Vísir - 23.12.1968, Qupperneq 11
VlSIR .
KIRKIAN OCIt
TIMAMOT
í kirkjusögu Vestur-ísSendinga
I haust hefur svohljóð-
andi messuboö staöað á bakslð
orint £ Lögbergi-Heimskrmglu
frá Fyrstu lútersku kirkju 1
Wlnnipeg: Enskar guðsþjónust-
«r á hverjum sunnudegi kL 9.45
og kL 11 árdegis. — Tvær ensk
ar, engin islenzk.
Eflaust hafa fáir hér heima
veitt þessu eftirtekt. Mönnum '
hafa ekki þótt þetta vera nein
stórtiðindi, vitað sem var, að
þetta hlaut að koma — svona
mundi þetta fara — fslenzkan
— jafnt innan kirkju sem utan
— mundi drukkna í enskunnar
sterka og stóra flaumi í Canada
og U.Sjá. Við þessu verður ekki
gert. En þó er sjálfsagt að minn
ast þessara endaloka fslenzku
guðsþjónustunnar i Winnipeg —
svo merkur og sterkur þáttur
hefur hún verið I viðhaldi timgu
og þjóðemis meðal þjóðarbrots
ins vestra.
Þessi tímamót urðu 1 guðs-
þjónustuhaldi landanna vestra,
er sr. Valdimar Eylands lét af
embætti við Fyrstu lútersku
kirkjuna í haust Voru þau Ey-
landshjón kvödd með virktum
og virðingu að loknum tveim
messum I þéttsetinni kirkju þ.
22. september. Er ýtarlega sagt
frá þessum kveðjufagnaði í Lög-
bergi-Heimskringlu þ. 26. sept-
emher sL stuðzt við þá frá-
sögn f þessari grein. Kemur
skýlaust í Ijós hve víðtækra vin
sælda prestshjónin hafa notið I
söfnuðinum, þau 30 ár, sem sr.
Valdimar hefur þjónað honum
og hve hugheilar þakkir og ein-
lægar blessunaróskir fylgja
þeim hjónum er hann lætur nú
af embætti. ✓
Ræðuhöld og söngur fóru
fram í kirkjunni en kaffi-
drykkja í Safnaðarheimilinu.
Hófinu stjómaði forseti safn-
aðarins, Leifur J. Hallgríms-
son. Bauð hann gesti velkomna
og minntist þess af hvílíkum
skörungsskap og skyldurækni
sr. Valdimar hefði staðið I stöðu
sinni. Tilkynnti hann, að stjóm
safnaðarins hefði kjörið sr.
Valdimar heiðursprest Fyrstu
lútersku kirkju. Að lokinni ræðu
hann flutti eftirmaður sr. Valdi
mars, Rev. John V. Arvidsen,
bæn, en því næst var sunginn
sálmur.
Fyrsta lúterska kirkja tilheyr
ir American Lutheran Church.
Forseti þeirrar kirkju, dr. Otto
A. Olson jr., var mættur í hóf-
inu. Ámaði hann söfnuöinum
og sr. Valdimar allra heilla og
blessunar og fór miklum við-
urkenningarorðum um hann
sem prest og prédikara. Fjöl-
margar ræður voru fluttar, sem
of langt yrði að rekja hér.
Grétar Eggertsson fyrrv. for
maður safnaöarins hélt eina af
aðalræðunum og er hún birt í
Lögbergi-Heimskringlu. Hann
minntist prestanna sem starfað
hafa við kirkjuna, Jóns Bjama-
sonar og Bjöms B. Jónssonar,
svo og Eirlks Brynjólfssonar á
Útskálum, sem hafði brauða-
skipti viö sr. Valdimar árið
1947—48. Grettir sagði I ræðu
sinni, að allt frá fyrstu tið hafi
kirkjan verið miðstöð íslenzkra
menningarerfða vestra og þar
hafi sr. Valdimar verið I farar-
broddi f flestum samtökura. öll
um Islendingum f Winnipeg
hafi kirkjan jafnan verið þeirra
andlega heimili, presturinn holl
ur vinur, þátttakandi f gleði
þeirra og sorgum. Hann minnt-
ist ýtarlegs starfs sr. Valdimars
fyrir söfnuðinn f 30 ár og fór
um hann mörgum viðurkenning
arorðum, drap á Islandsferðir
hans þegar hann var fulltrúi
Vestur-Islendinga við hátíðleg
tækifæri hér heima, einnig þess
þegar fyrirmenn fslenzkir heim
sóttu dótturkirkjuna vestra og
þeir vom við guðsþjónustur sr.
Valdimars og boðnir velkomnir
af honum með virðingu og hlý-
leik. Það eru mínnisstæðar
stundir.
Milli þess, sem ræður og á-
vörp voru flutt, var bæði ein-
söngur og kórsöngur. Meöal
ræðumanna voru fulltrúar
þeirra hópa, sem sr. Valdimar
hafði skírt, fermt og gift. Mæltu
þeír til hans þakkarorðum. Er
þess getiö f frásögn blaðsins, að
séra Valdimar, auk þess að
semja og undirbúa hinar vönd-
uðu stólræður sínar og messa
þrisvar á sunnudögum, ennfrem
ur á hátfðum, hefur í
kirkju sinni á sfðastliðnum 30
árum skírt 1320 böm, fermt
841 ungmenni, og gefið saman
1158 hjón og jarðsungið 1202
manns. Hinar hjartnæmu ræð-
ur, sem hann hefur flutt áv
sorgarstundum hafa veitt syrgj
endum huggun og styrk og
margar eru ferðimar, sem hann
hefur gert sér að sjúkrabeðum
sóknarbama sinna og til þeirra
er sorgin hefur lamað.
