Alþýðublaðið - 14.05.1966, Síða 4
Bttotjórtr: Gylfl GröndiJ (4b.) og Benedlkt Gröndal. — RitstíSrnerfuU*
trtl: ElBur GuSnoson. — Stmor: 14900-14903 — Auglýsingaslml: 1490«.
ASsetur AlþýBubúslB vlB Hverflsgötu, Reykjavlk. — Prentsmlöjs AlþýSu
bUBstnn. - Askrlftargjald kr. 95.00 — 1 lausasölu kr. 5.00 elntaktfl.
Utgefandl AlþýBuflokkuxlnfl.
INNST INNI
UNGUR LÆKNIR er í framboði fyrir Alþýðu-
fiokkhm tjjl bæjarstjórnar á Norðurlandi. Flokks
blaðið á staðnum hefur átt við hann samtal. í lok
þess segir hann þessi orð:
„Jafnaðarmaður? Erum við ekki öll jafnaðar-
'irfenn innst hmi?“
f Þegar jafnaðarstefnan var fyrst kynnt á ís-
:landi, mætti hún harðvítugri mótspyrnu frá íhalds
■öflum og kæruleysi frá ýmsum öðrum. Það var bar
^izt á móti vökulögum, á móti kosningarétti og öðr
>um mannréttindum, á móti tryggingalöggjöf, á
móti verkamannabústöðum, á móti ríkisafskiptum
jaf atvinnulífi.
I Smám saman hjaðnaði þessi mótspyrna. Hug-
sjón jafnaðarstefnunnar ivann sigur, svo að fáir mæla
nú gegn henni. Allir stjórnmálaflokkar hafa tekið
upp eitthvað af baráttumálum jafnaðarmanna og
gert þau að sínum — að minnsta kosti í orði.
Reynslan hefur samt orðið á þá lund, að mál
efni jafnaðarstefnunnar hafa lítt þokazt áfram, nema
Alþýðuflokkurinn hefði aðstöðu til að knýja þau fram,
oftast í samningum við aðra flokka.
* Meiri háttar endurbættir á tryggingakerfinu
hafa aldrei verið gerðar, nema þegar Alþýðuflokkur
inn hefur verið í stjórn.
* Verkamannabústaðakerfið var að líða undir lok,
'þegar Alþýðuflokkurinn fékk aðstöðu til að endur-
Vekja það.
* Launajafnrétti kvenna og karla fyrir sömu vinnu
fékkst aðeins af því, að Alþýðuflokkurinn knúði það
fram í núverandi stjórn.
* Hugmyndirnar um lífeyrissjóð allra landsmanna
og lækkun kosningaaldurs eru nú í athugun og undir
búningi fyrir aðgerðir Alþýðuflokksins.
Þannig mætti lengi telja. Eins og læknirinn ungi
sagði, erum við öll jafnaðarmenn innst inni. Eigum
við ekki öll að sýna það með því að kjósa Alþýðu-
flokkinn — flokk jafnaðarstefnunnar?
FYLGIFISKAR
KOSNINGABARÁTTA Sjálfstæðisflokksins í
Kfeykjavík kostar 5—10 milljónir króna að áætlun
fróðustu manna. Er áróðrinum nú öllum beint til
þess að lyfta Geir Hallgrímssyni borgarstjóra upp og
láta kosninguna snúast um hann.
| Hinu má ekki gleyma, að með Geir kjósa menn
ýmsa fylgifiska, þar á meðal harða sérhagsmuna-
mpnn, og þeir hljóta margvísleg völd hjá hænum.
Þess vegna er nauðsynlegt að veita Geir meira aðhald
>óg draga þannig úr völdum og aðstöðu fylgifiskanna.
Það gera Reykvíkingar hezt með því að að kjósa A-
liátann.
Vatnslitamyndasýn’mg
Opna kl. 6 í dag vatnslitamyndasýnin gu í Kjallaranum, Hafnarstræti 1.
(Inngangur frá VesturgÖtu).
Á sýningunni eru margar myndir frá Reykjavík og nágrenni.
Verið velkomin.
Elín K. Thorarensen.
NÝ SÉRVERZLUN AÐ LAUGAVEGI164
í dag tekur til starfa hér í
borg ný sérverzlun að Laugavegi
164, Klæðning h.f. í verzluninni
verður á boðstólum allt sem lýt
ur að klæðningu veggja og gólfa,
bæði í íbúðarhúsum, samkomu-
Músum og öðrum byggingum.
Á fundi með fréttamönnum
skýrðu eigendur verzlunarinnar,
en þeir eru sex veggfóðrarameist
arar hér í borg, frá því að sú nýj
ung væri í sambandi við verzlun
ina að efni og fagmenn séu á sama
stað. Væntanlegum viðskiptavin-
um sé boðin sú þjónusta að ef
efni eru keypt til fóðrunar á veggi
eða gólf, geti þeir fengið vana
fagmenn til að annast ásetningu
þeirra. Einnig geta viðskiptavin
ir fengið leiðbeiningar og aðstoð
fagmanns við vöruval með stutt
um fyrirvara, sé þess óskað.
í verzluninni Klæðning hf. verða
á boðstólum alls konar málningar
vörur og lökk, gólfflísar, gólfdúk
ar og teppi, m.a. hin eftirspurðu
„Glawo“ gólftepiJi. Einnig mun
verða í verzluninni úrval af vegg
flisum og mosaik.
Eigendur lögðu á það sérstaka
áherzlu.að þeir mundu leitast við
að hafa á boðstólum þær vörur
sem fáanlegar eru beztar, og hefðu
þegar aflað sér viðurkenndra er
lendra verzlunarsambanda í því
skyni.
Guðjón og Ottó taka við verðskulduffum verðlaunum.
Lofsverð skilvísi
Fyrir nokkrum vikmn týndi
bandarískur sjóliði á Keflavíkur-
flugvelli peningaveski sínu en í
því voru m.a. 300 dollarar. Gerði
j hann ekki ráð fyrir að sjá það
meira, og þcgar hann var flultur
til annarrar herstöðvar gleymdi
i hann því alveg. En um það bil
viku eftir að hann var farinn,
komu tveir þrettán ára piltar, ís-
lenzkir og skiluðu veskinu til við
komandi yfirvalda, með öllu sem
í því var. Eigandinu var látinn
vita og baff hann um að kæru
þakklæti yrði skilað tii drengj-
anna og að þeir fengju góð fundar
laun af fé því sem í veskinu var.
PHtarnir tveir voru Guðjón Krist
bergsson og Ottó Ólafsson. Faðir
Guðjónsson vinnur hjá Loftleið
um en faðir Ottós er lögreglu-
þjónn. Eftir að hafa skilað vesk
inu hurfu piltarnir. Þeir væntu
sér engra fundarlauna þar eð þeir
áliitu (Iiað einfalda skyldu sfna
að’ skila veskinu. En nokkru seinna
var haft samband við þá og þeir
verðlaunaðir og þakkað fyrir lofs
verð'an heiðarlcika.
ISERVÍETTU-
PRENTUN
SÍMI 32-101.
14. maí 1966 - ALÞÝÐLU3LAÐIÐ