Alþýðublaðið - 03.06.1966, Side 3

Alþýðublaðið - 03.06.1966, Side 3
LOKASÓ Hué, 2. iúnl. (NTB-Reuter). Skriödrekar og brynvarðir bílar sóttu í dag inn í háskólabæinn Hué í norðurhluta Suður-Vietnam. Stjórnarhermenn búa sig nú undir að ná yfirráðum yfir bænum af stúdentum og hermönnum fjand- samlegum stjórninni. Stúdentar liafa haft Hué á sínu valdi í tæpa tvo mánuði og hafa lýst því yfir að þeir muni berjast til hinzta manns, ef nauðsyn beri til þess að aftra því, að herforingjastjórn- in nái aftur yfirráðum yfir hinni gömlu höfuðborg keisaranna. herra ísraels kemur hingað TEL AVIV. (ntb-afp). TILKYNNT hefur verið í Tel Aviv að utanríkisráðherra ísraels, Abba Eban, muni fara í opinbera lieimsókn til íslands og Danmerk- ur í sumar. Ekki héfur verið á- kveðið hvenær í sumar hann heimsækir þessi lönd. Situr fund utan- ríkisráðherra NATO í MÖRGUhL fór utanríkisráð- herra, Emil Jónsson, utan til að Kitja fund utanríkisráðherra Nato ríkjanna, en slíkir fundir eru haldnir tvisvar á ári, vor og haust. Fundurinn er nú haldinn í Brússel og hefst næstk. þriðju- dag óg mun standa yfir í tvo til þrjá daga. En í kvöld höfðu enn ekki bor- izt fréttir um átök milli stjórnar- hermanna og stúdenta. En mikil spenna er sögð ríkja í bænum — ekki sízt vegna hermdarverkanna í gær er stúdentar lögðu eld að bandarísku ræðismannsskrifstof- unni og öörurn byggingum í bæn- um. Síðan stjórnarhermenn náðu Danang, öðrum helzta bænum í norðurhluta Suður-Vietnam, aftur á sitt vald er Hué eini meirihátt- ar bærinn, sem búddískir upp- reisnarmenn hafa á sínu valdi. ! : . ‘ - íbúar bæjarins eru 100 þús. Búizt • er við að taka muni stjórnarher- sveitirnar að minnsta kosti þrjá daga að ná tökum á ástandinu í Hué. Frá Saigon berast þær fréttir, að alvarleg sundrung virðist hafa risið upp meðal leiðtoga búdda- trúarmanna, og hefur hinn hóf- sami leiðtogi, Thic Tam Chau, sætt harðri gagnrýni þar eð hann hefur fylgt friðsamri stefnu. Tam Chau hefur verið sakaður um að þiggja mútur af herforingja- stjórninni, þar eð hann hafi skor- að á búddatrúarmenn að hætta um sinn mótmælaaðgerðum gegn stjórninni og sagt, að stjórnin hafi Iofað að fá öðrum völdin í hend- ur eftir hina væntanlegu endur- skipulagningu á stjóniinni. Ráðherrar stjórnarinnar neituðu því seinna að þeir hefðu veitt Frh. á 14. síðu. Tvær búddanunnur brenndu sig til bana í Suð ur-Vietnam si. sunnudag. Á myndinni sjást skór annarar nunnunnar, Nu Thanh Quang, við hliðina á brennandi líkama hennar í garði pagóðunnar í Tue. Fjöldi manns safnaðist saman í garðinum og horfði á þegar nunnan kveikti í olíuvotum klæðum sínum. NÝTT FLUGÞJÁLFUNAR- TÆKI HJÁ LOFTLEIÐUM ORÐUVEITING Forseti íslands hefir í dag sæmt Birgi Kjaran, hagfræðing riddara krossi liinnar íslenzku fálkaorðu fyrir margháttuð þjóðfélagsstörf. Reykjavík, 2. júní 1966. Orðuritari. Rvík, ÓTJ. LOFTLEIÐIR hafa fest kaup á fullkomuu eftirlíkingutæki af flugstjórnarklefa - ÁSynthetío Trainer) sem gerlr það kleift að þjálfa á jörðu niðri flng- mþirn félagsinsj við aðstæðuT mijög líkar því sem er í raun- verulegru flugi. Kaupverð þess er um sjö og hálf milljón. Tækið er einkum miðað við’ kennslu á Rolls Royce vélarnar. en með tiltölulega litlum kostnaði er hægt að gera breytingar á því tii þotukennslu, þegar þar að kemur. Fyrst var athugað með kaup á svona tæki fyrir einum fimm ár um síðan, er þeir fóru til Eng- slands talar á ústaðasókn A SUNNUDAGINN efnir Bú- staðasöfnuður til kirkjudags til ágóða fyrir kirkjubyggingu sína. Hefur slíkur dagur verið haldinn tvívegis áður og í bæði skiptin við mikinn áhuga og bátttöku sóknarbarna sem annarra Starfs aðstöðu hefur söfnuðurinn í Rétt arholtsskólanum við Réttarhols- veg og þar verður guðsþjónusta á sunnudaginn kl. 2 kaffisala og almenn samkoma um kvöldið. Hinn 7. maí s,l, var tekin fyrsta skóflustunga Bústaðakirkju. síðan íliefur verið unnið sleitúlaust, var grunnurinn sérlega góður og er nú búið að slá upp fyrir og etreypa