Alþýðublaðið - 12.02.1966, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 12.02.1966, Blaðsíða 2
eimsfréttir ....siáastliána nótt ★ SAIGON: —• Bandaríkjamenn misstu í gær níundu eprengjuflugvél sína yfir Norður-Vietnam síðan loftárásirnar voi'u teknar upp að nýju 31. janúar. Humphrey varaforseti Banda ríkjanna. sagði í Saigon að tvær styrjaldir væru háðar í Viet- «am: gegn Vietcoíng og gegn menntunarskorti, fátækt og sjúk- dómum. Vinna yrði báðar bessar styrjaldir. Baráttan yrði löng Og eina óvissan ríkti um iþað hvenær henni lyki. ★ BRUSSEL: — Baldvin konungur ræddi í gær stjórn arkreppuna i Belgíu við stjórnm'álaleiðtoga, nokkrum klukku etundum eftir að hann kom til BruSsel úr opinberri heimsókn til Danmerkur og féllst á lausnarbeiðni Pierre Harmels forsætis éáðherra og stjórnar hans, sem verður áfram við völd til bráða birigða. Stjórnm varð að segja af sér þar eð ráðherrar jafnaðar- tnanna hótuou að láta af störfum í mótmæláskyni við andstöðu belgískra lækna gegn ókeypis lækniSlijálp í sjúkrahúsum Belg- ‘fu, en ráðherrar kristilegra sósíalista vildu að gengið yrði að kröfum lækuanna. Búizt er við langri stjórnarkreppu. ★ MOSKVU: — Hlegið var að sovézka rithöfundinum Andrei Sinjavsky í róttarhöldunum í Moskvu í gær en hann sagði að hann els'kaði rússnesku þjóðina. Vitnað var í minn isblöð Sinjavskys. þar sem hann sagði að Rússar væru þjóð þjófa og drykkjurúta, sem væri ekki til þess hæf að skapa anðnningu. ★ PARÍS: — De Gaulle forseti hefur svarað orðsendingu frá Ho Chi Minh, forseta Norður-Vietnam, um Vietnammálið og tsvarið verður sennilega birt á morgun, samkvæmt áreiða'nleg um heimildutn. Tálið er. að viðhorf Frakka verði ítrekað, en þeir telja viðræður um Vietnam ótímabærar. ★ LONDON: — Harold Wilson kvaddi í gær á sinn fund 25 menn úi stjórn sambands járnbrautástarfsmanna til að gera lokatilraun til að binda enda á verkfall, sem járnbrauta- starfsmenn háía boðað frá miðnætti á sunnudag. Fyrr um dag inn samþykkti stjórn sambandsins með eins atkvæðis meirihluta að verkfallið skyldi gert eins og boðað hafði verið. ★ WASHINGTON: — Bandaríska stjórnin lýsti því yfir í gær Irvöldi, að það væri ekki í þágu bandarískra itagsmuna að koma í veg fyrir að ríkin í Austur-Evrópu ykju samskipti sín við Vesturlönd. í skýrslu til Þjóðþinlgsiris leggur utanríkisráðu- meytið áherzlu á að stefna Johnsons forseta geri ráð fyrir auknum friðsamlegum vtðskiptum við Sovétríkin og Austur-Evrópu. enda &é þetta svar við mikilvægum breytingum í Austur-Evrópu að Atbaníu undanskilinni. ★ MANILA: — Filippseyjar hyggjast viðurkenna Malaysíu ■en ekki fyrr en Sukarno Indónesíuforseti hefur látið í ljós skoð un sína á málinu, sagði Narciso Ramos utanríkisdáðherra í gær. ★ SALTSL'URY: — Rhodesíustjórn fyrirskipaði í gær höml ur gegn Afríkumönnum, sem koma ti’l Rhodesíu að leita sér atvinnu. Smith forsætisráðherra hefur áður lýst því yfir, að þeir fyrstu sem fengju að kenna á refsiaðgerðum Breta yrðu er- iendir verkamenn, sem starfa í Rhodesíu. HLEGIÐ AÐ SINJAVSKY I' RÉTTARHÖLDUNUM MOSKVA, 11. fcbrúar. (NTB-REUTER). Hlegið var að sovézka rithöf- undinum Andrei Sinjavsky í rétt- arhöldunum í Moskva í dag, er hann sagði, að hann elskaði rúss- nesku þjóðina. Vitnað var í minn- isblöð Sinjavskys, þar sem hann sagði að Rússar væru þjóð þjófa og drykkjurúta, sem væri ekki lil þess hæf að skapa menningu. Sinjavsky svaraði þeirri spum- ingu sækjanda hvers vegna hann sverti rússnesku þjóðina á þenn- an liátt að sögn Moskvablaðsins Izvestia, að hann gerði það til þess að hjálpa þjóðinni að gera sér grein fyrir hvað það væri sem hún þarfnaðist. Sovézka fréttastofan Tass segir að tilgangur réttarhaldanna yfir Sinjavsky og þýðandanum Julí Daniel sé að komast að því hve sekt þeirra sé mikil. Rithöfund- arnir eru ákærðir fyrir að hafa dreift áróðri fjandsamlegum Sov- étríkjunum erlendis undir dul- nefni og eiga á hættu að verða dæmdir