Alþýðublaðið - 12.01.1966, Síða 6

Alþýðublaðið - 12.01.1966, Síða 6
GLUGGINN 160 ára og aldrei veikur Heilsan er það mikilvægasta í j lífinu segir sá maður, sem senni- j lega er elztur í heiminum, hinn ! 160 ára gamli Rússi Sjirail Mosli- j mov, i nýjársboðskap sínum til j rússnesku þjóðarinnar. Moslimov hefur aldrei verið veikur og hefur aldrei þurft að leita læknis. Aftur á móti hafa á undanförnum árum margir læknar leitað til hans. Alla ævi sína hcfur hann búið í fjalla- þorpi ekki langt frá landamærum Persíu. Hann álítur, að sitt langa líf eigi hann að þakka heilnæmu fjallaloftinu og mikilli líkamlegri vinnu. í fyrsta sinn, sem hann kom í stórborg, var árið 1965, þeg- TEKJU- HÆSTUR ★ Sean Connery er sá kvikmynda- leikari, sem í fyrra færði amerísku kvikmyndahúsunum mesta pen- inga, samkvæmt því er kvikmynda blað nokkurt reiknaði út. Hann hef ur tekið fyrsta sætið af Doris Day, sem hefur verið fyrst á listanum þrjú ár í röð. Eftirfarandi leikar- ar voru þeir, sem færðu kvik- myndahúsunum mestar tekjur: Connery, John Wayne, Doris Day, Julie Andrews, Jack Lemon, Elvis Prestley, Gary Grant, Ja- mes Stewart, Elisabeth Taylor og Richard Burton. ar hann heimsótti barnabarnabörn sín í Baku. Moslimov hefur verið þrígiftur. Núverandi kona hans er 70 árum yngri en hann, sem sagt 90 ára gömul. SAMTÍNINGUR Um 1000 málaáhugamenn í Rúss landi eiga að geta talað ensku eftir 1 mánaðar nám, án þess þó að hafa þurft að sitja yfir leiðin legum lærdómsbókum. Þeir eiga nefnilega að læra málið í svefni. Tilrauninni stjórna nokkrir vís- indamenn í vísindaakademíunni í Uikraninu. Nemendurnir eiga í gegn um svefninn að hlusta á 25 fyrir- lestra af segulbandi og með því eiga þeir að geta lært mikilvæg- ustu málfræðireglur í ensku og læra þúsund erfið orð og orðasam- bönd. ★ Ökumaður nokkur í Frederiks ■berg í Danmörku var sviptur öku leyfi í hálft ár vegna þess að bíll inn, sem hann ók var talinn óöku fær. Þetta þætti sjálfsagt einhverj um heldur harður dómur hér á landi. Laumufarþegi Skipstjórinn og stýrimaðurinn á ítalska skipinu Castel Felice ætl uETu að kafna úr hlátri, þegar ástra- líumaðurinn Frank Moriarty, 21 árs, kom á grímuball, sem haldið var í skipinu þeirra og sagðist leika laumufarþega. Þér lítið sann- arlega þannig út, sagði stýrimað- urinn og hló hrosr ahlátur en hann hefði \'íst ekki hlegið svo mikið, hefði bann vitað, að Moriarty var i raun og veru laumufarþegi á skip- inu. Hann hafði laumast um borð í skipið í Vestur-Ástralíu og þrem fyrstu nóttunum hafði hann eytt í baðherbergi skipsins. Þá tók hann að fara um skipið og á hverju ein- asta kvöldi tók hann þátt í leikj- um og dönsum uppi á þilfari. Eng inn grunaði hann um græsku. Þeg ar átti að halda grímuball, kom Moriarty á ballið klæddur í galla buxur, og skituga skyrtu og lét kynna sig sem laumufarþega en það fannst öllum viðstöddum af- skaplega sniðugt. En svo var hann svo vitlaus að segja stúlku nokk- urri nafn sitt, og eins og kvenna er siður, var hún forvitin og hefur sjálfsagt haft áhuga á manninum. Hún fór því að