Alþýðublaðið - 20.03.1966, Qupperneq 4
Bttstjórar: Gyltl Gröndsl (4b.) og Benedlkt Gröndml. — RltstíSrnmrfuU.
trtl: Klöur GuBnason. - Slmar: 14900-14903 - Auglýstngaaiml: 14906.
ASsetur AlþýOuhúalO vlO Hverftagötu. Reykjavík. — PrentamlOJm AlþýOu
bUOalnj. — AakrlíUrgJafd kr. 95.00 — I lmumasðlu kr. 5.00 elntakW.
tltgefandl AlþýOuflokkurlnn.
BÚR OG FISKLEYSIÐ
MÁLEFNI Bæjarútgerðar Reykjavíkur hafa ver
ið á dagskrá í blöðum undanfaraa daga, og er til
efni. pess sú ráðstöfun meirihluta útgerðarráðs og
borgarstjórnar að selja eitt af skipum útgerðarinn-
'ar. Eorgarstjóri hefur jafnframt lýst því yfir, að
hann telji rétt að selja að minnsta kosti einn togara
í viðbót, og orðað þá hugmynd, að útgerðarrekstur
BÚR yrði allur lagður niður en fyrirtækið aðeins
rekið í þjónustu reykvískra útgerðarmanna.
Meðan íhaldsmeirihlutinn í Reykjavík selur
hvert skipið af öðru undan Bæjarútgerðinni, neita
forráðamenn borgarinnar stöðugt að gera Bæjarút-
gerði mi kleift að eignast ný framleiðslutæki, þann
ig að hún hafi möguleika til áð bera sig. Af hálfu
meirihlutans er greinilega að þvi stefnt að leggja
Bæjarútgerðina niður, þótt einhverra hluta vegna
sé farið hægt í sakimar.
tít af fyrir sig er ekkert athugavert við áð selja
gömul og úr sér gengin framleiðslutæki, ef ráðstaf
anir eru um leið gerðar til endumýjunar. En þar
er p<ittur brotinn og borgarstjómarmeirihlutinn í
Reykjavík sýnir ekki einu sinni lit á því að ræða
um endumýjun skipastóls BÚR.
1 ogaraútgerð á íslandi her sig ekki í dag. Eru
bæja:.*útgerðir þar engin undantekning frá útgerðar
fyrirtækum einstaklinga. En það er ekki lögmál,
að bejarútgerð skuli einungis höfð á togurum,
heldvr væri eðlilegt og sjálfsagt, að Bæjarútgerð
Reyk javíkur fengi að kaupa fiskiháta af þeirri stærð,
sem lú skila mestum auði í þjóðarbúið. En vegna
þess, að ,þá gæti Bæjarútgerðin farið að sýna tak-
markaðan hagnað, hefur ekki verið Ijáð máls á
þessir, errda þótt fullt'rúi Alþýðuflokksms f útgerð
arráði, Björgvin Guðmimdsson, hvað eftir annað
hafi Breyft þessu máli.
t fiskleysinu undanfarið hefur einu sinni verið
griniií til þess að láta bæjartogara landa hér neyzlu
fiski handa hæjarhúum. Kom það sér mæta vel.
Hefði BÚR átt einn til tvo góða fiskibáta hefði tví-
mæl&laust mátt draga úr skortinum á neyzlufiski,
sem verið hefur í borginni undanfarnar vikur.
Á síðasta fu'ndi borgarstjómar flutti borgarfull-
trúi Alþýðuflokksins, Óskar Hallgrímsson, ásamt
öðrum tillögu um að BÚR fengi að kaupa eða
leigja 1—2 nýtízku skuttogara til reynslu. Svipaða
tillögu flutti Björgvin Guðmundsson í útgerðarráði
í desember. En ekkert er aðhafzt, heldur sefur meiri
hlutinn á verðinum, og hyggst með sama áfram-
haldi selja öll skipin undan BÚR. Slíkan ósóma
. verður að stöðva.
4 20. marz 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Krag
Framhald af 1. síðu
óhœtt að trúa því, að eitthvert
viðkvæmasta vandamál, sem á-
greiningl hefur valdið milli þjóða
okkar. sé nú í þann veginn að
verða til lykta leitt, og á ég þar
við afhendingu íslenzkra hand-
rita úr safni Árna Magnússonar
í Kaupmannahöfn. Eins og menn
vita voru lögin Um afhendingu
þeirra loks samþykkt af danska
þjóðþinginu síðastliðið vor. Hins
vegar liggur enn ekki fyrir úr
skurður danskra dómstóla um
þetta mél. Ég veit að ísle'ndingar
álíta þessa töf óverulega miðað við
þá löngu sögu, sem þetta mál hef
ur að baki sér. Bæði á íslandi og
í Danmörku hfefðu margir að sjálf
sögðu kosið skjótari úrlausn, en
það kann aff reynast vel, einnig
fyrir frambúðársambúð Daná og
íslendinga, að mál þetta verði
þaulrannsakað, svo áð ekki verði
hægt áð fujlyrða seinna, að eln
hver hlið þess hafi verið snið
gengin, henni gleymt, eða að f jall
að hefðl vferið um málið af létt
úð, þannig, áð þegar þetta mál er
loks til lykta leitt, • örlar ekki á
minnsta efa um lágalegar hliðar
þeas.
Þá vék Krag áð norrænni sam
vinnu og samstöðu Norðurlandanna j
á sviði aiþjóðamáia. Gat hann
þess að landfræðilegri einángrun
íslands væri íokið og hlyti það að
hafa í för með sér vándamól, sem
hlýtur að skipta miklu máli bæði
fyrir Dani óg islendinga, það er
að segja, hvert sé' hiutverk Norð-
urlandáþjóðanna,' og hver sé af-
staðá þeiÍTa í heitninum, óg eink-
um, ’ hver sé afstaðá • Norðurland-
anna " tll ' annarrá’ Evrópúþjóða.
