Alþýðublaðið - 01.03.1966, Page 2

Alþýðublaðið - 01.03.1966, Page 2
Ííeimsfréttir sídastlidna nótt LONDON: — Harold Wilson forsætisráðherra tilkynnti i tær að efnt yrði til nýrra þingkosninga í Bretlandi 31. marz. Ákvörðunin v?r tekin í trausti þess, að brezkir kjósendur tryggi Verkamannaflokknum ótvíræðan sigur yfir íhaldsmönnum og Wil- son íorsætisráðherra örugg völd næstu fimm árin. Þing verður rofið 10. marz. MOSKVU: — Aukaflugvél frá Peking, sem sennilega er með Nkruma.li fyrrum forseta Ghana innanborðs, var væntanleg til Moskvu í kvöld að sögn flugfélagsins Aeroflot. Ekki hefur verið staðfest, livort Nkrumah er í vélinni en hann fór frá Peking í einni af flugvélum Aeroflot fyrr um daginn. Engin við- höfn var við brottför Nkrumah frá Peking og stakk það í stúf við hinar virðulegu móttökur er hann lilaut við komu sína þangað. á timmtudaginn. ACCRA: — Leiðtogi nýju stjórnarinnar í Ghana, Ankrah tiershöfðingi, tilkynnti í gær, að Nkrumah fyrrum forseta yrði stefnt fyrir rétt, ef hann sneri aftur til Ghana. Hvert það land, sem Nkrumah dveldist í, yrði beðið um að framselja hann. Ankrah •íershöfðingi kvað ekkert vera liæft í því, að nýja stjórnin hygð- - ist slíta stjórnmálasambandi við Sovétríkin og Kína. Stjórnin vildi vinsamleg samskipti við allar þjððir. ADDIS ABEBA: Ráðherranefnd Einingarsamtaka Afríku tókst ekki að koma sér saman um það á fundi í gær kvort þau e;ltu að viðurkcnna Kwame Nkrumah og stjórn hans eða nýju stjórnina í Ghana sem hina löglegu stjórn landsins. Fulltrúum ♦iýjii stjómarimiar verður leyft að sitja fund ráðherranefndar- innar á morgan er gengið verður frá dagskrá ráðstefnunnar og forsetar þess valdir, en óákveðið er, hvort fulltrúum Accra-stjórn- arinnar yerður leyft að greiða atkvæði. Nkrumah hefur sent utan- cíkisráðherra sinn, Quaison-Sackeý, að sitja ráðstefnuna. DJAKÚRTA: — Hermenn voru sendir í flýti á ýmsa mikil- væga staði í Djakarta þar eð til átaka kom með stúdentum, sem efndu til métmæla gegn kommúnistum, og stuðningsmönnum -kommúnista. Þeir, sem mótmæltu, og hinir, sem mótmæltu. þeim sem mótmæltu hittust fyrir utan háskóla borgarinnar og skiptust á skammaryrðum. HOUSTON: Bandarísku geimfararnir Elliott See og Char- -les Bassett fórust í gær í flugslysi í St. Louis í Missouri. DA NANG: — Bandarískir og suður-victnamiskir hermenn állu í hörðuin bardögum við Vietcong á þrem stöðum á norður- strönd Suður-Vietnam í gær. Skæruliðar réðust á fámennan flokk suður-vietnamiskra hermanna í þorpi um 112 km. norður af . Saigon. NÝJU DELHIí — Forsætisráðherra Indlands frú Indira Gandhi, fer í heimsókn til Bandaríkjanna 27. marz, að því er skýrt var frá á indverska þinginu í gær. . Ný kvikmynd um Grænlandsflug Reykjavík, OÓ. Grænlandsflug heitir síðasta kvikmyndin sem Geysismyndir h.f. hafa framleitt. Var hún sýnd nokkr um gestum í Háskólabíói í gær. Sýningartími myndarinnar er 15 Féll af 7. hæð 09 beib bana Rvík, - ÓTJ. Miðaldra kona beið bana í fyrra kvöld er hún féll af svölmn á sjö undu hæð hússins númer 