Alþýðublaðið - 01.03.1966, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 01.03.1966, Qupperneq 3
Vilja hefja loðdýrarækt Hlutafélagið Loðdyr lielt al- mennan hluthafafund sl. sunnu dag. Félagið vinnur nú að undir búningi þess að koma á fót loð dýragarði, ef Alþingi samþykk- ir frumvarp um það efni sem nú liggur fyrir þingi og félagið fær nauðsynleg leyfi til að hefja slík an rekstur. Fundurinn samþykkti eftirfarandi tillögu: ..Almennur hluthafafundur í Loðdýr hf. haldinn í Reykjavík Ella Fitzgerald syngur í kvöld ELLA FITZGERALD mun end- urtaka hljómleika sína í Háskóla- bíói í kvöld kl. 23,15. Söngkonan hélt fjóra tónleika sl. laugardag og sunnudag. Verð aðgöngumiða á hljómleikana í kvöld er mun lægra en á fyrri hljómleikana, eða kr. 300,00. Aðgöngumiðaverð á fyrri hljómleikana var kr. 425,00. Á hljómleikunum kemur tríó Jimmy Jones einnig fram og að- stoðar söngkonuna. Eila Fitzgerald mun dveija hér á landi til fimmtu dags, en þá fer hún til Banda- ríkjanna í þotu frá Pan American flugfélaginu. sunnudaginn 27. febrúar 1966, leyf ir sér að skora á hið háa Alþingi að samþykkja frumvarp til laga um loðdýrarækt, sem nú liggur fyrir Alþingi. Fundurinn leyfir sér að benda á, að sterk rök hnígi að því, að hér á landi megi stunda loðdýra rækt á nútímavísu, í stórum stíl og með góðum árangri, og að sú atvinnugrein, ef leyfð væri, mundi geta skapað þjóðarbúinu veruleg ar gialdeyristekjur. Þá leyfir fundurinn sér ennfrem ur að láta þá skoðun í ljós, að stórlegp hafi verið ýkt sú hætta, sem náttúrulífi landsins er talin rtafa af loðdýrarækt, og bendir á að með nvrri tækni og fullkomn um varúðarráðstöfunum þarf ekki otsfa moiri hætta af loðdvra- rækt en vmsum öðrum atvinnu grpim’m. sem hér eru leyfðar." Tiúaffa hessi var samþykkt í eimi þiióði. Á fundinum var ennfremur svnt likan af ioðdvragarði, sem félae ið hefnr látið gera. Vakti líkan ið ócVínta athygli. r oðð-'T v,f var sfofnað 28. febr. 1PRR «+iðrn félagsins skina nú: Bridde. formaður, Jón TVTacrnú mn. varaformaður. Gnnn ar Torfáson. Werner Rasmussen. Stpion T.ímsson, Sveinn Guðbiarts son otr Eiður Guðnason Skúli Þórðarson formaður Verkalýðsfélags Akraness Aðalfundur Verkalýðsfélags Akraness var haldinn sl. sunnu- dag í Sjómannaheimilinu. Form. félagsins Guömundur Kr. Ólafs son flutti skýrslu um starfsemi félagsins á síðastliðnu ári. Megin þátturinn í starfsemi félagsins, var sem oft áður í sambandi við kaupgjaldsmálin. í félagið gengu 44 nýir félagar, en 31 fóru úr af ýmsum sökum. í félaginu eru nú 523 félagsmenn. Stjórn félagsins var sjálfkjör in ,en hana skipa, Skúli Þórðar son formaður, Guðmundur Kr. Ó1 afsson ritari og Kristján Pálsson meðstjórnandi. Varaformaður var kjörinn Hálfdán Sveinsson, vara ritari Herdís Ólafsdóttir og vara meðstj. Bjarnfríður Leósdótt- ir. Guðmunduj- Kr. Ólafsson sem undanfarin 5 ár hefur verið for maður félagsins baðst eindregið undan endurkjöri, sömuleiðis Kristján Guðmundsson, sem setið hefur í stjórninni jafnlangan tima Var báðum þes um mönnum þökk uð góð störf í þágu félagsins. Herdís Ólafsdóttir, sem undan farin ár hefur verið starfsmaður félagsing hefur sagt því starfi lausu. Á fundinum kom fram til laga þar sem var skorað á hana að gegna starfinu áfram og voru fundarmenn á einu máli um að hún hefði unnið félaginu svo vel, að mikil eftirsjá væri að missa hana úr starfinu. Á fundinum ríkti mikill samhug ur og áhugi fyrir málefnum félags ins. Hinn nýkjörni formaður Verka lýðsfélags Akraness, Skúli Þórð arson( er 35 ára að aldri og er “tarfsmaður hjá Sementsverksmiðj unni á Akranesi. Skúli Þórðarson. >WWWWWWWMWMWWIWWWMWMWW ,WWWtWWMWWWMHWWV-.