Alþýðublaðið - 12.02.1966, Page 11
amtök íþróttafrétta-
manna 10 ára á mánudag
/jbróttafréttamenn minnast
afmælisins í dag
í DAG minnast íþróttafrétta-
menn þess, að tí\i ár eru liðin
síðan Samtök íþróttafréttamanna
OOOOOOOOOOOOOOO
Ármann sigraði
og setti 2 met
Tvö met voru sett á Reykja-
víkurmeistaramótinu í sundi
sem fram fór í Sundhöllinni
í fyrrakvöld. Boðsunds-
sveitir Ármanns í 4x100 m.
skriðsundi settu metin, í
kvennasundinu synti Ár-
mannssveitin á 4.58.2 min.
Gamla metið var 5.03,9 mín.
og sama sveit átti það. — í
karlasundinu synti Ármanns
sveitin á 4.13,5 mín., en
gamla metið, sem ÍR átti,
var 4.15,1 mín.
Sundmótið er stigakeppni
og sigraði Ármann, hlaut
78 stig, ÍR kom næst með
45 stig, Ægir hlaut 32 stig
og KR 5.
Að sundmótinu loknu fór
fram úrslitaleikur Reykja-
víkurmótsins í sundknattJ 1
leik. Ármann sigraði KR 5-
3 í jöfnum og skemmtileg-
um leik.
Nánar verður rætt um
mótið í blaðinu á morgun.
>OOOOOOOOOOOOOOC
voru stofnuð hér á landi. í ára-
tugi hafa slík samtök, verið starf-
andi á hinum Norðurlöndunum,
og fyrir frumkvæði norrænna í-
þróttablaðamanna voru stofnuð
alþjóðasamtök íþróttablaðamanna
fyrir rufnum fjórum áratugum,
og gerðust íslendingar aðilar að
þeim fyrir þremur árum.
Árið 1954 hófu samtök íþrótta-
fréttamanna á Norðurlöndum sam
starf um árlegar ráðstefnur, til
fræðslu og kynningar, og var
fyrsta ráðstefnan haldin í Osló
það ár. Hugmyndina að þessu
norræna samstarfi átti Per Chris-
tian Andersen, ritstjóri við Aft-
enposten i Osló, sem látinn er fyr-
ir fáum árum. Árið 1955 komu
hingað til lands nokkrir danskir
íþróttablaðamenn, i sambandi við
landsleik í knattspyrnu, milli ís-
lendinga o^ Dana. Meðal þeirra
var Carl Ettrup, formaður danska
íþróttablaðamannasambandsins,
og dvaldist hann hér um tíma og
kynntist ýmsum starfsbræðrum
sínum, m. a. Atla Steinarssyni,
íþróttaritstjóra Morgunblaðsins.
Þá um haustið var fyrirhuguð ráð
stefna norrænna íþróttablaða-
manna í Danmörku og bauð Et-
trup Atla til ráðstefnunnar og
ennfremur bauð hann ÍSÍ að senda
ritstjóra íþróttablaðsins, en ÍSÍ
sá sér ekki fært að taka þessu
boði og gekkst Atli þá fyrir því,
að Sigurði Sigurðssyni íþrótta-
f'-éttamanni útvarpsins yrði boð-
ið Sátu þeir Atli og Sigurður þessa
ráðstefnu og kynntust þarna ýms-
um forustumönnum norrænna í-
þróttablaðamanna, sem allir
hvöttu til þess, að stofnuð yrðu
samtök íþróttafréttamanna á ís-
landi, og að íslendingar gerðu3t
fullgildir aðilar að samstarfi
Norðurlandanna á þessu sviði. —
Þótt þessi stétt væri þá, og sé
enn, fámenn hér á landi, ákváðu
þeir Atii og Sigurður að boða til
stofnfundar Samtaka íþrótta-
fréttamanna og var stofnfundur-
inn lialdinn 14. febrúar 1956 og
verður 10 ára afmæli samtakanna
þvi á mánudag. Stofnendur sam-
takanna voru fjórir, fundarboð-
endurnir tveir og Frímann Helga-
son, Þjóðviljanum og Hallur Sím-
onarson, Tímanum. Atli Steinars-
son var einróma kjörinn formað-
ur samtakanna og Frímann Helga
son ritari og voru stjórnarmenn
ekki fleiri fyrstu árin. Smám sam-
an fjölgaði í stéttinni og Örn Eiðs
son, Alþvðublaðinu, var kosinn
í stjórn, ásamt þeim Atla og Frí-
manni og var stjórnin þannig skip
uð þar til á síðasta aðalfundi. —
Aðalfélagar í samtökunum eru nú
8, en réttindi aðalfélaga hafa þeir
einir, sem að staðaldri skrifa um
iþróttir í blöð, svo og íþróttafrétta
maður útvarpsins. Aukafélagar
geta þeir orðið, sem um stundar-
sakir skrifa um einstakar íþrótta
greinar eða eru íþróttaritstjórum
til aðstoðar, og hafa aukafélagar
verið um 10 talsins.
