Alþýðublaðið - 01.03.1966, Side 8

Alþýðublaðið - 01.03.1966, Side 8
Cstanley] HANDFKÆSARINN er — fjölhæfur — handhægur — hraðvirkur Kynnið yður hina ótalmörgu lcosti þessa frábæra rafmagnsverkfæris. Er með vinnuljósi! ^ðBtk LUDVIG STORR Laugavegi 15. — Sími 1-33-33. M.s. Herðubreið SKIPAUTGCRÐ RIK fer vestur um land í hringferð 3 þ.m. Vörumáttaka á þriðjudag til Kárpaskers, T’órshafnar, Bakka- fjarðar, Vopnafjarðar, Borgar- fjarðar, Stöðvarfjarðar, Breiðdals- víkur og Djúpavogs. 'Farseðlar seldir á miðvikudag. M.s. Herjólfur fer til Vestmannaeyja og Horna fjarðar á miðvikudag. Vörumót- taka til Hornafjarðar í dag. Bifreiðaeigendur V atnskassaviðgerð ir Elimentaskipti. Tökum vatnskassa úr og setjum í. Gufuþvoum mótora. Eigum vatnskassa í skipt- um. Vatnskassa- verkstæðið Grensásvegi 18, Sími 37534. II nVr-i Börn erum við öll Þjóðleikliúsið: GULLNA HLIÐIÐ Sjónleikur í þremur (!) þátt- um eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi Tónlist eftir Pál ísólfsson Leikstjóri: Lárus Pálsson Leikmynd og þúningateikning- ar: Lárus Ingólfsson Hljómsveitarstjóri: Bohdan Wodiczkö ÞAÐ er líklega ástæðulaust að setja nú á langar tölur um Gullna hliðið. Leikurinn hefur notið sam- felldra vinsælda frá því hann var frumsýndur í Iðnó fyrir 25 árum og virðist nú orðinn órofa hluti okkar fátæklega leikhúsarfs, einn þeirra leikhúsverka okkar sem eru líkleg að viðhaldast á sviðinu um ófyrirsjáanlega framtíð. En með þessari sýningu Þjóðleikhúss- ins kann að ganga í garð reynslu- tími Gullna hliðsins — eins og að líkindum annarra verka Davíðs Stefánssonar. Ég er að vísu ekki svo kunnugur fyrri sýningum leiksins að ég geti borið þessa saman við þær í smáatriðum. En það er Ijóst að sviðsetning hans hefur raunverulega verið hin sama frá öndverðu og fram á þennan dag, þrátt fyrir nokkra styttingu í meðförunum og þrátt fyrir flutn- inginn milli leikhúsa; nú mun reyna á það hve mikið af vinsæld- um hans var að þakka ómetanleg- um leik Arndísar Björnsdóttur og Brynjólís Jóhannessonar í aðal- hlutverkunum, hvort yngri leikar- ar megna að taka upp verk þeirri. Ég trúi mætavel þeirri kenning að Gullna hliðið hafi hvergi notið sín betur en í upprunalegri mynd sinni á sviðinu í Iðnó. Og eftir sýningu Þjóðleikhússins virðist það fullkomið álitamál hvort ekki hafi verið vert að doka við ögn lengur, — og taka þá leikinn upp frá rótum með nýrri sviðsetning samfara mannaskiptum í aðalhlut- verkunum. Hvort það verður gert í bráð kann að ráðast af þeim undirtektum sem þessi sýning fær. Þrátt fyrir allan orðstír Gullna hliðsins og Davíðs Stefánssonar verður engan veginn sagt áð leik- urinn sé markverður skáldskapur. Það er áreiðanlega ofrausn að segja hann fjalla um „hina eilífu togstreitu ills og góðs um sál mannsips,” eins og Kristján Eld- járn víkur að í leikskrá. En hitt er hverju orði sannara, sem Kristján segir síðan, að styrkur leikritsins sé „hinn hreini og ein faldi, xipprunalegi tónn, sem í því kveður' við, stundum alþýðlega hrjúfué, oft kímilegur.” Þó Gullna hliðið ké æði-langdregið verk og bláþráðótt hefur Davíð Stefáns- syni tekizt að höndla