í allt að sjö ára fangelsi að viðbættri þriggja ára útlegð, en ósennilegt er talið, að þeir verði dæmdir þyngstu refsingu. Urn 30 aðdáendur rithöfund- höldin fara fram, en hún er í kyrr I somol, um hinar ýmsu hliðar látri og fáförulli götu í Moskva. málsins. - Þeir lentu í deilum við meðlimi Izvestia vitnaði í dag í yfir* samtaka ungra kommúnista, Kom-1 Framh. á 14. síðu. íekin verði upp ný stefna í hafnagerð Reykjavík. — GO. Sjávarútvegsmálaráðherra lét þá skoðun í ljós í ræðu sinni á Fiskiþingi í gær, að marka beri þá stefnu í framtíðarframkvæmd- um í hafnarmannvirkjagerð, að á hverju ári verði aðgerðir mið- aðar við ákveðinn landshluta og unnið þar í stærri áföngum. Eggert G. Þorsteinsson sagði, að hinar dreifðu framkvæmdir undanfarinna áratuga hefðu ekki ailtaf reynzt sem skyidi vegnaþess hve lilutur einstakra staða hefði verið smár, og því orðið lítið notagildi að þeim fjármunum, anna söfnuðust saman í dag fyrir 1 sem komið liefðu í hlut hvers utan bygginguna, þar sem réttar- staðar. jrgðððukning 463 miiiiónir á sl. ári Reykjavík. — GO. í NÓVEMBERLOK sl. voru fyrirliggjandi í landinu útflutn- ingsbirgðir fyrir 1405 milljónir Eggert G. Þorsteinsson, sjávútvegsmáiaráð herra flytur ræöu á Fiskiþingi. 2 12. febrúar 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ króna, en á sama tíma árið áður voru til birgðir fyrir 942 millj- ónir. Þetta upplýsti sjávarútvegs- málaráðherra í ræðu sinni á Fiski þingi í gær. Birgðaaukningin fólst fyrst og fremst í síldaraf- urðunum, eins og stærstur hluti aflans á árinu. Verðlag á sjávarafurðum var sérlega hagstætt í markaðslönd- um okkar á sl. ári, en þó að erf- itt sé að spá langt fram í tim- ann um markaðsverð á jafn sveiflukenndum afurðum og sjáv- arafurðum, er þó vart ástæða til svartsýni af því sem ráðið verð- ur. Þó kvað ráðherrann rétt að vekja athygli á, að allmikil óvissa ríkir á mikilvægum mörkuðum um einstakar fisktegundir vegna harðnandi samkeppni annarra þjóða, sérstaklega Norðmanna. Ráðherrann kvað sérstaka ástæðu til að minnast á þá nýjung í af- urðasölumálum okkar, sem náð- ist í viðskiptasamningnum við Sovétríkin um sölu á 5000 tonn- um af heilfrystum fiski á árunum 1966—1968 og ennfremur nokkurt mágn til Tékkóslóvakíu. Þá hefur einnig opnast góður markaður fyrir freðsíld í Frakklandi, Belg- íu og í V.-Þýzkalandi. Síðan sagði ráðherrann, að eftir því sem vinnutækin verða stærri og stórvirkari, hlyti kostnaðurinn við að færa þau á milli staða og landshluta að verða meiri og tímatapið af þeim sökum jafn* framt meira. Ennfremur upplýsti ráðherrann að ríkisstjórnin hefði ákveðið að festa kaup á mjög stórvirkri sanddælu til hafnarframkvæmda, sem kosta mun 13—14 milljónir króna, en á miðað við núverandi þarfir að geta afskrifazt á nokkr- um árum vegna hinna miklu verk efna, sem bíða. •ooooooooooo<x>o<x BEN BARKAÍ IÁ LÍFI? Genf, 11. febr. (ntb-afp). Blað nokkurt í Genf hélt því fram í dag, að marokk- óski stjórnarandstöðuleið- toginn Ben Barka, se'm menn töldu að hefði verið myrt-ur, sæti í frönsku fang elsi. Blaðið „Tribune de Gen- eve” segir þetta í frétt frá fréttaritara sínum í París, sem hefur wpplýsingar sín- ar eftir góðum heimildum. í fréttinni segir, að Ben Barka hafi verið fluttur til staðar nokkurs í Suður-Mar- okkó fyrir 12 dögum og að hann sé við beztu heilsu. Blaðið segir, að Bén Barka hafi verið fluttur um borð í franska flugvél, sem fór með hann til Korsíku frá flugvelli í úthverfum París- ar, 36 klukkustundum eftir að honum var rænt. Frá flug vellinum de Travo á Korsíku flutti flugvélin hann til Ol- ombqabechar í Alsír, — og þar dvaldist hann þar til nú {yrir skemmstu, segir blað- ið. Hugsanlegt er, að Ben Barlm hafi verið misþyrmt og hann var ef til vill pynt- aður, en hann meiddist ekki alvarlega, segir heimildar- maður blaðsins, sem er Mú- hameðstrúarmaður. oooooooooooooooí

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.