Núverandi stjórn Samtaka í-
þróttafréttamanna er þannig
skipuð: Sigurður Sigurðsson er
Framliald á 6, síðu.
Stofnendur Samtaka íþróttafréttamanna, talið frá vinstn: Frunann Iíelgason, Haliur
son, Atli Steinarsson og Sigiirðiu- Sigurðsson. M nd: JV.
Svigmótið í Hamragili hefst
kl. 1 e. h. á laugardag, ferðir
verða frá Umferðamiðstöðinni v.
Hringbraut kl. 10 f. h. og kl. 12
á hádegi. Stórsvigsmót Ármanns
! í Jósefsdal hefst kl. 2 e. h. á
I sunnudag, ferðir frá Umferða-
| miðstöðinni við Hringbraut kl. 10
• f. h. og 1 e. h. Á báðum þessum
. mótum eru 80 keppendur frá
i Völsungum á Húsavík, Akureyri,
ísafirði. Siglufirði, Ólafsfirði og
Reykjavíkurfélögunum fjórum,
ÍR, KR, Ármanni og Víking. ís-
landsmeistarinn Kristinn Bene-
diktsson keppir um þessa helgi á
móti í Noregi, en aðrir beztu
skíðamenn og konur landsins eru
meðal keppenda á mótunum um
helgina. í Hamragili mun Valdi-
mar Örnólfsson sjá um brautar-
lagningu, en í Jósefsdal mun
Stefán Kristjánsson form. Skíða-
sambands íslands sjá um brautar-
lagninguna. Þeir sem leggja leið
sína í Hamragil á laugardag og í
Jósefsdal á sunnudag mun gef-
ast tækifæri til að sjá beztu
og Jósefsdal um helgina
Körfuboltinn
íslandsmótið í körfuknatt-
leik heldur áfram um helg-
ina að Hálogalandi. í kvöld
kl. 20,15 verða háðir þrír
leikir, fyrst leika ÍR og Ár-
mann í 2. fl. karla og síðan
ÍS—KFR og ÍR—KR í I.
flokki karla.
Á morgun á sama tíma
fara fram tveir leikir í I.
deild, sem báðir geta orðið
hinir skemmtilegustu, fyrst
leika íslandsmeistarar KR
við ÍKF og síðan Reykja-
víkurmeistarar KFR og Ár-
mann.
VmWMMMVUMtlMMUMHWt'
Þessi mynd er tekin í leik Vals og SC Leipzig í Evrópuhikarkeppiit
kvenna í handknattleik í vikunni. Það er Sigrún Ingólfsdóttír,
sem er hindruð ólöglega og vítakast er dæmt á SC Leipzijr,
Mynd: JV.
Skíðamót í Hamragili
skíðamenn landsins í braut. Hitt-
umst heil á fjöllum um helgina.
í ÍR-skálanum eru kaffiveitingar
á laugardag, á sunnudag verða
kaffiveitingar í Ármannsskálan-
um.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 12. febrúar 1966 %1