23 í Sól heimum. Var hún Iátin þegrar að var komið, enda gaddfreðin jörð undir. Rannsókn málsins er enn á frumstigi, og verður nafn Iienn ar því ekki birt að sinni. mínútur og fjallar hún um flug einnar af Vélum Flugfélags íslands tii Grænlands. Þorgeir Þorgeirsson annaðist töku myndarinnar, klippingu og samningu texta. Tónlist er samin af Leifi Þórarinssyni og þulur er Þorsteinn Ö. Stephensen. Myndin byrjar í Scoresbysundi og þaðan er fylgst með flugi norð- ur með ströndinni til Meistaravík- ur og alit norður til Danmarks- havn, sem er við 77. breiddarbaug, en það er mikilvæg veðurathugun arstöð, í kvikmyndinni er lýst flugi skíðavélar af Douglasgerð og við erfið skilyrði þar sem flugvellir eru ekki annað en snjóbreiður, Flugstjóri í þessari ferð var Jó- hannes Snorrason. Þá eru sýnd- ar svipmyndir úr lífi ibúa þeirra staða sem flogið er til. Myndin er tekin á svart-hvíta 35 mm filmu. . Myndin er framleidd á vegum Geysis-mynda en fyrirtækið naut | góðrar fyrirgreiðslu Flugfélagsins í og Grænlandsverzlunarinnar, dönsku við töku hennar. Þorgeir sagði að mynd þessi væri hugsuð sem aukamynd með lengri mynd- um. Ekki er búið að semja um sýningarrétt á henni í Reykjavík en lúns vegar víða úti um land og liefjast sýningar á henni bráð- lega Gerð þessarar myndar er lið- ur í þeirri starfsemi Geysis-mynda að framleiða margar stuttar kvik- myndir sem ætlaðar eru sem auka myndir en lítill áhugi kvikmynda- húseigenda í Reykjavík hamlar þeirri starfsemi mjög. Móðir Basse litla heitir á ræningjann Kaupmannahöfn, 28. 2, (NTB. -RB.) — Frú Anna Biirgel, móðir Basse litla, sem rænt var á götu úti í Óðinsvéum fyrir þremur vikum, skoraði ákaft á barnsræningjann í kvöld að skila barninu aft- ur, Áskorun frú Burgels var útvarpað og sjónvarpað. Lögreglan stendur enn uppj róðþrota í málinu. Gert er ráð fyrir öllum hugsan legum möguleikum. Barn eða fullorðinn maður eða kona kunna að hafa tekið drenginn úr vagninum, hugs anlegt er að hann hafi ver ið borinn burtu, settur í annan barnavagn eða að honum liafi verið ekið burtu í bifreið, að sögn Niels Kohs els fulltrúa, sem stjórnar leit inni. Hann skoraði á fólk að vera á verði og setja sig í samband við lögregluna ef það verður vart við eitthvað grun'amlegt. Til þessa hafa lögreglunni borizt 1800 á- bendingar, án þess að hún hafi komizt á slóð barnsræn ingjans. Villy Holm Hvilsby stjóri, sem hcitið hefur 100. 000 krónum öllum þeim er veitt geti upplýsingar sem leiði til þess að Basse litli finnist sagði í dag, að ef eng ar slíkar upplýsingar bærust fyrir miðnætti í nótt léti hann peningana renna til bágstaddra mæðra. ÉLDUR kom upp í lager sem rafveitan hefur að Barónstíg 4, úm fjögu rh’itið í dag. Þegar slökkviliöið kom á vettvang vai cldurinn oröinn töluvert mikill, og uröu slökkviliðsmenn að rjúfa þakiö til þess aö komast að honum meö deelur slnar. Tókst þeim von bráöar að ráða niöurlögum hans, en skemmdir urðu allmiklar af vatni og reik. 2 1. rnarz 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.