Alþýðublaðið - 06.03.1966, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 06.03.1966, Blaðsíða 7
Núna fyrir rúmum mánuði, eða 29. janúar sl. gaf póststjórn Banda ríkjanna út nýtt 6 centa frímerki til að heiðra minningu Franklín Delano Roosevelts, fyrrum for- seta, en hann var 32. í röðinni af forsetum Bandaríkjanna. — Þetta frímerki er No. 2 í 18 merkja ,,seríu”, sem nú er að koma út þar vestra og nefnd hefur verið „Mikilmenni Ameríku.” — Út- gáfustaðurinn var Hyde Park í New York, en þar er forsetinn fæddur 30. jan. 1882. — í æsku lilaut hann góða menntun, einkum í tungumálum, enda var móðir lians kennslukona. — Árið 1900 innritaðist Roosevelt í Harvard háskóla og 5 árum síðar staðfestir hann ráð sitt og gengur að eiga Onnu Eloanor Roosevelt, hina á- gætustu konu. — Höfum við rætt um hana áður hér í þáttunum, vegna frímerkis, sem kom út henni til heiðurs. Franklin D. Roosevelt var kos- inn forseti Bandaríkjanna árið 1932. Hann var búinn miklum persónuleika og hressilegu sjálfs- trausti og blés nýju lífi í stjórn- mál landsins, þannig, að almenn- ingur skipaði sér skjótlega undir merki hans. Aðalviðfangsefni hans var að vinna bug á heims- kreppunni sem geisaði á þessum árum. Roosevelt vann öruggan sigur í forsetakosningum 1936 og er því enn við völd, þegar heims- styrjöldin síðari skall á 1939. — Og eftir árás Japana á flotastöð Bandaríkjamanna í Pearl Har- bour 1941 eru Bandaríkin komin með í þann darraðardans. — í árs- byrjun 1942 birti Roosevelt fram leiðsluáætlun sína, sem á venju- legum tíma heíði verið talin ó- framkvæmanleg, en tókst þó og stóðst merkilega vel. ,,Við verðum að vera hið mikla vopnabúr lýð- ræðisins,” sagði Roosevelt í ú- varpi sínu til þjóðþingsins. Nú má skjóta því hér inn í að í kosn- ingabaráttunni um forsetaemb- ættið 1940 var stefna Roosevelts svo rökföst og vinsæl, að andstæð- ingur hans, Wendell Willkie gat ckki annáð en verið henni hlynnt- ur. Ilann skorti því deiluefni og beið ósigur ‘fyrir Roosevelt, sem nú var kosinn i þriðja sinn forseti en það hafði ekki komið fyrir í sögu Bandaríkjanna áður. Einnig má geta þess, að Roose- velt forseti gekk ekki 'heill til skógar á þessum árum. Hann var lamaður að nokkru, hafði fengið lömunarveiki fyrir mörgum árum, og varð að halda sig í stól sínum að mestu. — Þegar það er haft i huga, að hann þurfti oft að ferð- ast langar leiðir til þess að sitja ráðstclnur með sámherjum sínum í stríðinu, hlýtur það að verða undrunarefni, að hann — lamaður maðurinn — skyldi hafa þrótt til að standast þessa áreynslu, and- lega og líkamlega. Þetta brúna 6 centa frímerki er með mynd af forsetanum, sem tekin var af hon- um i einni af þessum ferðum, en það var um borð í herskipinu „Prinee of Wales,” 15. ágúst 1941. Daginn úður höfðu þeir Winston Churchill og liann undirritað At- lantshafsyfirlýsingu, -8. greina stefnuyfirlýsingu Bandaríkjanna og Bx-etlands, sem grundvöll frið- arins. Roosevelt forseti andaðist í apríl 1945. — Hann hafði þá verið meii-a.en 12 ár í Hvíta hús- inu. Hann varð öllurn heimi harm dauði. PanAmerican Vorfargjöld Hinn 15. þ.m. ganga í gildi hin hagstæðu vor-fargjöld Pan Ame- rican flugfélagsins til ýmissa borga í Evrópu. Fargjöld þessi miðast við að fai-miði sé fyrir báðar leiðir og ferðinni lokið innan 30 daga. Sem dæmi um hve þessi lækkun er hagstæð má nefna að venju- legt fargjald til Kaupmannahafn ar — báðar leiðir — er kr. 8018. 