. Þetta er harmleikur gagnvart listinni. — Ég geri aldrej þá mynd, sem ég ekki hef upplifað sjálfur. Komist sú stemmning ekki til skila, þá er það vegna þess, að áhorfandinn lifir lffi langt fjarri mínum heimi. ■ — Er erfitt að vera íslenzkur listamaður? — Það er svo þröngt á topp- inum. Menn þurfa helzt að hafa heila „gloríu" af erlend- um ummælum og heila hjörð af íslenzkum rithöfundum kringum sig. iÉg hef aldrei haft löngun eða tíma til aö sitja á kaffihúsum og ,,diskutera“ við áhrifamenn. Það eru engin vandamál í list- inni að bögglast fyrir mér. Menn eru alltaf að tala um „pró- blem“ Ég hef ekki hugmynd um hvaö það er. sem fslenzk útskaganáttúra hefur upp á að bjóða. í þvf ligur sú stemmning, sem ég vil njóta, heldur mér föstum og bindur mig við landið. 1 Suður-Frakklandi er aldrei talað um veöur. Þar er alltaf sólskin og blíöa, en það hefur aldrei náð tökum á mér. Ég hef ekki 'farið til Frakklands til aö vera hundraðasta útgáfa af ein- hverjum Fransmanni, heldur til að sjá mit* eigið land úr fjar- lægð eins og skáldin forðum. — Ég sé að þessi breiðfirzka bárumynd þin er seld? — Já, hana fékk fslenzkur arkitekt, sem búsettur hefur verið i Mexíkó siðastliðin sex ár. — Ég hef lítið spurt þig um ætt og uppruna, Veturliði? — Láttu það vera. Ég er lítiö fýrir aö pissa utan f þá, sem búið er að mokr yfir. — Hvað svo að lokum? — Að lokum. 1 myndlist er engin lokaspurning til. Það er ekki öllum gefið að vera gáfaðir fyrirvaralaust: Ég er alltaf viðbúinn verð- hækkun og jarðskjálftum. Það er eöli okkar tíma. Mér finnst eiginlega að iarðskiálftinn sé i einhvers konar kreppu. Kippur- inn um daginn var ekki nógu stór, samkvæmt okkar eðli. Þvi ég hef hitt marga, sem vildu gjarnan hafa fundið hann. Ég vona bara að Seðlabank- inn veröi búinn að byggja þegar næsti kippur kemur, því þá get- ur almenningur notið þess á annan hátt. Þ. M.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.