Alþýðublaðið - 01.03.1966, Qupperneq 10
1
Ritsfióri Örn Eidsson
Sigurður Einarsson og
Marta B. meistarar
1 Reykjavíkurmótinu var haldið
áfram um síðustu helgi við ÍR-skál-
ann í Hamragili. Á laugardaginn
hófst keppni kl. 3 og var keppt í
svigi stúlkna- drengja- B og C-
flokkum karla. Á sunnudag hófst
keppni kl. 2 og var keppt f svigi
í kvenna- og A-flokki karla. Veður
var mjög gott báða dagana, þó
einkum seinni daginn og skíðafæri
ágætt. Mjög margt fólk safnaðist
saman til að fylgjast með keppn-
inni á sunnudeginum, enda veðrið
mjög fagurt sól og blíða. Mótstjóri
var Sigurjón Þórðarson formaður
Skíðadeildar ÍR og sér ÍR um alla
'ramkvæmd á móti þessu "Undan-
ári í öllum brautum var Árdís
- ’órðardóttir frá Siglufirði. Að lok
nni keppni á sunnudaginn fór
ram verðlaunaafhending fyrir all
ir greinar, sem lokið er keppni í
Reykjavíkurmótinu 1966.
A-flokkur karla:
Braut 58 hlið, lengd 550 metrar
hæðarmismunur 120 metrar.
Reykjavíkurmeistari: Sigurður
Einarsson, ÍR 107,3
Bjarni Einarsson, Árm. 109,3
Þorbergur Eysteinsson, ÍR 111,4
Bogi Nilsson, KR 111,4
Gunnl. Sigurðsson, KR 112,8
Sig. R. Guðjónsson, Árm. 114,3
Kvennaflokkur:
Braut 38 hlið, lengd 350 metrar
hæðarmismunur 80 metrar.
Reykjavíkurmeistari: Marta B.
Guðmundsdóttir, KR 68,7
Hrafnhildur Helgad., Árm. 69,3
Jakobína Jakobsdóttir, ÍR 78,4
Sesselja Guðmundsd., Árm. 85,1
St.úlknaflokkur:
Braut 30 hlið, lengd 250 metrar
hæðarmismunur 70 metrar:
Auður B. Sigurjónsd., ÍR 61,4
Lilja Jónsdóttir, Árm. 67,5
Áslaug Sigurðardóttir Árm. 73,9
Jóna Bjarnadóttir, Árm. 78,7
Drengjaflokkur:
Braut 30 hlið, lengd 250
hæðarmismunur 70 metrar:
Eyþór Haraldsson, ÍR
Haraldur Haraldsson, ÍR : 50,9
Guðjón Sverrisson, Árm.
Jón Ottosson, Árm.
C-flokkur:
Braut 35 hlið, lengd
hæðarmismunur 90 metrar.
Sigfús Guðmundsson, KR
Örn Kjærnested, Árm.
Bergur Eiríksson, Árm.
Jóhann Jóhannsson, Árm.
B-flokkur:
Braut 45 hlið, lengd 450 metrar
hæðarmismunur 100 metrar.
Björn Bjarnason, ÍR 89,1 |
Elías Einarsson, ÍR 101,0
Georg Guðjónsson, Árm. 104,0
Ágúst Björnsson, ÍR 132,4
ENSKA KNATTSPYRNAN
KARL JÓHANNSON, KR
25 leikur á sunnudag.
Þau óvæntu tíðindi urðu í Eng-
landi á laugardag, að Liverpool
tapaði 0:2 fyrir Eulham, liðnu sem
er að berjast fyrir tilveru sinni í
I. deild. Earle, innherji skoraði
bæði mörkin. St. John var vísað
af leikvelli eftir smá hnefaleik
seint í leiknum. Liverpool hefur
ekki tapað leik i I.deild síðan 26.
desember. Liverpool er með 47
stig eftir 32 leiki, en Manehester
Utd. sem vann Burnley 4:2 kemur
næst með 39 stig eftir 30 leiki.
Herd skoraði þrjú mörk fyrir Utd.
I. deild:
Blackburn — Sunderland 2:0
Blackpool — Aston Villa 0:1
Everton — Chelsea 2:1
Fulham — Liverpool 2:0
Manchester United — Burnley 4:2
Newcastle — Stoke 3:1
Sheffield Utd. - Leeds Utd. 1:1
West Bromwich - Northampton 1:1
Arsenal — Tottenham aflýst
Leicester — West Ham aflýst
Nottingham — Sheff. Wednes-
day aflýst.
