Alþýðublaðið - 29.04.1966, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 29.04.1966, Blaðsíða 4
 Bltatjórer: Gylfi Gröndal (4b.) og Benedlkt Gröndal. — RltstíómarfuU- trúl: EtBur GuOnaBon. — Stmar: H900-1490S — Auglýalngaaíml: 1490«. ASaetur AlþýBuhúalB vlð Hverflsgötu, Heykjavllc. — Prentsmlðja AlþýOu bUötina. — Aíkrlftargjald kr. 95.00 — I laueasölu kr. 5.00 elntakhl. Utgefandi AlþýOuflokkurtnH. SKÝRSLA MAGNUSAR MAGNÚS JÓNSSON fjármálaráðherna flutti Al- þingi í fyrradag ítarlega skýrslu um efnahag þjóð- þrin'nar, þróun síðustu ára og horfur í næstu fram- tíð. Tilefni skýrslu hans var framkvæmdaáætlun joessa árs. Þjóðartekjur íslendinga hafa vaxið mjög ört síð- ustu ár, eð'a 7% árið 1963, 5,5.% árið 1964 og 5% arið 1965. Sé tekið tillit til hagstæðra viðskipta- kjara, það er að útflutningsvara okkar hækkaði meira i verði en innflutningurinn, verða tölurnar 7,2% árið 1963, 8,4% árið 1964 og áætlað 8—9% árið 1965. Þetta er gífurleg aukning, og fer ekki á milli mála, að lífskjör þjóðarinnar hafi batnað verulega, þrátt fyrir verðbólgu. Hagur landsins út á við hefur enn styrkzt og gjaldeyrisforði er yfir 2.000 milljón- ir. “Magnús varaði þó við næstu framtíð. Hann taldi, að framleiðslan mundi vart geta aukizt eins mikið og undanfarið, en hætta væri hins vegar á, að neyzla tandsmanna og fjárfesting haldi áfram að aukast með saifia hraða og síðustu ár. Geta af þessu stafað hæítulegir erfiðleikar, sem Magnús kvað ríkisstjórn ina reyna að forðast eftir megni. Fjármálaráðherra sagði í ræðu sinni, að sú gerð framkvæmdaáætlana, sem ríkisstjórnin hefði tekið upp, hefði gefið góða raun. Hefur stöðugt þokað í þá átt, að áætlunargerðin yrði betri og gagnlegri. eftir því sem reynsla hefur fengizt. Auk heildaráætlana hefðu verið teknar upp séráætlanir og fyrir ein- staka flokka framkvæmda og einstaka landshluta. Mundi ríkisstjórnin halda áfram að bæta aðstöðu til áætlunargerðar. Fyrsta f jögurra ára áætlunin var gerð fyrir árin 1963—66, og hafa áætlanir.hvers árs verið endurskoð aðar jafnóðum. Nú er hafið lokaár þessarar fyrstu áætlunar, og verður á þessu ári stigið næsta skref ið með samningu annarrar áætlunarinnar fyrir árin 1967—70. Með hliðsjón af fenginni reynslu má ætla, að sú áætlun verði fyllri og raunhæfari sem hjálp- artæki við stjórn efnahagsmála en fyrsta áætlun- in gat orðið. Ræða fjármálaráðherra bar þess glöggt vitni, hversu mikinn þátt áætlunargerð nú þegar á í heild- arstjórn ríkisvaldsins á efnahagskerfinu. Þetta er þró un, sem öll hefur gerzt í tíð núverandi ríkisstjórnar, og ttelur Alþýðuflokkurinn þetta meðal mikilsverð- wstu, mála, sem stjórnin hefir hrint í framkvæmd. Að vísu nær áætlunargerðin enn aðeins til fram- kvæínda ríkisins. Væri nú eðlilegt að stíga næsta skrefið og láta aðra áætlunina einnig ná til sveit- arfélaga, enda eru framkvæmdir þeirra oft tengdar ríkisvaldinu og lcostaðar af því að hluta. 