Alþýðublaðið - 22.05.1966, Blaðsíða 5
B
Minningar-
sjóður um
landkönnuði
Forseti Landkönnunðaklúbbs-
ins í Bandaríkjunum (Explorers
Club), Dr. Edward C. Sweeney.a
hefur tilkynnt, að klúbburinn séa
að hefja sjóðssöfnun — allt að
$ 500.000 — undir forystu Bernt
Balchens, ofursta, sem er kunnur
flugmaður og landkönnuður, í
þeim tilgangi að reisa varanlegan
minnisvarða til heiðurs merkum
norrænum Iandkönnuðum, svo og
til stuðnings áætlun, sem land-
könnunarmiöstöð klúbbsins hefur
gert.
Minningarsj óður amerísk-skandi
naviska landkönnuðar verður þátt
ur í Heimsmiðstöð til að heiðra
landkönnuði íslands, Svíþjóðar,
Danmörku, Noregs og Finnlands,
er lagt hafa sögufrægan skerf til
framfara heimsins. Tekjum sjóðs-
ins mun verða varið til styrkveit-
inga einstaklingum tii handa, eink
um menntaskólanema og stúd-
enta, til starfa við frumrannsókn-
ir og ný landkönnunarverkefni,
og með því móti á að hvetja unga
menn og konur til að velja sér að
lífsstarfi vísindasvið, er snerta
landkönnun.
Balchen ofursti öðlaðist heims-
frægð 29. nóvember 1929, er hann
fór fyrstu flugferðina yfir suður-
skautið i leiðangri Byrds aðmíráls
1928-1930. Til að koma í kring
áætlun landkönnunarmiðstöðvar
klúbbsins hefur hann kallað sér
til aðstoðar hóp merkra land-
könnuða af skandinavískum upp-
runa.
Landkönnuðaklúbburinn var
stofnaður árið 1904. Hann er vís-
inda og menntasofnun, og eru fé-
lagar hans hvaðanæva að úr heim
inum. Tilgangur lians er að hvetja
menn til landkönnunarstarfa og
vekja áhuga á náttúruvísindum.
Forsetar klúbbsins hafa verið
margir frægustu landkönnuðir 20.
aldar — meðal þeirra Greely,
Peary, Vilhjálmur Stefánsson og
Boy Chapman Andrew. William
Beebe, Richard E. Byrd, Pétur
Freuchen, Sir Hubert Wilkins,
Robert Scott og fjöldi annarra
hafa og staðið að starfsemi klúbbs-
ins.
Framhald á 14. sfðu.
?
w1
Rætt v/ð Pál Sigurl
lækni, annan mann
sson, trygginga-
A-listans
f -
BARÁTTUSÆTI A-listans í
Reykjavík annað sæti listans
skipar ungur læknir, Páll Sig-
urðsson tryggingayfirlæknir.
X síðustu borgarstjórnar-
kosningum vantaði Alþýðu-
flokkinn aðeins 58 atkvæði til
þess að fá tvo menn kjörna.
Þá vantaði aðeins herzlumun-'
inn. Ógjörlegt er að segja
hver úrslitin verða í kosn-
ingunum í dag, en stuðnings-
menn Alþýðuflokksins eru þó
staðráðnir í að láta einskis ó-
freistað til að tryggja Páli Sig-
urðssyni sæti í borgarstjórn,
— sæti sem Alþýðuflokknum
ber með réttu miðað við kjör-
fylgi hans í síðustu Alþingis-,
kosningum, en eins og almennt
er viðurkennt eru það fyrst
og fremst landsmálin, sem
skipta mönnum í flokka.
— Mér er það að sjálfsögðu,
mikið kappsmál, sagði Páll er
Alþýðublaðið ræddi við hann
í gær, að sæti Alþýðuflokks-
ins í borgarstjórn verði tvö
að þessum kosningum loknum.
Það skiptir meginmáli fyrir
okkur að fá nú öll þau at-
kvæði og raunar helzt fleiri
en við fengum í síðustu Al-
þingiskosningum. Þar 'má eng-
inn láta sig vanta. ■— Eins og
venjulega reyna Sjálfstæðis-
menn nú að koma því inn hjá
fólki, að meirihluti þeirra sé
í hættu, en svo er þó alls ekki.
Beldur er hér aðeins um að
ræða herbragð, sem beitt er
núna síðustu dagana.
— Núverandi meirihluti þarf
aukið aðhald, og það hefur
sýnt sig, að Alþýðuflokkurinn,
er hæfari til þess en hinir
minnihlutaflokkarnir að skapa
þetta nauðsynlega aðhald. Þótt
ýmislegt hafi verið gert á und-
anförnum árum er enn margt
ógert og á það ekki hvað sízt
við um heilbrigðismálin. Það
hefur verið mikið veður gert
vit af vígslu borgarsjúkrahúss-
ins. Það er góðra gjalda vert,
en hafa ber þó í huga, að það
eru senn tuttugu ár síðan það
. hús vai; teiknað, og er sá seina-
gangur einmitt dæmi um það
að ekki hefur verið nægilega
vel á þessum máluin haldið. Þá
má og benda á að í hið nýja
sjúkrahús vantar margar sjúkra
deildir, sem ekki má lengvu-
dragast vír hömlu að koma hér
á fót. Heilbrigðismálin eru stór
þáttur borgarmála og skiptir
þyí miklu að þar sé vel á mál-
um haldið, bæði svo það fé
sem borgarbúar leggja af mörk
um nýtist sem bezt og eins
verður að gæta þess vandlega
að ekkert svið heilbrigðisþjón-
ustu verði út undan, eins og
viljað hefur hrcnna við.
— Ég vil segja það eitt að
lokum, sagði Páll, að ég skora
á alla stuðningsmenn og vel-
unnara flokksins, að vinna vel
í dag og sjá til þess að við
vinnum þann sigur, sem við
vonumst til. Ég segi þetta ekki
mín vegna heldur vegna Al-
þýðuflokksins og hugsjóna
jafnaðarstefnunnar. Við verð-
um að sigra í dag!
Páll Sigurðsson
-