þar eitthvað af upprunalegum þokka þjóðsög- unnar, anda þjóðtrúar og þjóð- siða; hann dregur upp alþýðlega, græzkulausa mynd frumstæðs þjóðlífs þó hann vinni til engra muna úr efnivið sínum. Syndasel- irnir sem Jón og kerling hans hitta fyrir í öðrum þætti, guðs út- völdu í þriðja þætti, sjálfir post- ular drottins og María mey í fjórða, allt þetta fólk er íslenzkt sveitafólk fyrst og síðast eins og sjálf hin klassíska kerling í kot- inu, ódauðleg kvenlýsing íslenzk. Þjóðlífslýsingin er kjarni leiks- ins; einlægni, einfeldni hennar gefur honum gildi; honum kemur ekkert verr en uppgerður hátíð- leiki, íburður, andlegheit; and- aktin í leiknum er að sínu leyti jafn-einföld og skop hans. Þessa einfeldni hlýtur hver sýning að reyna að varðveita ómengaða. Þetta er Lárúsi Pálssyni leik- stjóra vitaskuld allra manna Ijós- ast sem hefur haft veg og vanda af sviðsetningu leiksins frá upp- hafi. Engu að síður fannst mér gæta með köflum í þessari sýn- ingu tilhneigingar til að taka verk efnið óþarflega hátíðlega, leggja óeðlilega upp úr meintum „and- legum” verðmætum þess — sem glöggt kom fram í lok fyrsta og þriðja þáttar, til dæmis, og svo sjálfri lokamynd sýningai-innar þar sem Jón bóndi heykist loks fyrir dýrðartrón Maríu meyjar. En þetta helgihald spillir raun- ; K Margrét Guðmundsdóttir, Guðb jörg og Róbert Arnfinnsson, verulega hinni barnslegu himna- gleði leikslokanna, ómengaðri þjóðlegri barnatrú hans — barn ert þú í hjarta og börn erum við öll. Trúarboðun leiksins þarf enga áherzlu umfram þá sem í þessari setningu felst; alvara leiksins felst öll í græskulausri gamansemi lxans. Þetta atriði skiptir kannski minnstu máli eitt sér; það sem sker ur því hvort rétt var ráðið að taka upp Gullna hliðið með þeim hætti sem hér var gert eru vitaskuld aðalhlutverkin í með- förum þeirra Guðbjargar Þorbjarn ardóttur og Rúriks Haraldssonar. Um mannlýsingar er ekki að tala í Gullna hliðinu að kerlingu frá- talinni, jafnvel ekki Jón hennar sjálfan; allir sem við sögu koma eru persónugerðar svipmyndir, séðar og mótaðar í hlutfalli við kerlinguna. Kerlingin geislar móðux-legri hlýju sem umvefur allt og alla í leiknum, þó Jón gangi auðvitað fyrir, náttúrlegri góðvild og umburðarlyndi, ósjálfráðu græskuleysi sem enganveginn úti- lokar viss klókindi, hégómaskap, útsjónarsemi. Hún elskar himna- föðurinn, óttast óvininn — en kem- ur ekki til hugar að láta þá ofbjóða sér. Þrátt fyrir allt eru þeir ekki nema pólarnir í hennar eigin heimsmynd. hennar eigin hug- smíð sem er gegnsýrð af kærleika hennar ofar öllum kennisetningum. Hún er fyrst og síðast náttúrleg, heimakomin í heimi leiksins sem er allur hennar eigin. Hennar góða hjartaþel er kvika leiksins. Hafi það ekki verið Ijóst fyrir þessa sýningu hve mikinn þátt Arndís Björnsdóttir hefur átt í sigurför GulJna hliðsins getúr það ekki farið milli mála eftir hana. Það verður ekki lagt Guðbjörgu Þorbjarnardóttur til lasts að hún jafnast ekki á við fyrirrennara sinn; gáfa hinnar mikilhæfu leik- konu er af allt öðru tagi; en það Jón (RúrU 8 1. marz 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.