Alþýðublaðið - 19.01.1966, Síða 14
Dagfoók
Minningarspjöld Fríkirkjusafnað
«rins í Reykjavík fást í verzlun
fnni Facó Laugavegi 39, og Verzl
tui Egils Jakobsen.
Kvenfélag Fríkirkjusafnaðarins
f Reykjavík heldur fund föstudag
21. þ.m. kl. 8,30 sd. í Aðalstræti
12 uppi.
Spiluð verður félagsvist, kon
wr eru beðnar að fjölmenna
Stjórnin.
'&Œ
Ttvenfélag- Neskirkju býður eldra
f&i í sókninni í síðdegiskaffi
sunnudaginn 23. janúar kl. 3 e.h.
£ félagsheimili kirkjunnar að lok
irihi guðsþjónustu. — Stjórnin.
Kvenfélagið Aldan, heldur fund
tniðvikudag 19. þ.m. kl. 8,30 á
Bárugötu 11 Spiluð verður félags
vist.
ELDSVOÐI
í KJÓSINNI
Talsvert tjón varð af eldi á íbúð
arfíúsi Gísla Andréssonar bónda
að Neðra Hálsi í Kjós í gærdag.
Kom eldurinn upp skömmu eftir
hádegið og á efri hæð hússins þar
sem var svefnloft varð tjón af eldi
talsvert mikið, en verja tókst
neðri hæðina fyrir eldinum, en
jþar varð hinsvegar tjón af vatni.
Slökkviliðið kom úr Reykjavík,
Og nptaðar voru lvandslökkvidæl,ur
Og var vatn sótt í Laxó. Tokst
þannig að ráða niðurlögum eldsins
og. verja nærliggjandi hús. Um elds
tijiptök er ekki vitað.
Gúmmístígvél
Kuldaskór
'Uf-.
á alla fjölskylduna.
Sendi í póstkröfu.
Skóverzlun og skóvinnu
stofa Sigurbjörns
Þorgeirssonar
Miðbæ við Háaleitisbraut 58-60
Sími 33980.
TVEIR
VEGNA
Rvík, —----
Mál skipverjanna tveggja á bv.
Bjarna Ólafssyni, sem réðust að
Jóni Albertssyni vélstjóra sl. föstu
dag og veittu honum áverka var
tekið fyrir í sjó- og verzlunarrétti
Reykjavikur í gær.
Alþýðublaðið fékk þær upplýs
ingar í gær hjá Birni Friðfinns
syni borgardómarafulltrúa, að
tveir menn sætu nú í lialdi vegna
þesía atburðar, háse^i og báts
maður af togaranum og eru þeir
báðir ungir menn. Við yfirheyrsl
Ur í gær kom það fram, að tals
verð ölvun var um borð í togaran
um í' Bremenhaven og héldu menn
fagnaðinum áfram eftir að lagt
var af stað til íslands: Var þá
drukkið meðan áfengi entist. Á
fimmtudag munu vmb'Ó'gðir
flestra hafa verið þrotnar, en þá
Kaupmannahöfn, 18. 1. (NTB-RB).
Kommúnistablaðið J.Land og
Folk“ lýsti í dagf yfir stuðuingi
við kröfuna um að jarðneskar leif
ar Peter Wessel Tordenskiolds
flotaforingja verði fluttar til Nor
egs. Blaðið tekur þannig sömu af
stöðu og jafnaðarmannablaðið
„Aktuelt” tók I hæðnislegri for
ystugrein fyrir nokkrum dögum.
Heimsveldisfortíg Danmerkur
hefnir sín. Þrjár frændþjóífir,
sem við kúguðum forðum daga,
bera nú fram kröfur sínar, segir
meðal annars í ritstjóirnargrein
inni. Það sem forfeður okkar tóku
og hagnýttu á nú að taka frá okk
ur algerlega. Við erum krafðir
I HALDI
ÁRÁSAR
r varð það til bjargar, ,að skipverj
ar gátu fengið hver einn kassa
af bjór úr tolli, voru þær birgðir
yfirleitt þrotnar á föstudag. Fóru
þá piltarnir tveir inn til Jóns vél
stjóra, en þeir höfðu verið meira
eða minna ölvaðir alveg síðan skip
ið lagði af stað frá Bremenhaven
Þetta var um sexleytið á föstudag
og lá Jón í koju og var að lesa
Þeir veittu honum áverka á andliti
og auk þess mun hann eitthvað
hafa bilazt í baki í átökunum við
þá.