athuga farþega- listann til þess að vita eitthvað meira um Moriarty. En enginn með því nafni var á listanum, og Mori- arty endaði ferðina lokaður inni í skipsklefa. En ferðin var ekki til einskis fyrir hann, því við kom- una til Southamton viðurkenndi hann að hafa reynt að ferðast sem laumufarþegi aðeins til að safna efni í bók, og það hefði £ raun- inni tekizt ágætlega. Hann var samt sendur aftur til Ástralíu og fara ekki frékar sögur af honum enn sem komið ér.' S 12. janúar 1966 - ALÞÝ0UBLAÐI0 RANIENGLA í Englandi stendur nú yfir leit að fimm ára gamalli telpu, sem hvarf 30. des. sl. Telpan heitir Diane Tift, og hún var á leið heim til. sín frá ömmu sinni og afa, aðeins nokkur hundruð metra leið, þegar hún hvarf. Ekkert hefur komið í ljós, sem geti bent til, hvar telpan er, hið síð asta sem frétzt hefur af henni er, að hún var að róla sér á leikvelli, en þangað hefur hún sennilega farið, er hún var á leið heim til sín. Amma hennar áminnti hana um að fara beint heim, en Diane vildi fara til mömmu sinnar, sem var að þvo í þvottahúsi nokkurn spöl frá heimilinu. Allt er óvíst um af- drif telpunnar. Svipað atvik átti sér stað í september, er sex ára telpa, Margaret Reynolds, hvarf á leið í skólann, en það gerðist í Birmingham skammt frá heimili Diane, sem er í Blox- wichstaffs. Margaret Reynolds hefur ekkj fundizt þrátt fyrir mikla leit. Álitið er, að ef til vill hafi '•ami maður rænt báð um stúlkunum. Diane Tift, hvarf á leið heim til sín. Mæður fylgja börnum sinum í og úr skóla. Mynd af Diane hefur verið liengd upp í verzlunarglugga um allt nágrennið, ef vera ‘ skyldi, að einhver gæti gefið upplýsingar, sem leiddu til að telpan fyndist. Allt lögreglulið héraðsiris tekur þátt í leitinni og einnig froskmenn sem kanna skui'ði og vötn í nágrenn- inu. Mikill ótti hefur gripið um sig meðal mæðra í Englandi og láta þær börn sín ekki fara ein í skólann. Einnig er brýnt fyrir bömunum að tala ekki við ókunnuga. OOOOOOOOOOOOOOóOOOOOÓOOó OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO ✓ MAL VEGNA THALIDOMIDBARNANNA Sænska lyfjafyrii-tækið Astra hefur ei prófað nóg áhrif thali- domidlyfsins, segja foreldrar thali domidbamfinna. Það var vitað, að lyfið var óskaðlegt fyrir mæðúrn- ar, en áhrif þess á fóstur höfðu aldref verið prófuð. Þetta, er ein af aðalákærunum i máli þvi, er foreldrafélag hinna vansköpuðu thalidomidbarna í Svíþjóð og Nor egi hefur höfðað gegn Astra. Mál-, neurosedyn meðan hún gekk með ið er hið fyrsta sinnar tegundar í! baniið. Lögfræðingurinn ki-efst sögu sænsks réttar. , liálfrar milljón sænskra króna í bætur til drengsins. Ef málið Fyrst er málið aðeins höfðað vinnst, mun verða ki'afizt bóta fyr fyrir hönd eins af börnunum, fjög-j ir önnur vansköpuð. börn vegna urra ára drengs, Rolf Lager, sem thalldomíds, þar á meðal erú 10 fæddist útlimalaus. Og samkvæmt j dönsk börn. Lögfræðingurinn heí- þvi, sem lögfræðingurinn segir ur rannsakað svó mörg atriði í vegna þess að móðirin fékk lyfið Framhaid á 10- síðn. '

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.