Alþýðublaðið - 05.04.1966, Blaðsíða 1
ÞriSjudagur 5 apríl 196G - 4G. árg. - 79- tbl. — VERÐ 5 KR.
Engar niðurstöður
í læknadeilunni
Reylcjavík. — ÓTJ.
ALVARLEGT ástand er að skap-
ast í læknamálum ríkisspítalanna
í Reykjavík vegna þess hve margir
læknar hafa sagt upp störfum. —
Eins ug Alþýðublaðið skýrði frá
sl. sunnudag er ástandið svo slæmt
á Landspítalanum aö prófessor-
arnir þar verða að taka á sig
næturvaktir og leggja nótt við dag
í starfi sínu. Er því mjög erfitt að
bæta þar við sjúklingum, en samt
mun haldið áfram að taka slysa-
váktir.
Ástæ'ðan fyrir uppsögnunum er
tvíþætt. Óánægja með launakjör
og starfsaðstöðu. Samninganefnd
ríkisstjórnarinnar hefur rætt við
lækna um launakjörin en niður-
staða engin fengist ennþá. Nefnd
var einnig skipuð til þess að rann-
saka skipulagsmál sjúkrahúsanna
en hún hefur heldur ekki skilað
niðurstöðum. Sex læknar hafa þeg-
ar hætt störfum við Landspítal-
ann og þann átjánda þessa mán-
aðar verða þeir orðnir átján. Á
Borgarspítalanum hafa báðir að-
stoðarlæknarnir sagt upp störfum
frá 15. þ. m. og einnig annar að-
stoðarlæknirinn á Slysavarðstof-
unni. Deilan nær líka lengra en
til lækna, því að kandídatar sem
nú er-’ að útskrifast munu ekki
halda áfram störfum fyrr en samn-
ingar hafa náðst. Vegna þessara
erfiðleika hefur heilbrigðismála-
ráðuneytið gefið yfiriæknum leyfi
til að kalla sérfræðinga sér til að-
stoðar eftir því sem þörf krefur,
og verður þeim greitt fyrir hverja
vitjun um sig.
* ✓ $
Isinn færist
frá landinu
EKKERT sást til liafíss í
gær. Skyggni var sæmilegt
yfir austanverðu Norður-
landi og var hvergi ís að sjá,
en ísröndin sást greinilega
frá Sléttu fyrir helgina. —
Austlæg átt hefur verið á
t þessum slóðum undanfarin
dægur, og hefur hún.hrakið
ísinn frá landinu. Snjókoma
var á Ströndum í gær — og
sk-’ocrni lítið. en þar var ís-
Isa mun lengra frlá landi en
' fyrir áustanverðu Norður-
. landi,- Borgarísjaki var á
siglingaleið um 9 sjómílur
norður af Óðinsboða fyrir
■ Ströndum í gærmorgun, en
• annan ís var ekki að sjá á
- þeitn slóðum.
'tWWWMWWWWHWMlW
WWWWWWMWWWWWMWWMWVWMMWWM
Tólf nýjar flugfreyjur munu taka til starfa hjá Flugfélag'i
íslands um næstu mánaðamót. Hafa þær vcriö á náinskeiði
hjá félaginu undanfarna mánuði þar sem þær hafa lært
til starfans. Myndin er af þessum föngulega hópi verðandi
flugfreyja ásamt yfirflugfreyju Flugfélags íslands Kristinu
Snæhólm.
Hætt viö að slíkt tæki-
færi bjóðist ekki aftur
Reykjavík. —. EG.
— Ef við notum ekki það tæki-
færi, sem okkur nú býðst til að
virkja á hagkvæman hátt og selja
hluta orkunnar föstu verði til' ál-
bræðslu, sem jafnframt mun veita
okkur verulegar tekjur er hætt
við að annað tækifæri bjóðist ekki.
Á þessa leið mælti Benedikt
Gröndal í umræðunum um ál-
bræðsluna, er þeim var framhald-
ið í neðri deild Alþingis l dag.
í ræðu sinni rakti Benedikt
gang málsins fram til þessa og af-
stöðu og yfirlýsingar Alþýðu-
flokksins í sambandi við það. —
Hann fór nokkrum orðum um ræð-
ur þeirra Eysteins og Lúðvíks,
sem báðir töluðu síðastliðinn
laugardag, eftlr að Jóhann Haf-
stein i’ðnaðarmálaráðherra hafði
lokið framsögu sinni. Benedikt
kvað málflutning þeirra Eysteins
og Lúðvíks ekki hafa verið sér-
-lega. .sannfærandi að minnsta
kosti miðað við ræðulengdina.
Hann gat þess og að báðir og þó
sérlega Eysteinn töluðu áreiðan-
lega í fullkominni andstöðu við
hluta flokksmanna sinna.
Eysteinn hefði kallað þetta ó-
ráð og stórhættulegt, sagði Bene
dikt, en hann hefði þó ekki viljað ( flokkurinn
útiloka erlent fjármagn yfirleitt, stjórn.
hefði verið í ríkis-
en eingöngu byggt mótbárur sín-
ar á því hvar verksmiðjan ætti
að vera staðsett. Sagði hann að
freistandi væri að álykta að Fram-
sóknarflokkurinn hefði stutt þetta
mál með ráðum og dáð, aðeins ef
Benedikt sagði það grundvallar-
atriði að gera það upp við sig
hvort við ættum að nota erlent
fjármagn til framkvæmda hér eða
Framhald á 15. síðu.
14 ára gamalð drengur
lífshættulega cSrutóciim
NAUMLEGA tókst að bjarga
lífi fjórtán ára drengs sem
drukkið hafði sig augafullan. At
burður þessi gerðist í Kaup-
•mannahöfn fyrir nokkrum dög-
um. Orengurinn fannst meðvit-
undarlaus úti á Víðavangi í ná
tgrenni borgarinnar. Var. hann
fluttur hið bráðasta á sjúkra-
hús og dælt upp úr honum. Þeg
ar hann kom á sjúkrahúsið var
líkamshiti hans kominn niður í
33 stig.
Þótt tækist að dæla upp úr
drengnum í tima var hann svo
eftir sig að hann varð að liggja
á sjúkrahúsinu í nokkra daga.
Tveir aðrir drengir 13 og 12
ára tóku þátt í drykkjunni, en
höfðu ekki komið eins miklu
magni af áfengi niður og voru
þeir sendir heim eftir að dælt
hafði verið upp úr þeim.
Framhald á 15. síða