Alþýðublaðið - 23.04.1966, Side 9

Alþýðublaðið - 23.04.1966, Side 9
% Dólguxinn, faðir hennar. uðu skopi; ekki veit ég um söng- frama Jóns með Svíum en heim er hann kominn efldur og end- urnýjaður leikari; það er eftirsjá að honum skuli ekki hafa notazt þessi móður í stóru hlutverki í vetur. Hlutverk Þrídísar er vafa- laust erfitt hlutskipti ungri og lití reyndri leikkonu. Mér þótti Sigríði Þorvaldsdóttur takast það eftir öllum vonum, en mest kvað að henni í þriðja þætti í mynd og líkingu plastbombuköstum; — þessi frammistaða er hið bezta sem ég hef séð til leikkonunnar. En eyða var í leiknum fyrir hlutverki líkkistusmiðsins sem Jón Julíusson fór me'ð. Það er auðvelt að gera sér í hug- Þrír pipuhattar, fegurðarstjórinn ogr Sine Manibus. arlund hvílíka fígúru leikari á borð við Brynjólf Jóhannesson til dæmis hefði gert sér úr þessu hlutvérki; þarna fór eitt af ónot- uðum tækifærum sýningarinnar. Prjónastofan Sólin virðist hin vandaðasta sýning að öllum ytri búnaði eins og við á þar sem nóbeishöfundur og leikhús- ráðsmaður á í hlut. Leikmynd Gunnars Bjarnasonar er svipmik- ið og vandað verk, að vanda hans, en óstyrkur var á ljósabeitingu í lokaalriðinu á frumsýningu. Fay Werner hefur aðstoðað við atrið- in með pípuhöttunum og hinum prýðisfríðu þokkadísum, og hefði leikstjóri að vísu mátt nota sér bá aðstoð betur eins og vikið var -V.' ■ að. Magnús Blöndal Jóhannsson sér um tónlist í leiknum, organ- slátt vindanna í frönsku villunni sem vel hæfir. Og þetta var sem sé skrýtlan um frönsku villuna. Það fór ekki svo að hún skæri úr neinu um leikhúsmennsku Halldórs Lax- ness. En Prjónastofan Sólin er að vísu eftir sem áður áhugaverðasta leikhúsverk hans sem enn hefur birzt, áfangi á leið hinnar fjar- stæðufullu, fáránlegu orðlistar í leikritum og smásögum hans á síðustu árum, sú tilraunin sem kemst næst því að lánast. En nú er að sjá hvað vcrður í Iðnó þessu næst. — Ó'J. Kvikmyndin um Hagbarð og Signýju hlaut danskan styrk Eins og sagt hefur verið frá í Alþýðublaðinu verður mikill hluti kvikmyndarinnar um Hagbarð og Signýju tekin hér á landi í sumar. Að kvikmyndinni standa þrjú kvik myndafélög, Asa Film Studio í Kaupmannahöfn^ Bonniers Film í Stokkhólmi og Edda film i Reykja vík. Leikstjórinn verður Daninn Gab riel Axel. Þótt félög í fleiri löndum stundi að kvikmynduninni virðast dansk ir telja að hér sé um danska kvik mynd að ræða. Segir í þarlendu blaði að þetta verði dýrasta danska kvikmyndin er gerð hefur verið og mun kostnaðurinn nema um 2.5 milljónum danskra króna. Þá hefur danska kvikmyndaráðið sem heyrir undir menntamálaráðu ið styrkt fyrirtækið með 600 þús und dönskum krónum úr sérstök um kvikmyndasjóði. Danskir kvikmyndamenn sækja mjög fast að fá fjárveitingu úr sjóðí þessum en liún er aðeins veitt telji kvikmyndaráðið að um sérlega listrænar myndir sé að ræða, sem ætla má að hafi menn ingarlegt gildi. Vinnuvélar til leigu. Leigjum út pússninga-steypu- hrærivélar og hjólbörur. Rafknúnir grjót- og múrhamrar með borum og fleygum. Steinborvélar — Vibratorar. Vatnsdælur o.m.fl. LEIGAN S.F. Sími 23480. RÓSIR Nýkomnar pottarósir frá Danmörku, tak- markaðar byrgðir. Mjög gott úrval af allskonar pottablómum, grænum og blómstrandi. — Vorlaukar — Dalíur, — Bónd'arósir — Anemonur — Gladíolus — Begoníur o. fl. Blómaskáli Paul Michelsen Hveragerði. VANTAR 2 góða húsgagnasmiði eða vana verkstæð- ismenn til innréttinga skólabyggingar úti á landi. Allt frítt. — Upplýsingar í síma 14900 eftir kl. 1 á daginn. Ríkisjörðin Álffavatn í Staðarsveit er laus til ábúðar í næstu fardögum. Upp- lýsingar gefnar í Jarðeignadeild ríkisins í Landbúnaðarráðuneytinu. LÖGTAK Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að undangegnum úrskurði verða lögtökin látin fram fara án frekari fyr- irvara, á kostnað gialdenda en ábyrgð ríkissjóðs, að átta dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar, fyrir eftirtöldum gjöldum: Áföllnum og ógreiddum skemmtanaskatti og miða- gjaldi, gjöldum af innlendum tollvörutegundum, mat- vælaettirlitsgjaldi og gjaldi til styrktarsjóðs fatlaðra, skipulagsgjaldi af nýbyggingum, bifreiðaskatti, skoðunar- ■gjaldi og vátryggingariðgjaldi ökumanna bifreiða fyrir ár- ið 1966, öryggiseftirlitsgjaldi fyrir árið 1965, sölu- skaiti 1. ársfjórðungs 1966 og hækkunum á soluskatti eldri tímabila, svo og tryggingaiðgjöldum af skips- höfnum ásamt skráningargjöldum. Yfirborgarfógeti-nn í Reykjavík, 22. apríl 1966. Kr. Kristjánsson. Stangveiðimenn Til leigu er laxveiðréttur í Fljótaá fyrir landi jarðanna Skeiðs, Bakka, Stóru-þverár, Berglands, Berghyls og Hólakots. Afnotaréttur af íbúðarskála gæti fylgt. Tilboðum sé skilið fyrir 10. maí n.k. til Baldurs Eiríkssonar, Siglufirði, se.m jafn- framt gefur frekari upplýsingar. RAFVEITA SIGLUFJARÐAR. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 23. apríl 1966 $

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.