Alþýðublaðið - 12.01.1966, Page 9

Alþýðublaðið - 12.01.1966, Page 9
KASTUÓS Rússar vilja Vietnamráðstefnu ALBANXR hafa ljóstrað upp því leyndarmálf, að Rúss- ar hafi í hyggju að boða til ráðstefnu kommúnistaflokka um baráttuáætlun í VietnammáliniU' Ferð Sjei^pins til Hanoi virðist farin í því skyni að fá norður-vietnamiska leið toffa til að taka þátt í ráðstefnunni. Rússar virðast reyna að grafa undan áhrifum Kínverja í Hanoi og í því skyni munu þeir auka aðstoð sína við N-Vieínam, en tilgangurinn yrði sá að stöðva styrjöldina en ekki að færa hana út. Frá þessu segir Victor Zorza, einn færasti sovétfræðingur Vest- urianda, í eftirfarandi grein. Ho Chi Minh RÚSSAR hafa á laun farið þess á leit við leiðtoga helztu komm únistaflokka heims að þeir komi saman til ráðstefnu, þar sem ræða skuli áætlun um samræmdar aðgerðir í Vietnammálinu. Leið togar Norður- Vietnam hafa til þessa neitað að taka þátt í slíkri ráðstefnu og hinn raunverulegi tilgangur með heimsókn Sjelep- ins til Hanoi er að leggja fast að Ho Chj Minh og samstarfsmönn um hans að senda fulltrúa til rúð stófnunnar. |?essar upplýsingar eru eftir al banskri heimild, aðalmálgagni albanska kommúnistaflokksins, „Zerj i Poullit", sem oft og tíðum hefur ljóstrað upp um leynileg ráðabrugg í deilu Rússa og Kín verja. Blaðið segir, að ráðstefna þessi verði haldin ,,bráðlega“ og boðið sé til hennar leiðtogum kommúnistaríkjanna auk leiðtoga kommúnistaflokkanna í Frakk landi og Ítalíu. Blaðið segir að hvorki Kína né Albanía muni senda fulltrúa, en bætir því við að valdamennirnir í Mo kvu hafi undirbúið „djöfullegt samsæri" að tryggja þátttöku Norður-Viet nam og Norður Kóreu. ★ „DJÖFULLEGT SAMSÆRI“ Albanska málgagnið kveðst þess fullvist, að leiðtogar þessara tveggja asísku flokka falli ekki tfryfrgast éins ag niyndin bér með sér. fyrir þessari „niðurrífandi ögr- un“ og muni ekki láta undan, „hvorki fyrir þvingunum þeim né því trúlausa lýðskrumi“ sem Sjel epin muni hafa í frammi við þá þegar hann reyni að sannfæra þá um „nauðsyn og mikilvægi slíks fundar fyrir baráttu vietnamisku þjóðarinnar.“ Þar sem „Zeri i Popullit" ljóstr ar upp þessu leyndarmáli bendir allt til þess, að yfirmenn blaðsins í Peking hafi alvarlegar áhyggj ur af þeim hugsanlega möguleika að sendiför Sjelepins heppnist og Moskvu takist 'að lokum með hinni fyrirhuguðu ráðstefnu sinni að ná þeim ásetningi sínum að einangra Kínverja. Tilgangur greinarinnar er ber sýnilega sá, að gera leiðtogunum í Hanoi erfitt með að fallast á boð Rússa um að senda fulltrúa á ráð'-tefnuna, því að þá gæti litið út fyrir að þeir hefðu beygt sig fyrir sovézkum þvingunum. Ganga má að því vísu að grein in sé runnin undan rifjum valda mannanna í Peking. Ætlunin var að halda boðinu til Kínverja leyndu, engu síður en boðinu til hinna kommúnistaflokkanna. Ef Kínverjar hefðu siálfir ljóstrað upp um leyndarmálið hefðu Rúss ar fengið átyllu til þess að halda ráðaeerðum sínum leyndum fyr i- Kínverjum. Einnig hefði það svnt, alltof lióslega, að Peking revndi að skipta sér af hreinum jnnanlandsmálum Norður-Viet nam, en það hlýtur þátttaka í þess ari ráðstefnu að teljast. + KÍNVERSKAR ÁSAKANIR. Peking hefur upp á síðkastið sakað Moskvu um að hafa valdið sundrungu meðal hinna vietnam- isku leiðtoga. Moskva reyni að ..erafa undan einingu vietnamisku þjóðarinna” andspænis hinni bandartsku árás“ — en með bessu er gefið-til kynna, að égreiningur ríki um það, livernig Norður-Viet nam skuli bregðast við hinum auknu hemaðaraðge^ðum Banda ríkjamanna. Tillaga Moskvu um Vietnamráðstefnu hlýtur að hafa orðið til þm-s að auka á þennan ágreining og eins og nú er ástatt hlýtUr ágreiningurinn að koma fram í deilum milli ,,hægri“ og „vinstri” arms, milli kommúnista sem fylgja Rússum að málum og kommúnista er fylgja Peking að málum. Rússar hafa beitt þeirri aðferð gegn öðrum kommúnistaflokkum sem við svipaðar innbyrðis erjur hafa átt að etja, að einangra fyrst, fylgismenn Kínverja og fá því síð an framgengt að þeim verði vikið úr flokksforystunni. Ef Moskvu tækist að koma einhverju slíku til leiðar í Hanoi væri þess ekki langt að bíða að einhvers konar friður kæmist á í Vietnam. Þar með er ekki sagt, að valda mennirnir í Moskvu vilji að hin ir vietnamisku kommúnistar hætti baráttu sinni, en mörg teikn eru á lofti um -— þrátt fyrir opinber ar yfirlýsingar í öfuga átt — að sovézkir leiðtogar séu því hlynntir, að samningaviðræður verði hafnar. ★ AUKIN AÐSTOÐ Ef til vill verða Rússar að bjóða talsvert aukna hernaðaraðstoð til þess að efla þann arm kommúnista flokksins í Hanoi, sem fylgir þeim að málum, enda þótt þeir hafi skýrt tekið fram að þeir séu ó sammála Kínverjum um það að ósigur Bandaríkjamanna í Viet- nam sé á næsta leiti. Aðstoð Framhald á 10. síðn Ýmsir ætla að vopnahlé í Vietnam yrði álíka ótryggt og varð raunin í Kóreu á sínum tíma, Aðalfundur VerzkmarmatiEiafélags Reylfjavíkur verður haldinn í Leikhúskjallaranum mið- vikudag 19. janúar n.k. kl. 20,30. Dagskrá samkvæmt félagslögum. Stjórn V. R. Framtíðarstarf Máður eða kona óskast til aðstoðar við rann- sóknarstörf. Stúdentspróf eða hliðstæð menntun æskileg. Hafrannsóknarsíofrtunin, Skúlagata 4, sími 20240. Handbók bygginga- manna 7966 fæst á skrifstofu Sambands byggingarmanna Laugar vegi 18 sími 2-28-56, bóka- og ritfangaverzlunum og skrifstofum sambandsfélaganna. Samband byggingamanna. Útsala - Útsala ÚTSALAN ER HAFIN. MIKIL VERÐLÆKKUN. Komið og gerið góð kaup. GRETTISGATA32 Hef opnað LÆKNINGASTOFU í Aðalstræti 4, Ingólfs Apóíek. Viðtöl -eftir samkomulagi. Viðtaisbeiðnir hl. I- síma 2 1788 eða 2 1872. Sérgrein: Húðsjúkdómar. Sæmuncfur K|arfaussoti. -2 í Auglýsingasíminn er 14906 | ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 12. janúar 1966 $.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.