Alþýðublaðið - 22.05.1966, Page 11
t=Ritstjóri ÖrnEidsson
Ágætf víðavangshlaup skóla
í Kjalarnesþingi háð nýlega
SUNNUDAGINN 24. apríl síð-
astliðinn fór fram á íþróttasvæð-
inu að Hlégarði, Mosfellssveit,
víðavangshlaup skóla í Kjalarnes-
þingi. Veður var hið ákjósanleg-
asta. Rétt til þátttöku höfðu allir
skólar á sambandssvæði Ung-
mennasambands Kjalarnesþings,
sem einnig sá um framkvæmd
þessa móts. 70 þátttakendur frá
10 skólum tóku þátt í keppninni.
Var keppninni skipt niður í 4 ald-
ursflokka, og mátti hver skóli
Sigurvegarinn í 4. aldursflokki
Einar Magni Sigmundsson kemur
í mark.
senda 4 þátttakendur í hvern ald-
ursflokk. Yar þetta bæði einstakl-
ingskeppni og sveitarkeppni milli
skólanna. Hver sveit var mynduð
af 3 þátttakendum frá hverjum
skóla. í einstaklingskeppninni
fengu 6 fyrstu þátttakendur í hverj
um aldursfloklci verðlaun, en fyrir
stigahæstu sveitina í hverjum ald-
ursflokki fékk skólinn verðlauna-
þikar til eignar.
Úrslit urðu sem hér segir:
1. aldursflokkur 10 ára og yngri
hlupu 800 metra.
Ragnar Stef. Kópav.sk. 2.54,8
Magnús Ein. Digransk. 2,57,0
Korm. Bragas. — 2,57,7
Þorgeir Ottóss. — 3,02,2
Geir Gunnarss. Kársnsk. 3,04,6
Tryggvi Felixs. Kópavsk. 3,04,9
Stigahæsti skólinn í þessum
aldursflokki:
Digranesskólinn
Kópavogsskólinn
Kársnesskólinn
2. aldursflokkur 11 og 12 ára
hlupu 1000 metra.
Böðvar Ö. Sigurj. Kóp. 3,32,0
Hinrik Þórh. Kársn. 3,36,4
Ingólfur Sig. — 3,37,9
Stefán Sig. Kópav.sk. 3,38,7
Helgi Þórisson, Digran. 3,42.0
Þorst. Péturss. Bsk. Brúarl. 3.42,5
Stigahæstu skólarnir urðu sem
hér segir:
Kópavogsskólinn
Kársnesskólnn
Digranesskólinn
3. aldursflokkur 13 og 14 ára
hlupu 1200 metra.
Einar Þórhallss. Gfrsk. Kóp. 4,06,1
Þórir Ö. Lindb.ss.-----4,13,2
Ingvar Ágústss. — — 4,13,5
Helgi Egg. Gfrsk. Ga.hr. 4,18,5
Eir. Brynj.----- 4,19,6
Ómar Önfjörð Gfrsk. Brúárl. 4,21,5
Stigahæstu skólarnir urðu sem
hér segir:
Gagnfræðaskóla Kópavogs
Gagnfræðaskóli Garðahrepps
Gagnfræðaskólinn Brúarlandi
4. aldursflokkur 15 og 16 ára
hlupu 1400 metra.
Einar M. Sigm. Gsk. Kóp. 4,49,9
Magnús Steinþ. — — 5,10,0
Ólafur Þórðars. — — 5,18,2
Örlygur Jónss. Gsk. Brú. 5,24,8
Kristinn Magn. ----------- 5,25,8
Ásg. Arngr. Ksk. Kóp. 5,28,4
Stigahæstu skólarnir urðu sem
hér segir:
Gagnfr.skóli Kópavogs
Gagnfr.skóli Brúarlandi
fþrótta-
menn
kjósa
A-listann
Snyrtisérfræðingarnir Dagfríður og Gyða.
Ari Guðmundsson og Hannes Ingibergsson.
Baðstofa og snyrti-
stofa í kjallaranum
Aldursflokkurinn 10 ára og yngri við rásmark. Sigurvegarinn
Ragnar Sigurjónsson er á miðri myndinni nr. 21.
ÞAÐ er sama hverju Loftleiðir
sem er stolt okkar íslendinga —
koma nálægt, allt er þar glæsilegt
og til fyrirmyndar á öllum sviðum.
Eins og kunnugt er, var hið glæsi-
lega Hótel Loftleiðir á Reykja-
víkurflugvelli opnað fyrir skömmu
en frá því var skýrt nýlega í blöð-
unum. í kjallara hótelsins er fal-
legasta sundlaug landsins og þó
víða væri leitað.
Auk sundlaugarinnar er þar og
baðstofa með öllum nútíma þæg-
indum, gufubaði, nuddi og ljós-
böðum. Er bæði karla og kvenna-
deild. Karladeildinni stjórna tveir
gamlakunnir íþróttamenn, Ari
Guðmundsson og Hannes Ingi-
bergsson. Kvennadeildinni stjórn-
ar líjördís Baldursdóttir. Baðstof-
an er opin frá kl. 8 til 20 alla virka
daga nema laugardaga, en þá kl.
8—17. Á sunnudögum er hún opin
kl. 9—12. Þeir sem vilja fá nudd,
þurfa að panta það sérstaklega og
það skal skýrt tekið fram, að bað-
stofa er ekki aðeins fyrir hótel-
gesti, heldur allan almenning.
Fréttamönnum var nýlega boðið
til þessa heilsusamlega staðar og
þeir voru allir á einu máli um á-
gæti hans.
Við hlið baðstofunnar Iiafa tveir
snyrtisérfræðingar, Dagfriður
Halldórsdóttir og Gyða Ólafsdótt-
ir opnað snyrtistofu kvenna ög
karla. Þær eru útlærðir í sérgrein
sinni í Kaupmannahöfn og Lond-
on. Þarna er hægt að fá snyrtár
hendur og fætur, megrunarnudd, i
liúðhreinsun og á næstunni fá þær j
Gyða og Dagfríður tæki, sem eyða [
sprungnum háræðum og líkams-|
hárum.
Þess skal að lokum getið, áð í
gengið er til baðstofunnar og|
snyrtistofunnar um aðalinngan'g j
hótelsins, en strætisvagnaferðlr5
til Loftleiðahótelsins úr Lækjai’-
götu eru á klukkutímafresti.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 22. maí 1966 H