Alþýðublaðið - 17.06.1966, Blaðsíða 15

Alþýðublaðið - 17.06.1966, Blaðsíða 15
Ferðahandbók rrambald br opnu. Hún er byggð upp á þann hátt, að nauðsynlegásta fróðleik er skipu lega fyrir komið og auðvelt að finna það, sem lesandinn vill kynna sér. Þá eru ekki aðeins í bókinni almennar fróðleiksgrein ar, heldur skipulegar og tæmandi upplýsingar um staði, fólk, stofn anir, hús, þjónustufyrh'tæki, vegi, gististaði, fugla, veiðistaði osfrv. osfrv. Ýmislegt hefur verið sett á prent á ensku fyrir erlenda ferðamenn, sem til íslands koma. Hefur það verið misjafnt, stundum yfirborðs kennt hvað efni snertir, oft á barnalega lélegu máli. Nú er bætt vel úr hvorutveggja, enda var Pet er Kidson manna líklegastur til að skila slíku verki vel úr hendi. Hann er brezkur að uppruna. en liefur dvalizt svo lengi á íslandi, lært mál okkar svo vel og kynnzt þjóðlífi svo ítarlega, að hann kann ágæt skij á, hvað erlendir aðilar vilja vita um ísland. Hefur liann fullnægt þeirri þörf prýðilega í Stuttu en efni miklu bg skýi’u máli. Ekki sakar, að Kidson er áhugasamur ferðamaður sjálfur og iiefur því glögga hugmynd um viðhorf ferðamanna og óskir. Þessi bók er ekki aðeins hand hæg fyrir erlenda ferðamenn, held ur getur hún verið gagnleg fyrir hvern þann, sem vili hafa íiand liægar almennar upDlýsingar um land og þióð. Ber þar ékki sízt að nefna íslendinga sjálfa, til dæmis bá, sem eiga fvrir liöndum að ferðast til annarra landa og liitta þar útlendinea. Vilji þeir liafa rétt svör á reiðum liöndum mun þeim revnast vel að hafa blaðað f þessari bók í flugvélinni á útleið. Síidin Framhald af 3. sfðn. Bára SU 170, Sigurvon BE 150, Björgútfur EA 100, Jón Garðar GK 376 (tvær landanir). Raufarhöjn: Eldborg GK 120 tonn, Þorbjörn II. GK 200, Sigurborg SI 295, Guð björg GK 220, Guðbjartur Kristj- án ÍS. 210, Snæfell EA 200, Bjarmi II. EA 270, Súlan EA 271 (tvær landanir). Langjökuil Framhald af 3. siðu. og 100 þús., Björn E. Haraldsson 20 daga og 95 þús., Haraldur Helgason 20 daga og 70 þúsund. Annan kostnað sakarinnar, þar með tatin saksóknarlaun til ríkis sjóðs, kr. 40 þús. greiða sex þeir fyrsttöldu að 16/20 hlutum, tveir næstu greiða 2/20 hluta og sá síð asttaldi greiðir 1/20 hluta. Skip- stjórinn greiðir og 1/20 hluta, auk greiðslu til verjanda síns, eins og hinir. í forsendum dómsins segir, að hinir sex fyrsttöldu hafi haft með sér sterk samtök um smygl, en samstaða þeirra rofnaði eftir þriggja vikna tugthúsvist. Þeir Ólafur Guðmundsson og Björn Haraldsson eru báðir ungir og lítt reyndir og játuðu brot sitt þegar í stað. Brot þeirra Ólafs K. Jóhannssonar og Valsteins eru þeim mun alvarlegri, sem þeir voru meðal æðstu yfirmanna skipsins og trúnaðarmenn eigenda þess. Skipstjórinn var ekki talinn eiga neinn þátt í smyglinu, en ó- þægindi hafði hann nokkur af verki þessu. Hann sat inni í 18 daga, varð að þola farbann í mánuð og missti skipstjórastöðu sína hjá Jöklum hf. Stúdentar Framhald af 5. ríðu ina fyrir augum sér, og mynda sér skoðun um þá, á þann hátt einnig. Páfagaukalærdómur hef ur fram til þessa hvorki þótt sérlega heppilegur, né til fyrir myndar. — Deildafyrirkomulagið er að mínum viti hetdur óheppi legt, þar sem mörkin á milli hinna ýmsu greina eru sums staðar óglögg og hæpið að flokka þau algjörlega sundur. en úti í þá sálma skal ekki nán ar farið hér, enda yrði það of langt mál upp að telja. — Allt fyrirkomulag Há'-kól ans þarf endurskoðunar við, og hefur nú loks verið skipuð nefnd í þeim tilgangi. Óska ég nefnd þeirri af heilum hug alls velfarnaðar