Alþýðublaðið - 19.06.1966, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 19.06.1966, Blaðsíða 4
í t. BttítMrar; Gylfl Grðndal (4b.) og Benedlkt Grðndal. — RltstÍ5rn»rfull- trúl: ElOur GuHnanon. — Slmar: 1 •4900-14803 — Auglýalngaalmi: 14808. *Stt&Ur AlþýOuhúalO vlO Hverflagötu, Reykjavlk. - PrentamlOJa AlþýOu N.íOf.*ta. - Aakrlítargjald kr. 93.00 — 1 lausasölu kr. 6.00 tíntaktO. Otgefandl AlþýOuflokkurUui. KONAN ' ÍSLENZKAR KONUR hafa á undaaifömum ár- um náð. miklum árangri í hinni löngu baráttu fyrir ' jafnrétti við karlmenn á öllum sviðum þjóðlífsins. Á jdegi þessarar baráttu, 19. júní, er ástæða til að minn ;ast þeirra sigra, sem unnizt hafa, og draga fram þau verkefni, sem enn eru óleyst á þessu sviði. Af framförum síðari ára er konum án efa meira ;virði en allt annað að hljóta það félagslega frelsi, eem vaxið hefur með htverju ári. Þetta frelsi kemur fram í því, að sjálfsagt þykir nú að konur hljóti hvaða menntun sem er, sjálfsagt að þær vinni marg- vísleg störf bæði giftar og ógiftar, en í klæðaburði og framkomu hafa margvísleg bönd verið af þeim leyst. Treglega hefur gengið að vinna jafnrétti á þeim sviðum. þar sem atvinnuveitendur þurfa að sýria það í jöfnum Iaunagreiðslum, sem þýðir hærri laun fyrir kvenþjóðina en áður var. Þó hafa einnig unn- izt sigrar á því sviði. Nú síðast tókst Alþýðuflokkn- um að vinna stuðning allra hinna flokkanna við frumvarp um að jafna launamisrétti í áföngum. Hef- úr sú þróun gerzt á síðustu árum og er aðeins eitt ár eftir, unz þeim áfanga er náð, að sömu laun skuli gilda fyrir sömu vinnu. Allt þetta mega heita formlegir sigrar. Þeir eru inikils virði, en erfitt hefur reynzt að gera formið að raunvemleika. Konur henda á það með miklum rétti, að enn sé raunverulega gerður munur á kynjum og konum með ýmis konar brögðum haldið á lægri laun tim eða i launalægstu störfunum. Er hæði starfsheit- lim og öðrum hrögðum heitt til að ná þessu marki. Geia konur því húist við, að þær verði enn að halda uppi sókn sinni, og verður því erfiðara að vinna sigra, sem óvinurinn fer nú í félur, en lögum landsins verð- ur ekki lengur um kennt. Barátta kvenna á komandi árum verður aðallega báð í skólunum. Ungar konur verða að afla sér sér- tnenntunar á ýmsum sviðum svo að ekki verði fram- hjá þeim gengið. Menntun, sérkunnátta og þekking eru einu vopnin, sem duga í vísinda þjóðfélagi nú- tímans. Áð sjálfsögðu eru mörg verkefni varðandi stöðu konunrar óleyst, þótt mikilsverðir sigrar hafi unnizt á síðus u árum Því lengra, sem konur komast áfram á vinnumarkaði, því meiri ástæða verður til að endur skoða stöðu hinna sem kjósa að vinna á heimilunum Ef hlu skipti þeirra fer versnandi í samanburði við s öðu 'slallsystra þeirra, er starfa utan heimilis, getur f, ölskyJdulífinr. og uppeldi barnanna stafað hætta af. Það miðar í rétta átt, en konur eiga samt margt ógert. jfl ALÞVUBLAÐIÐ - 19. júní 1966 VlSIISIDAMAOURgryiM ' i þýðingu Hjartar Halldórssonar menntaskólakennara er FIMMTA bókin í Alfrœðasafni AB. Formála ritar Guðmundur Arnlaugsson, rektor. Bókin Vísindamaðurinn gefur yður innsýn ■ heim visindanna. Þér fylgist með baráttu visindamanna og Sigrum þeirra á heillandi viðfangsefnum. VÍSINDAMAÐURINN lýsir á einfaldan hátt helzfu greinum visindanna, visindastofnunum, öflun fjár til visindastarfsemi - og þeirri undraverðu þróun, sem átt hefur sér stað á vísinda- sviðinu. í bókarlok er yfirlit yfir alia, sem hlotið hafa Nobels- verðlaun í raunvísindum - og afrek þeirra. VÍSINDAMAÐURINN varpar hulunni af heimi víslndamanns- ins og þér kynnist starfi þeirra manna, sem helga líf sitt þvi göfuga hlutverki að skapa mannkyninu betri lífsskilyrði - starfi þeirra manna, sem standa að baki hinum stórkost- legu framförum tœknialdarinnar. ALFRÆ0ASAFN á krossgötum + SÍLDVEIÐIN Síldveiðarnar fyrir