Alþýðublaðið - 17.06.1966, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 17.06.1966, Blaðsíða 4
 W£SHS> RHatJórtr: Gylfl Grðndnl (áb.) og Benedlkt Gröndil. — RlUtftmerfuIl- trúl: KlOur GuBnaion. — Slmsr: 14900-14903 — Auglý«lnga»íml: 14900. ABaetur AlþýBuhúalB vlB Hverflagötu, Reykjavlk. — PrenUmiBJa AlþýBu UáBelno. — AakrifUrgJeld kr. 95.00 — 1 lauaasölu kr. 6.00 etntakW. Otgefandl AlþýSuflokkuriniL ÞJÓÐHÁTÍÐ ÞJÓÐHÁTIÐ er haldin í 23. sinn, síðan lýðveld- ið var stofnað 1944. Heilbrigð og framsækin þjóð tnun í dag minnast frelsisbaráttu fyrri ára, þegar fátækt og sjúkdómar voru á öðrum hvorum bæ, minn ast framfara og sigra, minnast hinna miklu tíma- imóta, er lýðveldið var stofnað á fæðingardegi Jóns Sigurðssonar. { 22 ár eru ekki langur tími, en samt hafa orðið miklar breytingar á högum íslenzku þjóðarinnar á því tímabili. Fólkinu hefur fjölgað úr 127.000 í tæplega 200.000. Þar sem tveir íslendingar stóðu 1944. standa í dag þrír. Sem dæmi um vellíðan og góða heilsu má nefna, að meðalævi karla hefur síð- an 1944 lengzt úr 66 í 70 ár, meðalævi kvenna ur 70 í 75 ár. Velmegun þjóðarinnar hefur aldrei verið meiri en nú. Helztu vandamál, sem bíða úrlausnar, eru nú ekki af því að of lítið sé um húsnæði, matvæli, föt, framkvæmdir eða framleiðslu. Nú virðast vandamál- in stafa 'af því að of mikið sé færzt í fang, of mikið sé um atvinnu, of mikið framleitt, til dæmis af bú- vöru. Óvíst er enn, hvort lífshamingja eykst að sama skapi sem velmegun þjóðarinnar. Það verður alltaf nóg af vandamálum við að glíma og ný munu taka við, er hin eldri hverfa. Flest vandamál samtíðarinnar má leysa, ef fólkið sýnir drenglyndi, ábyrgð og samvinnuhug. Takist það, get ur líf íslendinga á næstu mannsöldrum orðið eins far- sælt og gott og nokkur dæmi eru um í mannlegu sam félagi. ÞJÓÐSKÓLI ALÞÝÐUBLAÐIÐ er í dag helgað -Háskóla ís- l&nds og framtíð hans. Birtir blaðið frásagnir af starf- semi skólans, viðtöl við stúdenta og ávarpsorð frá menntamálaráðherra. Háskólinn stendur nú á tíma- mqtum og þarf á næstu árum 'að búa sig undir stór- aukið starf fyrir næstu kynslóðir. Gylfi Þ. Gíslason segir í ávarpi sínu á forsíðu þes sa blaðs, að háskóli sé eitt helzta tákn þjóðernis og þjóðlegrar menningar. Góður háskóli sé ein af naúðsynlegum tryggingum fyrir því, að þjóð geti varð Veitt sjálfstæði sitt. Gylfi kvað hlutverk háskóla vera fjórþætt. Hann eigi að annast æðstu kennslu, vísindalegar rannsókn- ir, yera útvörður -andlegs frélsis og aflvaki nýrra hug emylnda og loks samvízka þjóðarinnar í menningar- málum. Ljóst er, að þjóðin þarf að efla Háskóla íslands til nýrra stórátaka á komandi árum. í fræðslu- og anenningarmálum getur þjóðin ekki staðið kyrr — hún verður sífellt að sækja fnam. 4 ALÞÝO8LA0IÐ - 17. júní 1966 ■■ SLIPPSTOÐIN H.F. VIÐ HJALTEYRARGÖTU — AKUREYRI - ÍSLAND — P.O, BOX 246 - SÍMIt (96)21300, STÁLSKIPASMÍÐAR - TRÉSKIPASMfÐAR HÚSRYG GINGAR INNRÉTTINGAR — VIÐGERÐIR Fjölbreytt úrval efnis til skipasmíða og húsbygginga jafnan fyrirliggjandi. Leitið tilboða. — Reynið viðskiptin. BJARMI H.F. VÉLA OG PLÖTUSMIÐJA P.O. Box 246 - Sími (96)21300 VéSsmíöi — Plötusmíöi Rennismíði — Eldsmíöi Skipaviðgeröir Fullkomnar vélar. — Fljót afgreiðsla. BLOÐIN hafa skýrt frá því, að ban'da ríski náttúrufraeðingurinn Maurice Bróun og kona hans hafi dvalizt hér á landi og ferðazt á vegum Feröaskrifstofu ríkisins. Aður en Bróun fór flutti hann fyrirlestur og sýndi kvikmyndtr í Háskól- anUm á vegum Fuglaverndarfólagsins. Var l>að fróð legt kvöld og skemmtilegt, og kann áð vera áð lesendur hafi áhuga á ýmsu, sem þessi merki maður sagði. + ENGAR AUGLYSINGAR VIÐ VEGINA. ERINDI BROUNS fjallaði Um náttúru- verndargarð, sem hann hefur stýrt i Pennsylvan íu í Bandaríkjimum og orðið fraegur fyrir. En gamli maðurjnn byrjaði að segja frá ýmsu, sem fyrir hann hafði borið hér á landi, og á sumt áf 'því erindi til fleiri en heyrðu. Broun byrjaði eins og venjulegur ferða maður að segja frá því, sem váktð héfði mesta athygli hans á ferðum hér á landi. Taldi liann fyrsta þá staðreynd, að liann hefði ekið um 1600 km. á íslenzkum vegum án þess áð sjá eitt ein asta auglýsingaspjald við veglna. Þetta þótti hon um mikið og dásamlogt undur. Sagði hann, að í heimalandi lians væri ekki hægt að aka mílu án þess að við blöstu risávaxin auglýsingaspjöld. Drekkið X-Cola eða Tyggið ABC-tyggigúmmí og svo framvegis. Hann taldi Islendinga skynsama að forðast þessa Þlágu, svo að ferðamenn gætu nótið landslagsins, sem hánn taldi stórfenglegt hér á landi, hvar sem litið væri. Þá taldi Broun kurtéisi og lipurð íslenzku bif reiðastjóranna (og ekki síður fararstjórans) metl eindæmum. í Anieriku væru 'fjórfaldar og áttfald ar brautir, en allt í háalófti. Hér væru mjóir veg ir og torfarnir vegir, en allt færi fram í friði Og spekt. Broun minntist á rigninguna, sem þeir fé- lagar komust rækilega í kynni við, en kváðst hafa heyrt að gott veður væri líka til . Þá nefndi hann, og þótti mikið til um, að hér væru tiltölulega eins margár bókabúðir og víiibúðir væru í Ameríku, ett cins fáar vínbúðir og bókabúðir væru þar. -*- AÐVÖRUN TIL ÍSLENDINGA. Hin alvarlegri hlið á boðskap hins banda ríska náttúrufræðings vár á þá lund; að hann vár aði Islendinga við að eyðileggja og glata náttúru landsins. Sagði hann, að Island væri enn eins o'g einn stór náttúrugarður. En framfarir vaéru ör- Frh. á 3. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.