Ekki verðúr þétta mál síður fróð-
legt, ef athuguð er sú þróun, sem
átt hefur sér stað uþp á síðkastið
á sviði samvinnú Evrópuþjóða og
innan Atlantshafsbaridalagsins.
Þróunin hefur sýnt okkur fram
á að Norðurlandaþjóðirnar geta
ekki einangrað sig eða staðið ein-
ar sér. Norðurlandaþjóðirnar taka
allar þátt í hinni miklu alþjóða-
samvinnu með ýmSu móti. Danir,
Norðmenn og Íslendíngar eru að-
ilar að Atlantshafssáttmálanum,
en Svíar og Finnar hafa fylgt hlut-
leysisstefnup þó á ólíkum forsfend-
um sé. Þrót| fyrir ólíka utahríkis-
stefnu Norðúrlandaþjóðanna held
ég, að óhætf'sé að seg-ja; að þær
hafi í samefningu lagf fram sinn
skerf tii að treysta óstandinu i
alþjóðamálum. • Sameiginleg af-
staða Norðurlandaþjóðanna til
kjarnorkuvígbúnaðar • er • ínjög
mikilvæg í þessu samþandi. Það
er enginn vafi á því aff' sú stað-
reynd að Norðurlanda:þjóðirnar
hafa ekki kjarnorkuvopn, stuðli
mjög að öryggi í alþjóðamálum.
Sama máli gegnir um sameigin-
lega afstöðu Norðurlandaþjóð-
anna hjá Sameinuðu þjóðunum.
Þar höfðum við í sameiningu unn-
ið okkur ólit og virðingu annarra
þjóða, þó að Norðurlandaþjóðirn-
ar hafi ekki ávallt litið sömu aug-
um á málin. Það verður að halda
þessu samstarfi áfram og leggja
sífellt óherzlu á það.
Um afstöðu Norðurlanda til
annarra Evrópuþjóða sagði Krag
meðal annars: Vegna traustrar
samvinnu okkar sé ég ekkert þvi
til fyrirstöðu að við getum náð
HUSQVARN4 2000
Bclnn Baumur, hnappagöt, bllndfaldur og úrval
mynztursauma er hægt að velja meö einu hand-
taki. Þar sem það er sýnt á greinllegan hútt,
i litum, á ..saumveijara*'.
HUSQVARNA heimillstæki,- saumavélar o. ...
eru þekkt hér á landi í ylir 60 ár. Hafa nafninu .
hér sem annarstaðar stöðugt vaxið vinsældir.
★ íslenzkur leiðanísir fylgir- hyerri saumavél.
★ Kennsla er innifalin í vcrðinu.
ic Aíslittur veittur gcgn staðgfciðslu.
if Ef þér komizt ekki tii okkar tU að kynna yður
véUna, munum vér senda söiumann til yðar
eftir lokun, ef þér búið i Reýkjavik' eða
nágrenni.
★ Umboðsmcnn víða um landið.
Íjmwu't. h.f.
Suóuríandsbraut 16 - Revkjavik - Símnefni: nVolveré - Simi 35200
því takmarki, sem ég held, að sé
sameiginlegt öllum Norðurlanda-
þjóðum. Víðtæk lausn margra
mála á Evrópu fyrir tllstilli land-
anna sex í Efnahagsbandalaginu
og landanna í Fríverzlunarbanda-
laginu og hafi stærsta ríklð þar
forystuna.
Forsætisráðherrann lauk ræðu
sinni með þessum orðum:
Á umbrotatímum finna menn
bétur til ættartengsla. Ef til vlll
er sánnleikurinn sá, að íslending-
ar og Danir standa hvor öðrum
nær en.nokkru sinni fyrr. Við skul
um styrkja þessi tengsl, ganga til
móts við sameiginlega framtíð
Norðurlandaþjóðarina og annarra
Evrópuþjóða, og sameiginlegt tak-
mark okkar skal vera aukin verzl-
un landa á milli, vöxtur menning-
arinnar og friður landa á milli.
KVENNADEILD Slysavarnarfé
Iagsins heldur sitt árlega Góukaffi
á smmudaginn,. 20 marz í húsi
Slysavarnarfélagsins vtff Granda
garð. Þar verður margrt góðgæti á
boðstólum. Borgarbúar eru hvatt
ir til að fjöUnenná og styðja gptt
málefni.
í grein um Landsbankann í blað
inu í gær, komu fyrir nokkrar
prentvillur. Á einum stað stóð:
Á fundinum eru rædd ýmis mál
er varða bankana í heild. Máls-
grelnin átti að vera þannlg. Á
fundinum eru rædd ýmis mál er
varða bankann í heild.
Á öðrum stað höfðu fallið nið
ur tvær línur, þar sem útibú bank
ans úti á landi voru talin upp,
Ré+t er málsgreinin þaunig: Lands
bankinn rekur nú 6 útibú úti á
landi, á Akranesi, ísafirði, Akur
eyri, Húsavik, Eskifirði og Sel
fossi. Útibúin á Akranesi og Húsa
vík eru yngst, útibúið ó Akranesi
stofnað fyrir um elnu og hálfu
ári.
Enn cln prentvilla slæddist í
grelnina, þar sem áttl að istanda:
í Reykjavík eru nú fjögur útibú
frá aðalbankanum. . .
LfDÓ-brauð
LfDÓ-snittur
LfDÓ-matur
heitur og kaldur
Pantið í tíma
fyrir fermingarnar
í síma 35-9-35
Sendum heim