Alþýðublaðið - 14.05.1966, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 14.05.1966, Blaðsíða 11
Íslandsglíman 60 ára: Glíman háð í Austur- bæjarbíói í dag 56. Íslandsglíman verður háð í dag kl. 14,30 í Austurbæjarbíói og eru 12 glímumenn skráðir til leiks frá 4 félögum: Glímufélaginu Ár- manni, Knattspyrnufélagi Reykja víkur, Ungmennafélaginu Vík- verja og Ungmennafélaginu Breiðabliki, Kópavogi. Að bessu sinni er glíman haldin í Austurbæjarbíói enda vandað til hennar venju fremur, þar sem 60 ár eru frá fyrstu Íslandsglímunni, en hún var háð á Akureyri 20. ógúst 1906. Sigurvegari í þeirri glímu varð Ólafur V. Davíðsson, sem enn er við beztu heilsu og verður heiðursgestur á íslands- glímunni í dag. Alls hafa 18 glímumenn' hlotið nafnbótina Glímukóngur íslands en oftast þeir Ármann J. Lárus- son, Sigurður Thorarensen, Sig- urður Greipsson og Guðmundur Ágústsson. Við upphaf Íslandsglímunnar nú mun Gylfi Þ. Gíslason mennta- málaráðherra flytja ávarp, Gísli Halldórsson, forseti íþróttasam- bands íslands setur mótið með ræðu. Verðlaun afhendir Hörður Gunnarsson, formaður Glímuráðs Reykjavíkur. Opinbert glímumót hefur ekki áður verið háð í Austurbæjarbíói og er þess vænzt að sú nýbreytni mælist vel fyrir enda verðugt, að Íslandsglíman sé háð við við- unandi skilyrði á þessum merku tímamótum. Undirbúning og framkvæmd mótsins annast Glímudeild Ár- manns. Eins og fyrr segir verður 56. Íslandsgiíman háð í Austurbæjar bíói kl. 14,30 í dag, laugardag. Þríþraut FRÍ og Æskunn- ar hefst í haust I Frjálsíþróttasamband 1 (útbreiðslunefnd) hefur íslands ákveðið að efna til nýstárlegrar keppni fyr- ir börn á aldrinum 11, 12 og 13 ára. Keppnin, sem nefnd er Þrí- þraut FRÍ og Æskunnar, er fram- kvæmd í samráði við barnablaðið Æskuna og með stuðningi stjórna Sambands íslenzkra barnakennara og íþróttakennarafélags íslands. Fyrirkomulag keppninnar er þannig, að allir skólar, sem hafa nemendur á aldrinum 11, 12 og 13 ára geta tekið þátt í keppninni, (fæddir 1953, 1954 og 1955). — Keppnisgreinar eru 60 m. hlaup, liástökk og knattkast, (tennis- knöttur 80 gr.). Stig eru reiknuð samkvæmt sérstakri stigatöflu og samanlögð stigatala hvers nem- anda fyrir þessar þrjár greinar gildir sem heildarárangur hans. Keppnin skal fara fram 1. sept. til 31. okt. 1966. Taka má og mæla oftar en einu sinni hjá sama nem- anda. Ekki þarf að keppa í öllum gre'inum á sama degi. Á tímabil- inu má láta nemendur keppa í greinunum. Keppa skal samkv. leikreglum í frjálsum íþróttum. Forráðamönnum skólanna er bent á að leita aðstoðar hjá forráða- mönnum ungmenna eða íþrótta- félaga i sambandi við framkvæmd og leigu áhalda, ef skortur er á kunnáttumönnum eða áhöldum. Árangur tveggja beztu einstakl- inga hvers flokks — stúlkur sér og piltar sér — er færður inn á meðfylgjandi eyðublað, ásamt þátt takendaf jölda skólans og fjölda 11, 12 og 13 ára nemenda hans — (þeirra sem heilbrigðir eru). Eyðu blöðin þurfa að hafa borizt eigi síðar en 15. nóvember 1966 og skulu sendast til Útbreiðslunefnd- ar FRÍ. Framhald á 10. síðu. Íslandsglíman verður háð í Austurbæjarbíói í dag. Um þessar mundir eru liðin 60 ár síðan glíman var fyrst háð. Ólafur V. Davíðsson var fyrsti handhafi Grettis- beltisins, en á myndinni sézt Ármann .1. Lárusson, sem oft ast hefur borið þennan eftir sótta verðlaunagrip og Kjart- an Bergmann Guðjónsson, formaður Glímusambands íslands. Þær minna okkur á Norrænu sundkeppnina. NORRÆNA SUNDKEPPNIN HEFST Á MORGUN Samkvæmt einróma samþykkt Sundsambands Norðurlanda á nor ræn sundkeppni að fara fram á þessu ári á tímabilinu frá 15. maí tii 15. september. Keppt verður samkvæmt eftir greindum reglum.: 1. Keppni grein er 200 metra frjáls sundaðferð. 2. Ekkert aldurstakmark. 3. Engin skilyrði um sund- hraða. 4. Ljúka skal vegalengdinni í einni lotu. 5. Að sundraun lokinni skal keppandi skrá sig hjá settum um sjónarmanni og fá afhentan ávís unarseðil út á norræna sundmerk ið, er verður til sölu á staðnum. Nú vérður £ fyrsta sinn keppt eftir nýrri og réttlátarf jöfnunar tölu en áður hefur gilt, og var hún endanlega samþykkt á sund þingi Norðurlanda í Björneborg hinn 14. ágúst 1965, samkvæmt einbeittri forgöngu Sundsambands íslands og framkvæmdastjóra nor rænu sundkeppninnar, sem átti hlut að máli. Eru þær á þessa leið: „Sigurinn falli í skaut þeirrar þjóðar^ sem fær hæsta útkomu gf hundraðstölulegri aukningu frá síðustu norrænu sundkeppni og hinni hundraðstölulegu þátttölÍU miðað við íbúafjölda þjóðarinnsr (samanlagt).“ Það er því fenginn grundvöllur fyrir því, að sigurinn geti fallið oss í skaut í þessari keppni, þar sem jafnt eru gefin stig fyrir al menna þátttöku þjóðar og hunór aðstölulega aukningu frá síðustu keppni. Ætti þetta að auka op Framhald á 10. síðu. Litla bikarkeppnii í Keflavík i dag Litla bikarkeppnin heldur fram í Keflavík í dag kl. 3. leika Keflavík og Breiðablik lír Kópavogi. Þetta er 5. leikur keppnl mnar. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 14. maí 1966 H trRitsÝgórTÖrn Eidsson

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.