00 en vor-fargjaldið verður 25% lægra eða kr. 6330.00. Samsvarandi lækkanir verða á fargjöldum t.d. til Glasgow, Lond- on, Hamborgar, Fiankfurt, Hels- ingfors, Stockholm, Amsterdam, Parisar og fleiri borga. Þotur Pan Am halda uppi ferð- um vikulega um ísland. Eingöngu fullkomnustu þotur er notaðar á þessum flugleiðum. Flugtíminn til Kapmannahafn- ar er ZV2 klst. Fargjöldin hjá Pan Am til Ev- rópu-landa eru hin sömu og hjá öðrum flugfélögum sem halda uppi ferðum á þessum leiðum. Aðalumboðsmenn Pan Americ an á íslandi eru G. Helgason & Melsted h.f. og stai-frækja þeir söluskrifstofu í Hafnarsti'æti 19. Skrifstofan veitlr allar r' upplý'-ingar og það gera líka ferða skrifstofurnar. Tilkynning frá Félagi járniðnaðar- manna Byrjið er að taka á móti pöntunum frá félagsmönn- um, scm óska að dveljast með fjölskyldur sínar í orlof.-'hús'um félagsins í Ölfusborgum nk. sumar. Orlofshús Félags járniðnaðarmenna eru 3, í hverju h,úsi er fullkominn heimilisbúnaður fyrir 6 dvalar- gesti. Tekið er við pöntunum í skrifstofu félagsins, Skip- holti 19 Stjórn Félags járniðnaðarmanna. IPNbS ■b) 1 Skóli ísaks Jónssonai* (sjálfseignarstofnun) Orðsending tii foreldra Þeir foreldrar, sem áður haía átt börn í skólanum og eiga börn fædd 1960, þurfa að íáta innrita þau nú þegar, eigi þau að sækja skólann á vetri komanda. Verði þessu ekki sinnt fyrir 20. þessa mánaðar, get- ur skólinn ekki ábyrgst, að unnt verði að taka um, sóknirnar til greina. Sími skólastjóra er 32590. Skólastjóri. Starf rafveitustjóra í Sigiufirði Samkvæmt samþykkt rafveitunefndar og bæjarstjórn- ar Siglufjarðar, er starf rafveitustjóra i Siglufirði hér með auglýst iaust til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 15. marz n.k. Umsóknum sé skilað til undirritaðs eða Baldus Eiríbs- sonar, formanns rafveitunefndar. Siglufirði, 4. marz 1966 ÍBæjarstjórinn í Siglufirði. ÚTBOÐ Tilboð óskast í að byggja þvottastöð fyrir Strætis- vagna Reykjavíkur við Kirkjusand, bér i borg. Útboðsgögn verða afhent í skrifstofu vorri, Vonar- stræti 8. getgn 3000 króna skilatryggingu. Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar. Oliveftti Simplex 20 B 1 Ódýrasía skrifandi samlagn- ingarvélin á markaðnum Olivetti-verksmiðjurnar á ftalíu hafa sett á markaðinn nýja, ódýra samlagningai-vél, sem jafnframt er ódýrasta skrifandi samlagningar- vélin á markaðnuro. Verð aðeins kr. 3.840,00 m. söluskatti. Fuílkomin vex-kstæðisþjónusta. — Árs ábyrgð. G. HELGASON & MELSTEÐ H.F., Rauðarárstíg 1, sími 11644. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 6. marz 1966 J

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.