fyrsta áfangann, sem er undirstaða safnaðarheimilisins Næst verður byrjað að siá upp fyrir kirkjuundirstöðum og síðan kjallai-a undir mestu af bygging unni. Ekki er útséð með það. hversu mikið verður unnið í sum ar, fef það allt eftir því fjármagni, sem söfnuðurinn hefur úr að spila. Er kirkjudagurinn á sunnu daginn m. a. til þess að afla fjár í kirkjubyggingarsjóðinn. Guðsþjónusta verður kl 2 eins og að framan greinir. Messar sóknarpresturinn, en aS henni lok inni hefst kaffisala Kvenfé.ags Bú staðasóknar, og er ekki að efa það, að margir minnast gómsætra rétta frá fyrri kirkjudögum og hugsa sér að njóta þess enn. sem fram er borið. Mun kaffisalan standa yfir fram eftir degi. Sam koma verður svo um kvöldið, og hefur forseti íslands, herra Ás geir Ásgeirsson sýnt söfnuðinum þann mikla velvilja, að flytja ræðu á þeirri samkomu. Ýmis'egt ann að verður á dagskránni þar á meðal söngur Kirkjukórs Bústaða sóknar og leikur organistan® Jóns G. Þórarinssonar á orgel safnað arins. Mun samkomunni ljúka með helgistund, en síðan verður enn gestum vísað í átt til kaffiborð anna, og samkomugestir gera sér gott af veitingum kvenfólksins. lands, Jóhannes Markússon, yfir flugstjóri félagsins og Jóhannes Einarsson, verkfræðingur, yfir- maður tæknideildar Loftleiða, tll að kynna sér þau. Ékki þótti rétt þá að festa kaup á svo dýrum grip unz ákveðið hefði verið hvaða vélar tækju við af sexunum. En þegar Rolls Royce vélarnar komu ±11 sögunn ar var ákveðið að kaupa tæki fyr ir þær, og gert ráð fyrir stað- setningu þess, þegar skrifstofu- byggingin á Reykjavíkurflugvelli var teiknuð. Tækið sem gengur fyrir rafmagni og rafeindaheila er eftirlíking af flugstjórnarklefa fjögurra hreyfla skrúfuþotu og eru „flugeiginleikar" þess miðað ir við RR 400 sem fyrr segir. Það samanstendur af flugstjórn- arklefa fyrir flugstjóra og flug- mann, og palli þar fyrir' aftan þar sem kennari eða eftirlitsflug maður fylgist með „fluginu* ‘og annast talstöðvarviðskipti við þá sem i tækinu eru. Á pallinum eru einnig þau tæki sem kennar inn hefur yfir að ráða, svo sem til að framkalla bilanir o. fl. Einnig er þar sjálfritari sem teiknar jafnharðan flugleiðina og flughæð í aðflugi. Hægt er að þjálfa flugmenn í blindflugi og aðflugi að öllum þeim flugvöllum sem hafa að- flugsvita, en í tækinu eru fjórar miðunarstöðvar og fjórar talstöðv ar eins og í flestum stærri flug vélum. Eins og áður getur er hægt að framkalla ýmsar bilanir til þess að kenna flugmönnum að bregðast við þeim, svo sem bil- anir á hreyflum, eld í hreyflum, bilanir í talstöðvum eða mælum os. frv. Allir flugstjórar í: reglubundnu atvinnuflugi verða að gangast undir hæfnispróf á sex mánaða fresti, og flugmenn á eins árs fresti. Loftleiðir vonast til að hluti af þeim prófunum gæti nú farið fram í þessu tæki sem er viðurkennt af loftferðaeftirlitinu Flugmenn fá meiri og stöðugri þjálfun með þessu móti, auk þess sem það sparar félaginu talsverð ann skilding, því að liver asfinga flugtími í RR 400 kostar fjörutíu þúsund krónur. Kennari við þjálfunartækið hef ur verið ráðinn Hörður Sigurjóns son, fyrrverandi flugstjóri, en tæknilegui’ viðhalds og v'ðgerðar maður Halldór Sigurjónsson, flug virki. Gott veður var á síldarmiðunutn sl. sólarhring. Veiði svæðið hefúr færst nær landi og var nú 190—- 210 mílur NA frá Glettingarnest Síldin var mjög stygg, en eiystaká skip fengu góða veiði. j -> Samtals fengu 17 skip 2,92á tonK. Seley SU 501 tonn, tvær lanöanii’, Oddgeir ÞH, 150, Helga Guð'r mundsdóttir BA 106, Kannep Haí stein EA 100, Guðbjörg ÍS. 9T, Snæfell SH. 125, Faxi GR .11$ Barði NK. 196, Guðbjörg GK. 306j. tvær landanir, Lómur KE. 107,:Hat rún ÍS. 89, Guðrún Jónsdóttir. ÍS;. 135, Reykjaborg RE. 130, Qlafuí Friðbertsson ÍS, 175, Eldborg CJý 210t Ólafur Magnússon EA 188‘, Guðbjartur Kristján ÍS. 2Ó0. * ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 3. júní 1966 3

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.