II. deild:
Birmingham — Playmouth 1:0
Bolton — Bury 2:1
Cardiff — Rotherham 0:0
Carlisle — Manchester City 1:2
Coventry — Bristol City 2:2
Derby — Wolverhamton 2:2
Huddersfield — Crystal Palace 1:1
Inqswich — Portsmouth 1:0
Leyton Orient — Charlton 1:2
Middlesbrouh — Preston 2:1
Southamptoh — Nonvich 2:2
Hörður Kristinsson skoraði 14 mörk á sunnudag
ÁRMANN KR 24:18
Tveir nýliðar í lands-
Eiði gegn Rúmeníu
Rúmenía, heimsmeistararnir
í handknattleik karla eru vænt-
anlegir til Reykjavíkur aðfarar
nótt fimmtudags og leika • við
íslendinga laugardag og sunnu-
dag kl. 5. Báða dagana verða
forleikir, sem hejjast kl. 3,45,
Fyrri daginn leikur unglinga-
landsliðið vfð VaJ, og fiann síð-
ari við ÍR. Lúðrp.sveit, Reyk,ja-
víkur leikur frá .kl. 4,30 báða
dagana. $ala aðgöngumiða
hefst í dag í bókaverzlun Lárus
ar Blöndal við Skólavörðustíg
og í Vesturveri.
íslenzka landsliðið hefur ver-
ið valið. Það skipa Hjalti Ein-
arsson, FH, Þorsieinn Björns-
' son,Fram, Gunnlaugur Hjálm-
arsson, Frarh, sem er fyrirliði,
Sigurður Dagsson, Val, Her-
hiánn, Gunnarsson, Val, Sigurð-
ur Einarsson, Fram, Geir Hall-
stéinsson, FH, Guðjón Jónsson,
Fram, Karl Jóhannsson, KR,
Hörður Kristinsson, Ármanni,
og Stefán Sandholt, Val. Tveir
nýliðar leika í liðinu, Þeir Sig
urður Dagsson og Geir Hall-
steinsson, Karl Jóhannsson
leikur sinn 25: landsleik.
ísland og Rúmeníd hafa einu
sinni leikið landsleik í hand-
knattleik, það var 1958 og þá
vann ísland 13:11. Rúmenía
varð heimsméistari 1961 og
aftur 1964. Þekktasti leikmað-
ur liðsins er Ioan Moser.
Ármenningar fluttu sig sæti of
ar á stigatöflunni í I. deild, með
sigri yfir KR. Eru því KR-ingar
neðstir að stigatölu í I. deildinni
nú, að vísu með 5 leiki meðan Ár-
mann hefur leikið 7. Ármenningar
hafa svo sem kunnugt er verið
neðstir þar tii nú. Leikur þessi
var ekki sá baráttuleikur sem bú
ast hefði mátt við af hálfu KR-
inganna. Ármenningarnir voru
með pigiwinn I höndunum frá
byrjun. Ármenningarnir byrjuðu
mjög vel, eftir 5 mín. leik voru þeir
búnir að skora þrjú mörk á móti
einu frá KR.
En Hilmar sem nú lék aftur
með KR bætti við öðru marki af
línu, og Heinz náði að jafna fyrir
KR með hörkuskoti af línunni á
9. mín. Eftir það tóku Ármenning
arnir leikinn aftur í sínar hend
ur og skora nú þrjú mörk á móli
einu frá KR. Karl Jóhannss. hafði
í millitíðinni tekið vítakast en
Sveinbjörn varði glæsilega.
Enn skora Ármenningar þrjú
mörk og átti Hörður öll þau mörk,
en Heinz náði að skora eitt mark
fyrir KR inn á milli.
Voru nú eftir fimm mín. af
fyrri hálfleik og skiptu liðin bróð
urlega á milli sín mörkunum sem
skoruð voru til viðbótar, eða þrjú
mörk á hvort. Staðan í hálfleik
11:9 fyrir Ármann.
KR-ingarnir komu aðeins grimm
ari til leiks í síðari hálfleik og
skoraði Reynir sem nú var með
liði sínu í baráttunn inn á vell
inum; ágætt mark. Hörður lét
þetta ekkert á sig fá og lét bolt
ann sigla rakleiðis inn í KR mark
ið strax á eftir. Skiptust liðin á
að skora þar til á 16. mín. en þá
er staðan orðin 18:15 og á næstu
þrettán mínútunum skora Ármenn
•'ramh /4 síðu. .
Rúmenía vann
Noreg 17-12
Rúmenía sigraði Noreg i
handknattleik karla á sunnu-
dag með 17 mörkum gegn
12. Sigurinn var öruggur og
verðskuldaður, en staðan í
hléi var 9:6. Rúmenar kom
ust i 6:2, enda voru Norð-
mennirnir hikandi og fljót-
færir í upphafi leiksins. Um
tíma í síðari hálfleik munaði
aðeins 2 mörkum, 14:12, en á
síðustu mínútum leiksins skor
uðu Rúmenar þrjú mörk.
. Moser var bezti maður rúm
enska liðsins, en markvörð-
urinn Redl var ennig góður,
1„ marz 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