4 29. apríl 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ Tilkynning frá Öxli h.f. Oss er ánægja að geta tilkynnt þeim fjölmörgu sem undanfarin ár hafa sýnt áhuga á International - Scout Iandbúna5arbifreiðinni að vegna breyttra tollalega er hifreið þessi nú fáanleg með sömu tollakjörum og aðrar bifreiðar í jeppaflokki. ÖXULL H.F., Suðurlandsbraut 32. Sími 38597 og 38590. Vinnuhjú með offjár í höndunum! Á FUNDUM, í BLÖÐUM OG BÓKUM segja talsmenn Sjálfstæð isflokksins frá því, hvað þeir geri fyrir borgarana. Þeir minnast aldrei á það, hvað borgararnir geri fyrir þá. Borgarfulltrúar og aðrir istjórnendur borgariiuiar og fyrirtækja hennar, eru hreint ekkert annað en vinnumenn á heimili borgara.nna. Borgararnir fá þeim verk að vinna og barga þeim kaup. Þeir eiga að skila verkefnunum af sér cg borgararn ir líta yfir afköst og verkhyggni. BORGARARNIR fá þessum starfsmönnum ógrynni f jár til þess að verja sem bezt í þágu sameigin legra framkvæmda. Borgararnir af henda þeim til ráðstöfunar útsvör sín <-em eru um 540 milljónir, að- stöðugiöld sin, sem eru um 130 milljónir fasteignagjöld sín, sem nema um 50 milljónum, og miklar upphæðir aðrar, svo að féð, sem borgar.vfirvöldin hafa árleea til ráð stöfunar, nemur um 850 milliónum króna og er þá skammt í milljarð inn. HVERNIG ERU SVO VINNUAF KÖSTIN og hvernig hefur vinnu- lagið verið og frágangurinn á því, sem ráðizt var í til framkvæmda? Ég þarf ekki að svara þes~ari spurn ingu. Það er alveg óþarfi, því að hver og einn getur skyggnzt um í sínu hverfi. Ekki hefur starfs- fólk borgarinnar byggt fyrir þetta fé nema tiltölulega mjög fáar húsa samstæður. Það hafa borgararnir sjálfir gert fyrir eigið fé og að auki lánsfé, sem þeir hafa að mestu leyti fengið hjá ríkisvaldinu. Hins vegar hefur starfsmannaliðið feng ið offjár fyrir lóðirnar, sem vitan lega er sjálfsagt, til þess að ganga frá götum. í ÞVÍ SAMBANDI er rétt að skoða Suðurlandsbrautina, sem aldrei hefur verið annað eins flag- og nú. Aðeins hefur verið gengið frá tveimur stórlóðum meðfram þes-ari stærstu umferðargötu borg arinnar: Sigfús í Heklu og Hall- grímur Ben & Co. Og er það til sóma. Annar^ eru byggingarnar við bessa miklubraut borearinnqr hnevksli og virðist, ekki lúta neinu eftirliti Pða að eftirlitinu er ekki framfvlgt. vrn spvrium Á úttektar- degi. um kosningar, hvernig vinnu fólkið hafi unnið og hvernig það hefur ráðstafað þeim ógrynnum auðæfa, sem það hefur fengið til ráðstöfunar. Ég spyr og þú spyrð. Við vitum að gífurlegt fé rennur út í sandinn í göturæ-i þar sem nokkur göturæsi eru eða út í botn lausar mýrar eins og fyrir neðan Suðurlandsbraut og ofan, þar sem byrjað er á mörgu en engu lokið. — Taktu þér göngutúr um borgina áður en þú gengur að kjörborðinu. Líttu sjálfur ásýnd hlutanna og og gaktu úr skugga um hvort ég hef ekki sagt þér sannleikann. ÞAÐ ER MARGT GERT en fátt eða ekkert til fulls. Þetta er sér riaklega áberandi á þessu vori, vegna þess að kosningar eru fram undan. Þeir einstakiingar, sem þannig haga sér við búskap hafa alltaf verið kallaðir jarðvöðiar og eru það enn. SERVÍETTU- PRENTUN SÍMI 32-101.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.