Alþýðublaðið - 05.01.1966, Síða 4

Alþýðublaðið - 05.01.1966, Síða 4
Ritstjórar: Gylfl Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. - Ritstjórnarfull- trúi: Elöur Guönason. — Símar: 14900 - 14903 — Auglýsingasími: 14906. ABsetur: Alþýöuhúsiö viö Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýöu- blaöslns. — Askriftargjald kr. 80.00. — I lausasölu kr. 6.00 eintakiö. Vtgefandi: Alþýðuflokkurlnn. Mál málanna VERÐBÓLGAN kom að vonum við sögu í hug- leiðingum ráðamanna um áramótin. Virtust allir sammála um, að hún væri af hinu illa og bæri að íeggja áherzlu á að stöðva hana. Hins vegar var á- berandi skoriur á tillögum um, hvernig sú stöðvun geti gerzt. Auðvelt er að líta á verðbólgu með mismunandi augum. Forsætisráðherra benti x áramótahugleið- ingu .sinni á, að verðbólgan hefði staðið síðan um 1940, þegar ófriðurinn leysti kreppuna af hólmi. Jónas Haralz sagði í útvarpsviðtali, að verðbólgan hefði síðustu misseri verið tæki til að dreifa síldar- tekjunum til allra stétta, og hefðu til dæmis bændur fengið sinn hluta með því að hækka afurðaverð og Svo framvegis. Þjóðviijinn sýnir fram á, að verð- foólgan sé tæki til gróðamyndunar og bendir á stétt verðbólgubraskara, sem dafni vel. Islendingar mæla nær einum rómi gegn verð- foólgu og segjast vilja stöðva hana. Þó virðast fovorki einstaklingar né fyrirtæki hafa trú á að þetta muni takast nú fremur en síðasta aldarfjórð ung. Þess vegna byggja og fjárfesta alls konar að- ilar í trausti áframhaldandi verðbólgu — og stuðla þarmeð sjálfir að því, að sú verði þróunin. Til er hópur manna, sem kalla verður verð- bólgubraskara og raka sarnan fé á hækkandi verðlagi. Hinir eru þó miklu fleiri, sem mundi foregða í brún ef þeir væru kallaðir því nafni, þótt þeir geri ráðstafanir fyrir sjálfa sig eða fyrirtæki isín í trausti áframháldandi verðbólgu. Sóknin í þyggingar og aðrar framkvæmdir er óstöðvandi Og óaðskiljanlegur tiluti af hugsunarhætti íslend- inga. Fyrir þessa .sókn verður þjóðin að greiða með verðbólgu. Seðlabankinn thefur með samþykki ríkisstjóm arinnar gert nokkrar ráðstafanir gegn þenslu. Þær iget/a engum komið á óvart og eru ráðstafanir, sem Jhagspekingar hinna frjálsu landa telja við eiga. Áhrif ‘þeirra hér á landi hafa þó reynzt takmörkuð. Þó er sjálfsagt að veíta sparifjáreigendum örlitla vemd með hærri vöxtum, og aukin sparifjárbind ing er vafalaust nauðsynleg vegna vaxandi gjald ^yrissjóðs. Tillögur stjórnarandstöðunnar, sem fordæmir verðbólgu meir en aðrir, stefna hins vegar allar að aukimti verðbólgu. Lægri vextir, m'eiri útlán, rneiri byggingaframkvæmdir eru allt ráðstafanir, serh auka verðbólgu. Er furðulegt, að tveir stjóm málaflokkar skuli bjóða upp á svo augljóst ósam ræmi í málflutningi. Umhugsunarefni næstu vikna hlýtur að verða, hvaða frekari ráðstafanir sé ihægt að gera til að ílraga úr hraða verðbólgunnar. 4 5. jan. 1966 - ALÞÝÐU8LAÐIÐ m Skemmtanir á gamlárkvöid! 1 MIKIL OG GAGNGERÐ lirein g-erning: á sér stað’ um hver ára mót í borginni Að þessu sinni var safnað' saman víðsvegar «m hana alls konar drasli, hlaðið í kesti á um sextíu stöðum — og síðan kveikt í og brennt til ösku Síðustu dagana fyrir áramótin fór hver stórbifreið'in á fætur annarri eftir Hringbrautinni fram hjá skrif stofuglugganum mínum og allar fluttu þær báta af ýmsum stærð um. Ég þóttist sjá, að nú væri ver ið a'ð hreinsa Örfirisey. urinn finnst mér vera sá, að marg ir þættirnir voru mjög góðir, sér staklega þeir, sem fluttir voru í óbundnu máli. en bragirnir