Alþýðublaðið - 17.06.1966, Page 9
ÍLAR
Ármann Snævarr rektor Háskóla íslands heldnr ræða við skólaslit
síðastliðinn þriðjudag-. ,
nokkur ár, er samt enn meiri f jölg
un í vændum.
Reiknað hefur verið. út, að á
næstu tveim áratugum muni stúd
entatala Háskólans þrefaldast frá
því sem nú er. Af ýmsum ástæð
um getur stúdentatalan þó aukizt
enn meira en þessi spá gerir ráð
fyrir og reyndin mun raunar hafa
verið sú, að þar sem slíkar spár
ahfa verið gerðar, að þar hefur
ævinlega verið of varlega áætlað.
Það er t.d. víst, að kennslugrein
um við skólann hlýtur að fjölga
næstu tvo áratugi, og námsefni
verður vafalaust aukið í ýmsum
greinum sem nú eru kenndar. Einn
ig má gera ráð fyrir að starfsvið
háskóladeilda aukist á ýmsan hátt
til dæmis að því er varðar kennslu
og námskeið fyrir kandidata.
Meðal nýrra greina, sem gera
má fastlega ráð fyrir að kennsla
verði tekin upp í við Háskóla ís
lands á næstu árum eru nátturu
vísindit félagsvísindi og aukin
tungumálakennsla. Það er ekki
vanzalaust að ekki skuli vera próf
essorsembætti í jarðfræði eða eld
fjallavísindum við Háskóla íslands
því frá náttúrunnar hendi er ís-
land sannkölluð paradís jarðfræð
inga, eigum við enda marga fræði
ménn á því sviði, sem njóta álits
og virðingar erlendis.
Framundan er nú bylting
í skólamálum. Fræðileg athugun
og endurskoðun á öllu íslenzka
skólakerfinu er að hefjast, og
menntamálaráðherra hefur nýlega
skipað níu manna nefnd til að
gera tillögur um þróun og efl
ingu Háskóla íslands næstu tvo
áratugina.
Þá hafa forráðamenn Háskólans
samið áætlun um fjölgun kennara
embætta næsta áratug, og er þar
gert ráð fyrir stofnun 32 nýrra
prófessorsembætta og embættum
49 annarra kennara. í nokkur
þessara embætta hefur þegar ver
ið skipað.
Þess var getið hér að fram
an, að stjórnmálamenn hefðu í
eina tíð verið sínkir á fé til Háskól
ans, og jafnvel sumir hverjir vilj
að skera honum ærið þröngan
stakk. Þetta á nú ekki lengur við.
Þótt Háskólinn áreiðanlega gæti
með góðum árangri notað mun
meira fé en honum nú er skammt
að, þá hafa fjárveitingar til hans
vaxið stórkostlega unndanfarin ár,
og fuilkominn skilningur ríkir á
mikilvægi þess að skólinn haldi
áfram að eflast og þróast en staðni
ekki í fornum viðjum.
Á mælikvarða annarra landa
er Háskóli íslands enn mjög ung
stofnunt — varla búinn að slíta
barnsskónum. Ungar stofnanir eru
Handbók
Ferðahandbækur sf. hafa sent-
frá sér nýja handbók um ísland
fyrir erlenda ferðamenn. Nefnist
bókin „Iceland — a Traveller's
Guide,“ og er eftir Peter Kidson.
Hefur bók þessi þegar hlotið við
urkenningu Ferðamálaráðs.
Bók þessi er í svipuðu sniði og
þó oft betur settar en aldnar, —
þær hafa sveigjanleik og vilja til
að laga sig að öðrum þjóðfélags
'breytingum.
Undir dugandi forystu margra
og mætra manna stefnir Háskóli
íslands fram, og eftir því sem
þjóðinni fjölgar mun hlutverk
hans vaxa. Þær þrjár greinar, sem
upphaflega voru tengdar saman
til að mynda skólann hafa nú
styrkzt að mun og nýjum grein
um hefur skotið upp. Háskóli ís
lands er æðsta menntastofnun
þjóðarinnar og er mikils um vert
að þar ríki ævinlega framhyggja
innan veggja og andi sannra vís
inda. —EG —
á ensku
ferðahandbók, sem sömu aðilar
gáfu út á íslenzku fyrir nokkrum
misserum. Þótti hún mjög hand
hæg fyrir þá, sem hugðu á ferðir
innanlands, og haði að geyma mik
inn og aðgengilegan fróðleik.
Hin nýja bók hefur sömu kosti.
Framhald ð 15. síðu
■
■•ví'j'v
^ S,s:
-> -
g fórmlega tekin í notkun 17. júní 1940. Ýmsum þótti stórt byggt í upphafi og töldu að langur tími mundi
26 áruin sfðar cr húsið löngu orðið alltof lítið fyrir starfsemi skólans.
Frá Húsmæðrakermara-
skóla íslands Háuhlíð 9
Ráðí.konudeild tekur til starfa við skólann i haust.
P'msóknir um skólavist skulu berast fyrir 15. júlí n.k.
— Urr.sækjendur skuiu hafa lokið landsprófi eða gagn-
fræðiprófi og námi í húsmæðraskóla.
Vottfest afrit af prófskírteinum og fæðingarvottorð skulu
fylgja umsóknum.
SKÓLASTJÓRI
17. JÚNÍ
Þjóðhátíðarkaffi meS gómsæt-
um kökum.
Framreitt í tilefni dagsins.
Opið tii kl. 11,30 í kvöld.
TJARNARBÚÐ
ODDFELLOWHÚSINU.
Enskir
teppadreglar
Margar breiddir
Margir mjög falíegir iitir
Nýkomnir.
GEYSIR HF.
teppadeiídin
NA UÐ UNGARUPPBOÐ
Eftir kröfu Þorvalds Liiðvíkssonar hri. o.fl, fer fram
nauðangaruppboð að Bræðraborgarstíg 7, hér í borg.
Verða þar seldar vélar og áhöld fyrirtækjamia: Herkúl-
es h f Iris, Minervu, Nærfata- og prjónlesverksmiðj
unnar h.f. og Sokkaverksmiðjunnar h.f,
Uppboðið fer fram á staðnum mánudaginn 20. júní
1966, kl. 10,30 árdegis.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Borgarfógetaenibættið í Reykjavík.
Auglýsingasíminn er 14906
— 17. júní 1966 g
ALÞYUBLAÐIÐ