Þar sem hér er um að ræða á
rás á yfirmanna skips á hafi úti
er málið rannsakað hjá sjó- og
verzlunardómi, sem í eiga sæti
einn löglærður maður og tveir
siglingafróðir, en að því búnu eru
málseögn send til saksóknara, en
sjódómur ákveður síðan refsingu
ef tilefni gefur til.
um íslenzk handrit með áköfum
hótunum, og nú er röðin komin að
beinagrindunum.
Flutningurinn vekur að sjálf-
sögðu óánægju í Danmörku, held
ur blaðið áfram en óánægja mun
ríkja í Noregi ef Danir halda fast
við það að þeir eigi líkið, heldur
blaðið áfram. Beiskja i Danmörku
og óánægja í Danmörku — það
er þetta sem hefst af því að trufla
frið hinna látnu.
Okkur hefur aldrei líkað mjög
vel við Tordenskjöld, okkur er ekki
eins hlýtt til hans og Holbergs og
Johan Herman Wessles. Við kunn
um ágætlega að meta Norðmenn
yifrleitt, og ef við getum glatt þá
Frændur deila
um beinagrind
‘OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOÖOOO o<> >0000000000OOOOOOOOO
útvarpiö
Miðvikudagur 19. janúar
7.00 Mongunútvarp
12,00 Hádegisútvarp
13.00 Við vinnuna. Tónleikar
14,40 Við, sem heima sitjum
Sigríður Thorlacius les skáldsöguna „Þei,
hann hlustar” eftir Sumner Loike Elliot (2).
15,00 Mtðdegisútvarp
16,00 Síðdegisútvarp
Veðurfregnir — Létt músík: — 17,00 fréttii
17,20 Framburðailkennsla í esperento og spænsku.
.i7.40 Gítarlög.
18,00 Útvarpssaga bamanna: „Á krossgötum" eftir
Aimée Sommerfelt. — Þýðandi: Sigurlaug
Björnsdóttir.
18,20 Veðurfregnir.
18.30 Tónleikar — Tilkynningar.
19.30 Fréttir.
20,00 Daglegt mál
Árni Böðvarsson flytur þáttinn.
20,05 Efst á baugi
Björgvin Guðmundsson og Björn Jóhanns-
son tala um erlend málefni.
20.35 Raddir lækna
Einar Helgason talar um sykursýki.
21,00 Lög unga fólksins
Gerður Guðmundsdóttir kynnir.
22,00 Fréttir og veðurfregnlr.
22,15 „Gisting í Forsæludal”, smásaga eftir Jör-
und á Hellu — Jóhann Pálsson leikari les.
22.35 Kammertónleikar í útvarpssal.
23 20 Dagskrárlok.
va RrV/Htiut&t oezt
xðlki
14 19. Janúar 1966 - ALÞÝÐUBUAÐIÐ
gerum við það gjarnan. Gefið Norð
mönnum það sem Norðmanna er.
Gefið þeim beinagrindina, segir að
lokum í greininni „Land og Folk”.
Ben Barka
Framhald af 3. síðu.
daginn eftir ránið á Ben Barka.
Ein skýringin á málinu, sem oft
hafa verið hafðar eftir heimild
um í lögreglunni, er sú, að „sér
legir útsendarar Marokkóstjórnar
hafi fengið vi sa franska útsend
ara til að stuðla að „pólitískum
fundi“ milli Oufkirs hershöfðingja
og Ben Barka. Ef þessi kenning
er rétt liöfðu frönsku útsendar
arnir ekki hugmynd um að fund
urinn væri í rauninni gildra, sem
lögð var fyrir Ben Barka.
Stérvirkjun
Framhald af 1. síðu.
annmarkar á því. Ætlunin væri að
byggja þarna stóra höfn, og væri
eðlilegast að Hafnarfjarðarkaup
staður ræki hana svo ekki yrði
hætta á samkeppni þar á milli, en
þarna eiga 20 þúsund tonna rkip
að geta athafnað sig. Benedikt
kvað það skoðun þeirra sem til
þekkja að vinnuaflsþörfin við
væntanlega virkjun og verksmiðju
byggingu mundi sízt meiri að til
tölu héldur en þegar verið er að
byggja í senn áburðarverksmiðju
og írafossvirkjun. Benedikt ragði,
að lokum að Alþjóðabankinn hefði
fylgst náið með öllum samninga j
viðræðum, enda væru það heinlín
is hagsmunir bankans, sem senni
lega mundi lána fé til virk.iunar
framkvæmda, og samningarnir
yrðu okkur ekki óhagstæðir.
