Alþýðublaðið - 09.07.1966, Blaðsíða 8
Reykjavíkurmeiiitari blaðamanna í golfi, Atli Steinarsson, fylgir kúlunni úr hlaði raeð éinbeitni og'afli. Spenntir fylgjast með f.v. Riley,
Kristmann, Jón ug Hjalti.
Nokkrum galvöskum blaða-
mönnum var sl. miðvikudag boð-
ið til keppni í golfi á vegum
Golfklúbbs Ness, sem hefur að-
setur yzt á Seltjarnarnesinu. —
Veður til keppni var fremur ó-
hagEtætt, eins og fþróttamenn.
segja, enda eitt af þessum út-
lendu skemmtiferðaskipum í
höfn.
Þegar við ókum í hlaðið tók á
móti okkur Pétur Björnsson,
formaður Golfklúbbs Ness, frú
hans og enski atvinnugolfleikar-
inn Riley.
Á meðan við biðum eftir síð-
bornum þátttakendum, skýrði
Pétur okkur frá sögu golfklúbbs-
ins, sem er ungur að árum, —
stofnaður fyrir tveimur árum.
Stofnendur voru flestir félagar
í Golfklúbbi Reykjavíptur, sem
nú hefur flutt alla starfsemi sína
upp í Grafarholt. X^and það, sem
Golfklúbbur Ness* fékk undir
völl sinn var til skamms tíma
notað sem slægjuland, og er ágæt
lega fallið til hins nýja hlutverks
sem því hefur nú verið ætlað.
Golfvöllurinn er með 9 holum,
en völlur af fullri stærð hefur
18 holur. Þetta kemur þó ekki
að sök, þar sem margfalda má
9 með 2 og fá út 18. Félagar
klúbbsins hafa reist sér ljómandi
snoturt hús, nokkurs konar fé-
lagsheimili, á jaðri vallarins, og
ko)m það sér sannarlega vel fyrir
okkur blaðamennina að geta
slappað þar af að keppni lokinni,
enda orðnir velktir og blautir í
fæturna.
Golfíþróttin á vaxandi vinsæld-
um að fagna hérlendis sem er-
lendis, og á það ekki hvað
minnstan þátt í þeim vinsældum,
að íþróttina geta allir stundað,
jafnt konur, karlar og börn. A0-
spurður hvað leggja þyrfti í
mikinn stofnkostnað til að hefja
golfiðkun, svaraði Pétur, að
komast mætti af með 2500 — 3000
krónur til kaupa á tækjum, sem
síðan mætti svo auka og bæta
með tímanum. Tækin geta svo
t. d. hjón notað saman. Vilji
menn gerast félagar í klúbbnum
þá er ársgjaldið 3500 krónur, og
gildir það fyrir hjón óg born
þeirra til 16 ára aldurs. Apnars
vantar ekki mikið á. að Gdlf-
klúbbur Ness sé fullskipáður, en
félagar eru núna um 70.
En snúum okkur aftur á0 vérk-
efni dagsins, „Reykjavíkúrmeist-
aramóti blaðamanna í golfi með
happa- og glappaaðferðinni.” —
Áður en gengið var til keppni vor-
um við klæddir í regngalla og
væddir regnhlífum og kylfum,
sem hétu aðskiljanlegum og ó-
munanlegum nöfnum. Riley
byrjaði á því að kenna okkur,
hvernig halda ætti á kylfunum,
enda munu fyrstu handbrögð
okkar hafa fremur minnt á
erfiðismenn með haka-, en kepp
endur í miklu móti í golfi. Ril-
ey hóf síðan keppnina eins og
vera bar, sló kúluna eitthvað út
í buskann, og er Riley þar með
úr sögunni. Síðan hófst einhver
sú stórkostlegasta og jafnasta
keppni, sem fram hefur farið á
þessum ágæta velli, og var eins
gott að ekki voru þar neinir á-
horfendur til staðar, því að slík-
ur var fítonskraftur keppenda
og útsláttarsemi, að ekkert lif-
andi eða dautt var óhult í 180
gráðu boga út frá keppendum og
með radíusi allt frá 5 metrum
og upp í 155 metra. Þá vildi það
brenna við, að torfusnuddur þyrl-
uðust upp við höggin, en ekkert
voru forráðamenn klúbbsins að
erfa það við okkur, enda allir
mestu sómamenn og sennilega
ýmsu vanir hjá byrjendum.
Nú, við lékum þrjár holur, og
vil ég nota tækifærið til að koma
því að, sem miklu máli skiptir,
að Alþýðublaðið leiddi eftir fyrstu
holu, en í upphafi annarrar lotu
náði fulltrúi Moggans, Atli
Steinarsson, slíku feikna höggi —
á kúluna — að taugar annarra
keppenda biðu tjón af. Þó var
ekki öll von úti, þegar þriðja og
síðasta lota hófst, enda höfðu
gestgjafar séð blautum og köld-
um keppendum fyrir hressingu
áður en úrslitabaráttan byrjaði.
l'egar Atli hafði lokið keppni var
fyrirsjáanlegt, að erfitt yrði að
jafna metin. Til þess varð kepp-
andi Alþýðublaðsins að hitta í
holu í um það bil 10 feta fjar-
lægð. Það tókst — en höggið var
of fast, og kúlan fór hárfint yfir
eins og Sigurður hefði sagt, hefði
hann mætt til leiks. Varð því
annað sætið að duga að þessu
sinni, en stefnt að sigri í næstu
keppni, sem verður að ári.
Þegar úrslit lágu fyrir, og allir
höfðu sætt sig við útkomuna var
gengið til baðstofu. Pétur Björns-
íon afhenti Atla Steinarsyni veg-
lega styttu til marks um sigurinn,
en þetta var í annað skipti, sem
keppni þessi fer fram. Bauð
hann þátttakendum að koma og
æfa sig, þegar þeir vildu, svo
þeir mættu vera betur undirbúnjr
til næstu hildar.
Úrslit urðu sem hér segir; .
högg
1. Atli Stein. Morgunbl. 25 i
2. Kristm. Eiðss., Alþbl. 28 '
3. Jón Th. Har., í>jóðv. 29 í
4. Hjalti Zóph., Tíminn, 30
Sést bezt af úrslitum þessunj,
hve keppnin var jöfn og spenij-
Framhald 10. síðu.
Enski golfleikarinn Riley að ljúka
Björnsson, form. Golfklúbbs Ness.
við fyrstu holuna í fimmta höggk Lengst til hægri stendur Pétur
3 ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 9. júlí 1966