Sr. Valdimar hefur verið
hrókur alls fagnaðar á gleði-
stundum. „Hinar skemmtilegu
ræður hans og hnyttilegu smá-
sögur, hafa vakið hlátur og
gleði og em rómaöar fyrir
orðsnilld."
I hófinu minntist Mrs. Lincoln
Johnson frú Eylands sérstak-
lega, en til hennar beindu raun-
ar allir ræðumenn þakkarorð-
um. Þótt hún hafi átt við van-
heilsu að stríða hin sfðari ár,
vissu menn að hún, þessi vel
menntaða gáfukona, var jafnan
stoð og stytta manni sínum f
hans ábyrgðarmikla og erfiða
starfi. Það jók á ánægjuna f
þessum minnsstæða fagnaði, að
viðstödd vom öll böm prests-
hjónanna, þau Jón Valdimar
læknir í Norður-Dakota, Dolores
húsfr. f Montreal, Elín húsfr. á
Gimli og Lilja húsfr. f Péter-
borough. Eylands-hjónin hafa
átt að fagna miklu bamaláni
því öll em böra þeirra vel gef-
in, menntuð og mannvænleg.
Minningargjafir yora þeim
prestshjónunum færðar frá
söfnuðinum. Sr. Valdimar fékk
klukku „svo stóra og mikla, að
tveir menn áttu fullt f fangi
með aö bera hana inn á sviðiö,"
en vitað var, að sr. Valdimar
hefur frá bamsaldri haft mikiö
dálæti á klukkum. Frú Eylands
hlaut að gjöf forkunnarfagran
mink-cape, „er myndi minna
hana á þá hlýju, er söfnuðurinn
ber til hennar"
1 tilefni af þessum tfmamót-
um f lifi sr. Valdimars, sendi
biskupinn yfir Islandj skraut-
ritað ávarp þar sem hann vott-
aði þeim hjónum „þakkir og
virðingu móðurkirkjunnar á Is-
landi“. Er þar tekið fram, að
„það hefði verið þjóð hans og
kirkju heiður og styrkur að vita
hann í þvf sæti, sem hann hef-
ur skipað. Islenzka þjóðin tek-
ur undir þakkir yðar, kæm vin-
ir í Fyrstu lútersku kirkju.
Við biðjum Guð að blessa sr.
Valdimar Eylands og fjölskyldu
hans og vaka f náö yfir ávöxt-
unum af starfi hans meðal yðar
og kirkju vorri.“
Sr. Valdimar Eylands yfirgaf
föðurland sitt strax að loknu
stúdentsprófi árið 1923. Hann
mun ekkj hafa heimsótt ísland
aftur fyrr en við brauðaskiptin
árið 1947 er hann bjó eitt ár á
Útskálum. Sfðan hafa þau hjón
komið hingað endrum og eins
og ávallt verið kærkomnir gest-
Frú Lilja og séra
Valdimar Eylands
ir. Sfðast í sumar vom þau hér
á ferð ásamt mörgum löndum
að vestan. Við sem hlustuöum
á hinn djarfmannlega, kristna
boðskap í skörulegum ræðum
hans við guðsþjónustur í Skál-
holti og í Dómkirkjunni, þökk-
um Guðj fyrir slíkan boðbera
fagnaðarerindisins og biðjum
hann að gefa þjóö okkar sem
flesta slíka.
Og nú þegar sr. Valdimar
hefur dregið sig í hlé eftir þessi
mörgu og annamiklu starfsár,
biðjum við honum blessunar
Guðs, „sem oss hefur frelsað
og kallaö heilagri köllun, ekki
eftir verkum vorum, heldur eft-
ir eigin fyrirhugun og náð, sem
oss var gefin fyrir Krist Jesúm
frá eilífum timum."
G. Br.
lérí
Éins og undanfarin ár
1 * \
bjóðum við okkar
vinsæiu fóðurblöndur
Verð pr.
45 kg. prot.
Kúafóðurblanda 375,50 15%
Saufifjárblanda 380,00 15%
Varpmjöl (heilfóður) 371,00 14%
Varpmjöl (heilfóður) 381,00 19%
Ungafóður (fyrir 1-2 mán.) 410,00 16%
Ungafóður (fyrir 2-4 mán.) 391,00 14%
Grísa-gyltufóður 382,00 14%
Reiðhestablanda 380,00 10%
Fóðurblöndur okkar eru framleiddar úr ný-
möluðum amerískum maís og öðru 1. flokks
hráefnL
Við bjóðum einnig upp á brezkar
gæðafóðurvörur frá stærsta fóður-
framleiðanda í Evrópu, The British
Oil & Cake Mills í Bretlandi.
Verð pr.
25 kg. prot.
Kúafóður 207,00 14%
Kúafóður 220,00 16%
Sauðfjárblanda 255,00 15%
Gyitufóður 255,00 15%
Grísafóður 255,00 15%
Ungkáifafóður 635,00 20%
Kálfaeldisfóður 278,00 16%
Varpfóður 266,00 16%
Reiðhestablanda 275,00 12%
BOCM
Allar B.O.C.M.-vörurnar era fáan-
legar kögglaðar eöa í mjölformi og
framleiddar af brezkri nákvæmni
og niðurstöðum rannsókna á 5 til-
raunabúum, sem B.O.C.M. rekur í
Bretlandi.
Aðeins bað bezta er nógu gott fyrir íslenzkan landbúnað.
Athugið, að þetta séu vörumerkin á fóðurvörunum, sem þér kaupið.
FÓ0URBLANDAN HF.
Grandavegi 42 — Sími 24360