í starfi og vona að brátt megi rísa sá dagur að Háskólinn okkar verði orðinn „alvöruháskóli". Hafnarfjöröur Framhald af 2. síðn. Þorsteinsson. Að messu lokinni verður farið í skrúðgöngu að Hörðuvöllum, þar sem útihátíða- höld fara fram. Þar mun dr. Finn- bogi Guðmundsson, landsbóka- vörður, halda ræðu og Elsa Jó- hannsdóttir flytja ávarp Fjall- konunnar. Þá verða þarna fjöl- breytt skemmtiatriði og hljóðfæra- leikur. Síðasta atriði dagskrárinnar á Þökkum inndega samúð og vinarhug við andlát og jarðarför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa Böðvars Friðrikssonar, frá Einarshöfn. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Hörðuvöllum verður handknatt- leikur. Kl. 5 verða kvikmyndasýningar fyrir börn í kvikmyndahúsum bæjarins. Kl. 8 síðdegis hefst kvöldvaka við Lækjarskóla. Þar mun Haf- steinn Baldvihsson bæjarstjóri flytja ávarp. Þa munu fara fram margs konar skemmtiatriði, söng- ur, leikþættir, fimleikasýning o. fl. Að kvöldvökunni lokinni verð- ur stiginn dans við Lækjarskóla. í 17^ júní nefnd Hafnarfjarðar eru Þorgeir Ibsen, formaður, Hjalti Einarsson og Ingvar Vikt- orsson. Mosfellssveit Framhald af 2 <fðu. kynnir dagskráratriði, en að því loknu syngur séra Bjarni Sigurðs son messu. Minni dagsins flytur Aðalsteinn Eiríksson námsstjóri. Karlakór Kjósarsýslu syngur. — Fjallkonan flytur ávarp, en hún er Ólöf Sjöfn Gísladóttir, og svo fer fram leikfimisýning stúlkna undir stjórn Hlínar Árnadóttur. Að loknu kaffihléi, en Umf. Afturelding stendur fyrir kaffi- veitingum í Hlégarði, fer fram sundkeppni, liandboltakeppni, í- þróttasýning á hestum o.m.fl. í kvöld hefst svo dansleikur í Hlé- garði kl. 21. Mosfellingar svo og nærsveitarfólk og þeir, sem fluttir eru úr sveitinni, eru hvattir til að mæta. Kópavogur Framhald af 2 siBu garð. Formaður þjóðhátíðarnefnd- ar Sigurjón Ingi Hilaríusson æsku lýðsfulltrúi setur hátíðina. í Hlíðargarði verður margt til skemmtunar. Hjáimar Ólafsson bæjarstjóri flytur ræðu. Helga Harðardótir flytur ávarp Fjallkon- unnar, leikararnir Árni, Klemenz og Bessi skemmta og ýmislegt fleira verður til skemmtunar. Kl. 4,30 verður dans yngri bæj arbúa í Æskulýðsheimilinu að Álfhólsvegi 32. Um kvöldið hefst hátíðin aftur við Kópavogsskóla kl. 8,30. Þar flytja leikarar gamanþætti, Ríó- tríóið leikur og syngur þjóðlög, og tvöfaldur kvartett syngur und- ir stjórn Kjartans Sigurjónsson- ar. — Síðan verður dansað úti við Kópavogsskóla og einnig í Félags heimilinu til kl. 1 e.h. „5 pens” og Stuðlatríó leika fyrir dansi. ,.' í' : • . { . f Reykjavík Frambald af 2. sfðn. lags Reykjavíkur flytur ávarp, hef ur lúðrasveit Reykjavíkur leik undir stjórn Páls P. Pálssonar, í Hallargarðinum. Klukkan hálf níu hefst svo kvöldvaka á Arnarhóli þar sem margt verður til skemmt- unar, og að henni lokinni verður stiginn dans til kl. eitt eftir mið- nætti. Dansað verður á eftirtöld- um stöðurn: Lækjartorgi (Hljóm- sveit Ragnars Bjarnasonar, söngv ari: Ragnar Bjarnason); kynnir verður Svavar Gests. Aðalstræti (hljómsveit Ásgeirs Sverrissonar, söngkona Sigríður Magnúsdóttir.) Fjallkonan að þessu sinni verður Margrét Guðmundsdóttir leikkona, og flytur hún ávarp samið af Guðnumdi Böðvarssyni. Þess má að lokum geta, að þeir, sem týna görnum, eða finna týnd börn, eru beðnir að snúa sér að aðsetri vagnstjóra SVR, sem er við hlið Útvegsbankans. við gefin lofórð um skiptiverzlúnh Kom þó brátt í ljós að alls engarj ráðstafanir höfðu verið gerðar. —| Borgarstjórnin stæði því andspænl is því, að hafa svipt