-^WfWMWV BRENNIR PENINGA í ’ AUSTURBÆJABÍC Reykjavík — OÓ. Skrifstofa skemmtikrafta efn ir til miðnæturskemmtunar í Austurbæjarbíóí nk. fimmtu dagskvöld. Alls koma þar fram 50 skemmtikraftar. Meðla þeirra eru Savannatríóið, Óm ar Ragnarsson, Karl Guðmunds son, Jón Gunnlausson, leik- húskvartettinn og ballethópur undir stjórn Fay Werner. Þá skemmtir þarna ungur Siglfirðingur sem ekki hefur sé t oft áður í samkomuhúsum höfuðborgarinnar. Heitir hann Ásmundur Pálsson og sýnir töfrabrögð. Hann hefur sýnt margs konar sjónhverfingar á skemmtunum úti á landi und anfarin ár og í Vestmannaeyj um í vetur. Ásmundur hefur löngum verið sjómaður að at- vinnu og ruglað fólk með sjón hverfingum í frístundum sínum. Hann leit við hér á blaðinu í gærdag og skemmti sjálfum sér og hrelldi aðra með því að brenna þúsund króna seðla, en þeir spruttu óskemmdir úr ösk unni einsi og fuglinn Fönix forðum, og hvernig það mátti ske veit guð einn og Ásmund- ur. Sitthvað kveðst hann gera fleira fólki til unað semda. Til dæmis að saga sundur stúlk ur, verpa eggjum, láta skjóta gegn um sjálfan sig, og breyta mús í kött svo eitthvað sé nefnt Spilagaldra hætti hann við inn an við fermingu. Ásmundur kveðst hafa lært fyrstu töfrabrögðin aðein fiög urra ára að aldri og hafi hann sífellt æft sig síðan og fundið upp nýjar sjónhverfingar og smíðað tæki til þeirra nota. — Ég hef lært þetta allt af sjálfum mér en í vor ætla ég í skóla í London, bar sem Framhald á 15. síðu Ásmundur brennir peninga. Kalu og Alli Ruts i hlutverkum Gög og Gokke Þingkosningar í Englandi 31. marz London, 28. 2. (NTB-Reuter.) Harold Wilson forsætisráðherra tilkynnti í dag, að efnt yrði til nýrra þingkosninga 31. marz. Á kvörðunin er tekin í trausti þess að 36 milljónir brezkra kjósenda tryggi Verkamannaflokknum ótví ræðan sigur yfir íhaldsmönnum og Wilson forsætisráðhenra, örugg völd í fimm ár. Þing verðm- rofið 10. marz. í kosningabaráttunni mun Wil son biðja kjósendur um umboð til að halda áfram umbótastefnu þeirri í efnahag málum og félags málum sem hafin var þegar Verka mannaflokkurinn komst til valda í október 1964 eftir 13 ára stjórn íhaldsmanna. Flokkurinn hafði í fyrstu aðeins fimm atkvæða meiri hluta á þingi, er síðan hefur minnk að í þrjú atkvæði, og Wilson mun sennilega beita þeim rökum, að hann þurfi aukinn meirihlúta til að hrinda umbótaáætlunum sínum í framkvæmd, einkum í launa- og verðlagsmálum, en nauðsyn beri til að koma í veg fyrir launaj- og verðhækkanir. Verkamarinaflokkurmn vonari- að hann njóti góðs af háum laufium almennings um þe sar muridir, I litlu atvinnuleysi, stöðugri vefvild 1 í garð stjórnarinnar er auka Íosn I ingar og slcoðanakannanir hafa ' íeitt í ljós og klofningnum í íhalds 1 flokknum vegna Rhodesíudeilunn ar. íhaldsmenn hyggjast láta Rliod í Framh á 14 émti ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 1. marz 1966 3

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.