Alþýðublaðið - 19.01.1966, Page 7
BÍLAR OG UMFERD
■
' .
mmMm
wmmrn
'
isassm
■■':■ .:■!
MARGVÍSLEGUR
ÖRYGGISBÚNADU
MENN bíða þess ávallt með nokk-
urri eftirvæntingu, að nýjar ár-
gerðir bifreiða komi á markaðinn,
og í^Bandaríkjunum einum bíða
nokkrár milljónir nýrra ’ kaup-
enda á hverju ári eftir að sjá
hvaða breytingar sérfræðingarn-
ir í Detroit hafa gert á bílunum.
Það sem er nýtt í sambandi við
1966 árgerðir bandarísku bílanna,
er einkum ýmiss konar öryggis-
útbúnaður, eins og til dæmis
bólstruö mælaborð og sólskyggni,
bakkljós, tveggja hraða rúðu-
þurrkur, rúðusprautur, útispegill
bílstjóra megin og sætisólar í aft-
ursæti. Sumt af þessu er hægt að
panta sérstaklega á 1965 árgerð-
irnar, en nú eru þessir hlutir orðn-
ir „standard” í velflestum bílgerð-
um. Því má bæta hér við, að
bandarískir bílaframleiðendur
hafa nú samræmt hæð bíla sinna
frá götu, þannig að hún er 43—45
cm. Er þetta, einkum gert vegna
þess, að bílastæðahörgull er hvar
vetna mikill og menn leggja
gjarnan alveg fast upp að næsta
bíl svo stuðararnir snertist, og er
þá gott, að hæðarmunur sé ekki
mikill.
En það er nóg af ýmsum öðrum
nýjungum. Til dæmis má nefna
stýri, sem hægt er að hagræða,
hækka og lækka og færa upp og
niður, allt eftir þörfum hvers öku-
manns. Dyr er hægt að opna og
loka með því að ýta á hnapp
Hægt er að aka á föstum, jöfi
hraða án þess að snerta ber
pedalann, en með þvi að s
hnappi í mælaborðinu. — Se
bandstæki og sjónvarpstæki
hægt að fá með bílnum og fl
mætti tína til.
í fyrsta skipti í 29 ár er r
markaðnum bandarískur bíll
framhjóiadrifi. Það er Toror
frá Oidsmobile-deild GM.
Það er hægt að kvarta um j
legt annað en skort á fjölbre
í sambandi við bandaríska bila,
því þar í landi geta menn valið
um 417 gerðir bíla.
Framhald á 10. síðu.
Hér sjáum við inn í Thunderbird, árgerð 1966. Fyrir ofan spegilinn eru viðvörunarljós, sem m. a. geía
ökumanni til kynna, þegar minnka fer á benzíntanknum, ef liurð er ekki vel lokuð, hvenær sé ástæða til
að festa öryggisbeltin, og þar að auki er þessi bíll búinn margvíslegum öðrum öryggisútbúnaði.
FRAMLEIÐSLUAUKNINGU
HOLLENSKI DAF-bíllinn hefur
náð miklum vinsældum hér á
landi. Nú er komin á markað ár-
gerð 1966 af DAF og fer hann
væntanlega að sjást hér á götunufn
áður en langt um líður.
Ýmsar útlitsbreytingar hafa
verið gerðar á bílnum frá því sem
var, og er hann nú m. a. talsvert
hærri að framan en áður var. Þá
er nýtt grill og nýtt lag á kistuloki,
cn farangursgeymslan er jafn stór
og áður. Þá hefur litafjölbreytni
verið aukin og geta viðskiptavinir
nú valið um fleiri liti en áður.
Ýmsar aðrar smábreytingar hafa
og verið gerðar á DAF, sem vænt-
anlega munu enn auka á vinsældir
hans.
Um mitt þetta ár mun DAF fyr-
irtækið byrja byggingu nýrrar
verksmiðju í Suður-Limburg og á
byggingu hennar að verða lokið
um mitt ár 1969, og í árslok það
ár, á að vera búið að framleiða
um 60 þús. bíla í nýju verksmiðj-
unni. Þar verða framleiddar þrjár
Framhald á 10. síðu.
Oryggisbelti er nú skylda að hafa
í öllum amerískum bílum. Ekk-
ert heyrist enn frá Bifreiðaeftir-
liti ríkisins hér á landi um notk-
-un öryggisbelta í bifreiðum.
F32-188
DAF, — árgerð 1966.
SíStSfiSíM’
Séð inn í DAF 1966.
EINKENNI 1966:
19. Janúar 1966 - ALÞÝÐUBLAJIÐ J