borgaranal mikilvægri þjónustu. Áskildi Ósk-| ar sér rétt til þess að flytja síð-í ar tillögu um úrbætur, sem íj rauninni væru aðeins framkvæm-J anlegar með þvi að fella burt nú-| gildandi lög. Sendiherra lyrkja afhendir Trúnaðar bréf sitt HINN nýi ambassador Tyrk- lands, herka Osmann Derinsu af- henti í dag forseta íslands trún- aðarbréf sitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum, að viðstöddum ut- anríkisráðherra. Reykjavík, 16. júní 1966. Frá skrifstofu forseta íslands. FRÍDAGUR FRESTAÐ í KÓPAVOGI FYRSTI bæjarstjórnarfundur í Ríkisstjórnin mælist til þess eins ■ og að undanförnu, að 17. júní ^pavogi var haldinn í gær. - verði almennur frídagur um land Ekkert gerðist’ öllum kosningum i nefndir var frestað um eina viku. MÓTTAKA Ríkisstjórnin tekur á móti gestum í ráðherrabústaðnum, Tjarnargötu 32, þjóðhátíðardaginn 17. júní, kl. 3,30-5. Forsætisráðuneytið, 15. júní 1966. Borgarstfórn Framhalil <1 i <sfSu mættu vel við una. Mjög voru skiptar skoðanir um málið í borg arstjórn en samt samþykkt að gera að vilja Kaupmannasamtak- anna í trausti þess að þau stæðu Sex leikir fara fram í I. og II. deild íslandsmótsins í knattspyrnu um helgina. t I. deild leika Valur og Ak- ureyri á Melavellinum kl. 4 og á mánudag KR og Akra- nes, kl. 20,30 einnig á Mela vellinum. Fjórir leikir verða liáðir í II. deild á sunnudag, — á Siglufirði leika KS og Breiða blik kl. 3, í Hafnarfirði Hauk ar og Vestmannaeyjar kl. 2, á ísafirði FH og ísfirðingar kl. 4 og í Sandgerði íþrótta- bandalag Suðurnesja og Vík- ingur kl. 4. útvarpið FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ Þjóðhátíðardagur íslendinga. 8,00 Morgunbæn. Séra Gunnar Árnason flytur. 8,05 Hornin gjalla. Lúðrasveitin Svanur. 8,30 íslenzk sönglög og alþýðulög. 10,25 íslenzk kór- og hljómsveitarverk. 12,00 Hádegisútvarp. 13,40 FRÁ ÞJÓÐHÁTÍÐ í REYKJAVÍK. a. Hátíðin sett. Valgarð Briem lögfr., form. þjóðhátíðarnefndar, flytur ávarp. b. Guðsþjónusta í Dómkirkjunni. Séra Þor- steinn.L. Jónsson í Vestmánnaeyjum. c. 14,15 Hátíðarathöfn við Austurvöll. Forseti íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, leggur blómsveig að stalli Jóns Sigurðs- sonar. Þjóðsöngurinn leikinn og sunginn.' Forsætisráðherra, dr. Bjarni Benediktsson flytur ræðu. — Ávarp Fjallkonunnar. — d. 15.00 Barnaskemmtun á Arnarhóli. Lúðrasveit unglinga. Leikhúskvart- ettinn syngur lög úr „Járnhausnum.” Róbert Arnfinnsson og Borgar Garð- arsson flytja leikþátt: „Einkuima- bókina. Barnakör úr Melaskólamim. Alli Rúts og Karl Einarsson leika „Litla og Stóra.” Skátar syngja. A«i Rúts syngur gamanvísur. Gísli Al- freðsson kynnir og stjórnar barna- tímanum. e. 16.00 Dansskemmtun á Lækjartorgi íyrir börn og unglinga. f. 17.00 Hljómleikar í Hallargarðinum. g. 17.45 fþróttir á Laugardalsvelli. 18,15 Miðaftantónleikar. Gaudeamus, syrpa af stúdentalögum o. fl. 20,00 íslenzkir kvöldtónleikar. 20.30 Frá þjóðhátíð í Reykjavík: Kvöldvaka á Arnarhóli. — Lúðrasveitin Svanur leikur. Geir Hallgrímsson borgarstjóri flytúr ræðu. Karlakórinn Fóstbræður syngur. Þorsteinn Ö. Stephensen leikari les „Gunnarshólma” eftir Jónas Hallgrímsson. Svala Niélsen og Guð- mundur Jónsson óperusöngvarar syngja. 22.10 Dansinn dunar. Útvarp frá skemmtunum á Lækjartorgi, Lækjargötu og AðalstrætL Kynnir á Lækjartorgi: Svavar Gests. 01,00 Hátíðarhöldunum slitið frá Lækjartorgi. O0000000<xxxxx)0000000<x OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO ALÞÝUBLAÐIÐ — 17. júní 1966 X5

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.