norðan og austan eru nú í fullum gangi. Skip koma til lands hvert öðru betur búið til að klófesta í ríkari mæli en aðrir þennan verðmæta smáfisk, sem ekki á svo lítinn þátt í þeirri velmegun, sem nú ríkir hér á landi. Síldarverksmiðjur rísa hver af annarri við hvern fjörð og yík á Austfjörðum og meira að segja er hugsað til slíkra framkvæmda langt inni í landi. En sQdin er duttlungafull og heldur sig ekki alltaf þar sem flestar verksmiðjur eru og bezt aðstaðan tii vinnslu. Hún hreyfir sig eftir oðrum logmálum, en þelr sem stjórna þessum framkvæmdum, Ý TÆKNIBYLTING. , - Á aindanförnum nokkrum árum hefur orð ið stórkostleg tæknibylting í síidveiðum hér á landi, enda hefur afli margfaldazt. Tilkoma fisk- sjáa og kraftblakkarinnar marglofuðu hefur haft mikll áhrif á efnahagslíf þjóðarinnar Aflinn hefur haldið áfram áð aukast ár frá'ári, og við höfum stokkið langt fram úr mörg um keppinautum okkar i þessum efnum. í veiði tækni urðum við brautryðjendur hvað síldina á- hrærir, en ýmislegt bendir til þess að nú séu margir að hraða sér i humátt á eftir okkur. ★ SÍLDARSLAGUR FRAMUNDAN. Brezka sjávarútvegsmálablaðið Fishing News birti fyrir skömmu leiðara um sildveiðarn ar. Hann er vel þess virði að við Islendingar gef um honum gaum, enda málið okkur skylt. Fishing News segir, að nú séu brezkir sjómenn að hugsa til þess að taka kraftblökk og fisksjá í þjónustu sína við síldveiðar. Danir Svíar og Hollendingar séu í sömu hugleiðingum, og svipuðu máli gegni um Vestur -Þjóðverja. Þá ætla Kanadamenn ekki að vera eftirbátar ann- arra í þessum efnum. Þeir hyggjast fimmfalda síldveiðar við Austurströnd lands síns næstu tíu ár. Aflinn var innan við 200 þúsund tonn 1965, en 1975 skal hanp verá kominn upp í milljón tonn. Blaðið bendir á að baráttan um síldina í Norðursjónum og raunar í Norðurhöfum almennt muni fara harðnandi, þegar allar þessar þjóðir tileinka sér nýja veiðitækni, og varla þarf að bú- ast við að Rússar, Pólverjar og Frakkar sitji auð- um höndum meðan þetta á sér stað. áM' Íf SÓKN GEGN SÍLDINNI. Fishing News segir, að þarna verði um mestu sókn að ræða gegn síldarstofninum, esm sögur fara af og jafnvel bjartsýnustu menn fari nú að örvænta um afkomu síldarstofnsins. Ennfremur er bent á að varlai sié við því að búast að nein ein þjóð taki sér fyrir hendur upp á sitt eindæmi að takmarka veiðar sínar til vemdar stofninum, meðan aðrir hugsuðu um það eitt að veiða sem mest og halda öllum sínum síldarbræðslum í gangi helet nótt sem nýtan dag. Blaðið spyr: „Ef Bretar fara hægt og rólega f sakirnar munu þó nörskir og íslenzkir fiskimenn gera hið sama? Svarið er nei.“ + SÍLDVEIÐAR BRETA. Fhising News segir, að fyrir 25 árum hafi Bretar verlð meðal þeirra fimm þjóða í heiminum, sem veiddu mest af sild. Nú séu þeir hinsvegar neðst ir þar á lista. — Við getum ekki komið í veg fyr ir að norskir og íslenzkir bátar veiði við Hjaltland og ef okkar bátar ekki veiða þar verða verksmiðj- ur okkar að skipta við þá sem á þau mið sækja. Lætur blaðið að lokum í ljós von um að brezkur slldariðhaður megi með tilstilli nýrrar tækni aftur komast f háveg. I + VERNDUN ER NAUÐSYN. Undanfarið hefur verið um það rætt hér á landi að nauðsynlegt væri að gera einhverjar ráðstafanir til verndar þorskstofninum. En nú má alveg eins spyrja: Er ekki kominn tími til að gera ráðstafanir til verndar síldarstofninum. Er ekki rétt að byrgja nú einu sinni brunninn áður en bamið dettur ofan í? I þessu máli eigum við íslendingar mikilla hags muna að gæta. Við getum verið vissir um að síldin er ekki óþrjótandi, og væri ekki vel til fundið, að við sem forystuþjóð í þessum efnum tækjum af skarið og legðum til að gerðar yrðu ákveðnar ráðstafanir til að koma í veg fyrlr rán yrkju í síldveiðum. ; — Karl —

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.