Alþýðublaðið - 01.03.1966, Page 9

Alþýðublaðið - 01.03.1966, Page 9
c Haraldsson), Kerlingin (Þorbjörg Þorbjarnardóttir og óvinurinn (Gunnar Eyjóljsson). er stjórn Þjóðleikhússins til á- fellis að ætlast til þess af Guð- björgu að hún gangist undir full- mótað hlutverk sem alls ekki hæfir hehni. Að svo mæltu er skylt og sjálfsagt að taka fram, að Guð- bjþrg Þorbjarnardóttir hefur sýni- lega lagt mikla rækt við kerling- una, lýsir henni skilmerkilega með alúð og nákvæmni, og einatt gæt- ir lijá henni hlýlegrar gamansemi; en íhugull, tempraður leikmáti hennar fær ekki komið í stað þeirrar náttúrlegu, óyfirlögðu út- geislunar sem hlutverkið út- heimtir. Einnig Rúrik Haraldsson geldur samanburðar við sinn fyrirrennara í hlutverkinu; Jón bóndi verður fábrotnari, rustaskapur hans allur sniðasmærri en maður á að minn- ast og væntir af lilutverkinu; — hann minnkar allur í hlutfalli við kerlinguna. Og sama gildir að sínu leyti um Óvininn; hann vekur ekki í öðrum þætti þá ógn, þriðja þann aðhlátur sem er að vænta í hugarheimi kerlingar, eins og hann á að sér. Samt hygg ég að Gunnar Eyjólfsson - útbúinn eins og indíánahöfðinginn Fljúgandi Pílan á mannaveiðum. og með nóg ar púðurkeríingar — megi una sín um hlut tiltölulega bezt þeirra þremenninganna; hann skilaði þrátt fyrir allt mjög hæfilega hlakkandi og ofstopafullum myrkrahöfðingja. Fjölmargir aðrir leikarar koma við sögu í minni hlutverkum sem of langt yrði upp að telja, — en flest eru hlutverkin skipuð með fullnægjandi móti eftir efnum og stefnu sýningarinnar. En einkum vöktu athygli Vilborg grasakona Önnu Guðmundsdóttur í fyrsta þætti, heilsteypt og hófsamleg lýs- ing gædd yfirlætislausri kímni; frilla Jóns og drykkjubróðir í öðrum, Herdís Þorvaldsdóttir og Bessi Bjarnason, og prestur Valdimars Lárussonar í þriðja, allt venjubundnar lýsingar; post- ularnir Pétur og Páll í fjórða, Val- ur Gíslason og- Jón Sigurbjörnsson aðsópsmiklir og virðulegir og þó mátulega mannlegir. Þeir eru ættaðir af altaristöflum eins og Mikael höfuðengill Jóns Júlíussonar og María mey sem Sigríður Þorvaldsdóttir lék, heldur en ekki doffíneruð, en hefði betur ekkert sagt; María mey talaði eins og bókhneigð vinnukona fyrir 30 árum. Búningar Lárusar Ingólfs- sonar finnst mér vandaðri og álit- legri verk en sjálfar leikmyndirn- ar sem eru þesslegar að Gullna hliðið sé enn ekki flutt til fulln ustu af sviðinu í Iðnó og upp í Þjóðleikhús. — Ó.J. NB. — Skylt er að geta þess að það er rangt í leikskrá að Gullna hliðið sé sjónleikur í þremur þátt- um. Þættirnir eru reyndar fjórir. Kerlingin (Gnðbjörg Þorbjarnardóttir) og Lykla-Pétur (Valur Gislason). Vortízkan -1966 Nýjar vorkápur Nýjar vordragtir Nýjar terylenkápur Nýjar fermingarkápur Bernhard Laxdal Kjörgarði. Skreiðar- framleiðendur Okkur vantar skreið til afskipunar strax. Vinsamlegast hafið samband víð okkur sem fyrst. STEiNAVÖR HF. Norðurstíg 7, Reykjavík, Sími 24123. ! k . í : Frostklefahurdir Fyrirliggjandi. Trésmiðja Þorkels Skúfasonar Nýbýlavegi 6 — Sími 40175. Félagasamtökin VERND halda aðálfund í Tjarnarbúð, Vönarstræti 10, iþriðjudaginn 8. marz 1966 kl. 20.30 e.h. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Óskuni eftir að ráða rafsuðumenn plötusmiði vélvirkja og aðstoðarmenn að skipasmíðastöð okkar. Öli vinna unnin í upphituðu húsi. Stálskipasmiðjan hf. v/Kársnesbraut, Kópavogi. ALÞYÐUBLAÐIÐ - 1. marz 1966 $

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.