voru heldur lélegir og ekki skemmtilega sungnir. ANNARS ER FÁTT eins van þakklátt og það að taka saman gamanþætti fyrir útvarp — og það mun ekki síður koma í ljós með sjónvarpið. Það er erfitt að full nægja íslendingum í skemmtana hungri þeirra — og þannig er það líka meðal annarra þjóða. Að minnsta kosti myndi ég ekki vilja gera tilraun með það. Hannes á horninu. OG SVO ÓK ég þangað tvisvar sinnum til að fylgjast með. Ég fer þangað stundum á góðviðris dögum. Síðastliðið ár var hrúgað upp bátum yzt á eynni, en nú er svo komið, að flestir eru horfnir bornir á bál og brenndir til ösku. Þama var stór krani og tók bátana hvern af öðrum og svo var þeim ekið burt. Þeir sómdu vel á köstunum, vöru reistir upp á endana eða settir í toppana, og mér er sagt að þeir hafi logað vel. ÞETTA VORU yfirleitt góð ára mót. Að vísu mun drykkja hafa verið mjög almenn, jafnvel þeir, sem sjaldan bragða áfengi seild ust til flöskunnar, og sumsstaðar leiddi af mikil vandræði. Ég held að menn geti haft það til marks um hvort þeir megi bragða áfengi livernig ástand þeirra hafi verið um áramótin. Ég held að minn'-ta kosti þeir, sem urðu svo miður sín, að það þurfti að fjarlægja þá af heimilum þeirra með lög regluva’di, hafi fengið fullar sann anir fyrir því, að þeir mega ekki bragða áfengi. vAtt sama vkrba þeir að segja við sjálfa sig, sem settust undir stýri ölvaðir, hvort sem þeir vóru teknir eða ekki, því að af1 slíku framferði stafar geigvænleg hætta fyrir þá sjálfa og aðra, sem verða á vegi þeirra. Um þetta eru þúsund hörmuieg dæmi svo að við þurfum ekki að fara í neinar graf götur með það. STEFÁN JÓNSSON fréttamaður hafði tekið að sér að taka saman skemmtidagskrána á gamiárskvöld Hann varð mikilvirkur enda ann álaður dugnaðarmaður og oft bráð skemmtilegur. Dagskráin stóð í tvo tíma. Ég held að aldrei sé beðið í eins mikilli eftirvæntingu eftir kvölddagsskrá og á gamlárskvöld Ég veit um fjölda manna, sem vill vera heima og búa vel um sig til þess að geta í næði notið þess arar dagskrár. Nú var breytt um. Nú var reynt að hafa almennt skemmtiefni, en ekki að gera ein göngu stjórnmálamenn að bitbeini. ÞAÐ VAR OF SNÖGG breyting í einu lagi. Þess vegna virðist mér ánægjan hafi verið blandin hjá hlustendum. Ég held að gagnrýn in stafi af þessari breytingu, því að humor okkar íslendinga er i bæði grófur og illgjam. Sannleik j Hér cru þeir sem aðallega freista þess nú að finna einhverfa lausn vandamálanna í Viet Nam. Efri röð frá vinstri: Arthur Ooldberg, Hubert Humphrey, Ho Chi Minh, neðri röð frá vinstri, Páll páfi, U Thant og Averell Harriman. ÞÓR ENN Á HLIÐINNI Reykjavík, OÓ Ekkert hefur verið gert til að nú varðskipinu Þór út, þar sem það líggur á hliðinni í dráttar sleða í Slippnum. Ákveðið hefur verið að bíða átekta þar sem nú er stækkandi straumur ef vera mætti að straumurinn lyti skip Um hálf átta leytið í gærkveldi varð 15 ára piltur fyrir bifreið á mó.tum Miklubrautar og Háaleytis brautar. Hann skarst á enni og var fluttur á Slysavarðstofuna. inu þegar þar að kemur. Sikipið vegur um 800 tonn þar sem það liggur á brautinni, en hún er mik ið skemmd og hjól hennar skekkt og ef eitthvað verður að gert gæti orðið hætta á að skemma skipið meira en orðið er, en ekki er að vitá hvað skeður ef brautln verður hreyfð. Ekki er að sjá að miklar skemmdir séu á Þór, þó er ekki hægt að segja um það með vissu fyrr en skipið er laust af braufc innf því vera má að skemmdir séu á botninum.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.