Alþýðublaðið - 09.07.1966, Side 3
Thant heimótti ráðherra í stjómarráðinu kl. 10 í gærmorgun, og dvaldi þar í eina klukkustund.
myndinni sést er hann yfirgefur stjórnarráði ð ásamt utanríkisráðherra.
Þórður Einarsson, fulltrúi í menntamálaráðuneytinu, segir aðalrit-
aranum sögu Þingvalla í stórum dráttum. Á myndinni standa þeir
á Lögbergi, en því miður var skyggni mjög slænit og sást lítið af U Thant ásamt fylgdarliðinu sem fór með honum til Þingvalla. Frá vinstri: Donald Thomas, ívar í
náttúrufegurð hins forna þingstaðar. Þórður lauk frásögn sinni í Guðmundsson Páll Ásgeir Tryggvason, U Thant, Agnar Kl. Jónsson, Emil Jónsson og Hannes Kjart ^
þurrum og hlýjum salarkynnum Valhallar. ensson. — Myndirnar tók JV.
FERÐ
HANTS
Reykjavík — OÓ.
U Thant, aðalritari Sameinuðu
þjóðanna fór ásamt fylgdarliði til
Þingvalla í gær. Þaðan var ekið
til Hveragerðis og síðan til Reykja
víkur. Úrhellisrigning var nær
allan tímann sem ferðalagið stóð
yfir og skyggni afleitt. Sá U Thant
lítið af landinu annað en forar
blauta vegina og næsta nágrenni.
Aðalritarinn heimsótti ráðherra
í stjórnarráðinu kl. 10 í gærmorg
uni og kl. 11 var lagt upp til
Þingvalla. Strax og komið var upp
í Mosfellsdal fór að rigna og var
næsta lítið lát á úrkomunni fyrr
en komið var til Reykjavíkur aft
ur kl. rúmlega 4 síðdegis.
í bíl þeim sem U Thant ók í
voru auk hans Emil Jónsson utan
ríkisráðherra, Donald Thomas, að
stoðarmaður aðalritarans og lög
reglumaður. Aðrir í fylgdarlið-
inu voru -Hannes Kjartansson, am
bassador íslands hjá Sameinuðu
þjóðunum, ívar Guðmundsson, for
stjóri Upplýsingaskrifstofu SÞ á
Norðurlöndum, Agnar Kl. Jónsson
ráðuneytisstjóri, Páll Ásgeir
Tryggvason, deildarstjóri og Þórð
ui* Einarsson, fulltrúi.
Stigið var út úr bílunum í A1
mannagjá og gcngið á Lögberg
Þar hóf Þórður Einarsson frásögn
af sögu staðarins, en vegna úrhell
isins var ákveðið að Þórður héldi
áfram frásögn sinni í Vaihöll,
enda var ekki mikið víðsýnna af
Lögbergi en innan veggja hótels
ins.
í Valhöll var snæddur silung
ur úr Þingvallavatni og skyr. Að
loknum hádegisverði var ekið í
rigningunni til Hveragerðis og þar
skoðaði U Thant gróðurhúsið Eden
og borðaði banana sem slitinn var
af plöntunni á staðnum. Lýsti
hann undrun sinni yfir að hægt
væri að rækta hitabeltisávexti eins
norðarlega og raun ber vitni.
Ofan við Hveragerði var skrúf
að frá stóru borholunni og var til
komumikið að sjá og heyra er guf
an spýttist með ofurkrafti úr iðr
um jarðar. Á bakaleið heilsaði
Grýta upp á gestina og gaus fall
egu gosi.
Síðan var haldið til Reykjavíkur
og ringdi vel á Hellisheiði en
vezta veður var þegar komið var
á leiðarenda.
TJ Thant flutti fyrirlestur í hátíðasal Háskólans í gær. Fjallaði hann um starfsemi Sameinuðu
þjóðanna. Hvert sæti í húsinu var skipað meðan á íyrirlestrinum stóð.
ALÞYÐUBLAÐIÐ - 9. júlí 1966 - 3 ,