Gylfi Þ. Gíslason viðskiptamála
ráðherra ræddi einkum um bióð
hagslega og efnahagslega þýðingu
aluminíumverksmiðju og stórvirkj
unar.
Hann minnti á þá grundvallar
staðreynd, að þorskfiskaflinn við
ísland færi nú minnkandi þrátt
fyrir aukna sókn á miðin. Á til
tölulega skömmum tíma hefði sókn
in á miðin aukizt um 8% en afl
inn samt minnkað. Dánartala
þorsksins væri nú að áliti fiski
fræðinga 70%, en þeir teldu um
minnkun stofnsins að ræða, ef
þessi tala færi yfir 65%. Varhuga
vert væri því að treysta á aukinn
sjávarafla, heldur aukna nýtingu
hans og það að breikka grundvöll
atvinnulífsins.
Væntanleg aluminíumverk
smiðja mundi skila um 300 millj
ónum króna nettó á ári sagði
Gylfi, eða um 650 þúsund krónum
á starfsmann og væri því hag
kvæmt fyrirtæki, en það væri ekki
aðalatriðið heldur hitt, að hún
mundi gera okkur kleift á 25 árum
að eignast 100 þúsund kílówatta
orkuver til eiginþarfa fyrir upp
hæð, sem væri aðeinr- helmirigur
nauðsynlegs stofnkostnaðar, ef
ráðizt væri í margar smávirkjanir.
Ræddi Gylfi síðan þá virkjunar
möguleika, sem fyrir hendi eru,
en þessi er langhagkvæmastur
þeirra allra að dómi sérfræðinga.
Að lokum fór Gylfi nokkrum orð
um um þensluna á vinnumarkað
inum og þá hættu sem að sumra
dómi mundi stafa pf þessum fram
kvæmdum. Mest þörf rtarfsmanna
við þetta tvennt. er 7—900 manns
við byggingarframkvæmdir, en á
árunum 1965 — 68 er áætlað að
fiölgi ,hér á vinnumarkaðnum um
4240 karlmenn, og fiölgun starfs
manna í byggingpriðnaðinum verði
um 100 manns á bessu tímabili.
Þessar framkvæmdir skaoa því
enga erfiðleika. ■'em ekki er hægt
að vinna bug á.
Á hveriu árj næstu þriú árin
mun fjölga hér á vinnumarkaðin
um um 188—200 manns. sagði
Gvlfi pð lokum, og bessu fólki
verður ekki betur séð fvrir traustri
atvinnu en með bví að renna nnýj
um stoðum undir atvinnuvegi okk
ar.
Að loknum framsöguræðum hóf
ust almennar umræður og tóku
margir þá til máls og lauk fund
inum ekki fyrr en um miðnætti.
Minningarspjöld Háteigskirkju
eru afgréidd hjá Ágústu Jóhanns
dóttur Flókagötu 35, Áslaugu
Sveinsdóttur, Barmahlíð 28, Gróu
Guðrúnu Þorsteinsdóttur Stangar
Guðjónsdóttur Háaleitisbraut 47,
Guðrúnu Karlsdóttur, Stigahlíð 4,
holti 32, Sigríði Benónísdóttur,
Stigahlíð 49, ennfremur í Bókabúð
inni Hlíðar Miklubraut 68.
Minningarspjöld .Hrafnkels-
ijóðs" fást f Bókabúð Braga
Brynjólfssonar, Hafnarstræti 22.
Þökkum samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför
Jóns Rögnvaldssonar
Jónfríður Ólafsdóttir
böm og tengdabörn.
Þölekum af aihug auðsýnda samúð við andiát og jarðarför
Ástráðs Þorgilsar Guðmundssonar
Jónas Ástráðsson, Hrefna Gunnarsdóttir,
Gréta Ástráðsdóttir, Jón H. Jónsson,
Anný Ástráðsdóttir, Pálmi Friðriksson,
og börn.