Alþýðublaðið - 09.07.1966, Síða 6
Glugginn
>
>
\
l»að er ekki ofsögrum sagt
aS því hvað fólk gerir tii að
komast í blöðin. Það er Mike
Hargitay, fyrrverandi mað
nr Jayne Mansfield, sem
þarna er að lúskra á ítölsk
um ljósmyndara. Hann borg-
aði hjnum fyrir að mega slá
hanu niður og keypti svo
ljósmyndara til að taka mynd
ir af öllu saman, sem auð-
vitað komust í blöðin.
£2 Pétur var nýlega fráskilinn
og einn morguninn, þegar hann
vaknaði komst hann að þessari
heimspekilegu niðurstöðu: En
Sivað lífið er mikið ein^aldara
núna, sagði hann við sjálfan sig
nú get ég farið fram úr rúminu
hvoru megin sem ég vil.
Terence Cooper, 32 ára gamall
óþekktur enskur sjónvarpsleikari;
segir að gefnu tilefni: ■— Það
er seigdrepandi að lifa eins og
James Bond. Furðar engan á því
þar sem hversdagslíf virðist ekki j
verasnar þáttur í ferli þess-
fræga manns.
Síðastliðin tvö ár hefur það ver
ið hlutskipti Terence Coopers að
reyna að lifa eins og njósnarinn
og kvennagullið James Bond. Sá,
sem borgar brúsann, heitir Char-
les K. Feldman, kvikmyndafram
leiðandi í Hollywood, og gjaldið
er 1000 pund á viku eða rúmar
120 þúsund krónur. Þótt það megi
teljast dálaglegt vikukaup, þá eru
það ekki nema smápeningar fyrir
jöfrana, sem standa á bak við
þetta uppátæki þá Feldman, John
Huston og Dino de Laurentis.
Terence Cooper, sem líkist mjög
kvikmyndaleikaranum Gregory
Peck, er svar Feldmans við því,
hvernig gera megi James Bond
kvikmynd án Bonds kvikmynd-
anna — leikarans Sean Connery,
Áður en Cooper komst á snæri
Feldmans, hafði hann ofan af fyr
ir sér með því að fara með smá
hlutverk í sjónvarpsleikritum.
Þeir hittust af tilviljun á veit-
ingahúsi, lentu í deilu, sem lauk
með því að Cooper fékk samning
og eftirfarandi kveðjuorð:
— Farðu burt, og komdu ekki
aftur til Englands fyrr en ég
kalla á þig.
Fyrstu níu mánuðina dvaldi
Cooper á Spáni, þar sem hann
kynnti sér nautaat, senjórítur og\
spánskt eognac. Síðan fór hann
til Windward eyju, lítillar enskrar
eyju, þar sem flaskan af Jama-
ican rommi kostar 36 krónur. Það
an flæktist hann til Júgóslavíu,
og helgaði sig þar sömu áhuga
Terence Cooper — 120 þúsund krónur á viku til að lifa eins og
James Bond.
Hinn nýi James Bond
málunum og áður. Eina breyting
in var sú að hann drakk nú sliwo-
witzen fyrir cognac og rom.
Cooper segir: — Hefði ég fyrir
tveim árum verið beðinn að lýsa
því, hvað væri sönn hamingja.
mundi svarið hafa orðið: að geta
ferðást hvert á land sem er —
og fá peninga senda reglulega
í pósti' Núna veit jg að ekkert er
eins dreþleiðinlegt og siðspill-
ándi.
Einstaka sinnum ber það við,
að Cooper er kallaður til I.ondon
í mikilvægum erindagjörðum. En
það eina, sem Feldman vill vita,
er hvort einkaútgáfa hans af Jam
és Bond geti enn staðið á fótun-
um. í hvert skipti segir framleið
ándinn: — Gaman að sjá þig
svona hressan. Taktu næstu flug-
j’vél. Farðu hvert sem þú vilt
. Terence Cooper er sem James
I Bond aðeins peð í stórbrotinni
Peter Sellers er með Peter O’Toole er með David Niven er með Orson.Veeles er með
áætlun. Árið 1954keypti Feldman
kvikmyndaréttinn á fyrstu og
beztu bók Ian Flemmings, „Casino
Royale". Þá hafði ekki nokkur mað
ur áhuga á njósnara, sem einhver
óþekktur Englendingur hafði skap
að. Það breyttist hins vegar þeg-
ar framleiðendurnir Broccoli og
Saltzman keyptu réttinh til að
kvikmynda allar aðrar bækur
Flemmings, með þeim árangri, er
öllum er kunnur.
Helzta vandamál Feldmnns var
því hvernig hann átti að gera
sína kvikmynd. Hann gat ekki not
ast við samskonar manngerð og
þá, sem Sean Connery túlkar. í
nokkur ár velti hann málinu fyrir
sér á ýmsa vegu. Þegar Feldman
tryggði sér Coopeer, hafði hann
ekki minnstu hugmynd um, hvern
ig hann ætti að nota hann. Hann
var viss um að þetta var hans
James Bond og sendi hau.i burt
með 120 þúsund krónur á viku
í biðlaun. Fyrir tveim árum síð-
an gerði hann tilraun til að fram
leiða njósnamynd sína í Róm, en
gafst upp á því og gerði þess i
stað myndina „What is new pussy
cat” í París.
— Og svo varð það nótt eina
segir Feldman, — að ég vaknaðj
á hótelherbergi mínu og vissi allt
Framhald á 10. síðu.
C ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 9. júlí 1966