Alþýðublaðið - 22.07.1966, Page 8

Alþýðublaðið - 22.07.1966, Page 8
Hér á KvennasíSunni hafa einu sinni áður verið birtar uppskriftir úr Eldhúsbókinni, sem er skemmti- legt heimilisblað fyrir húsmæður. Nú fara hér á eftir enn nokkrar uppskriftir úr Eldhúsbókinni, að kökum, sem sjaldan eru bakaðar heima, en oftar keyptar í brauð- búð. VÍNARBRAUÐSDEIG. 25 g. pressuger % dl. vatn eða mjólk Vz egg 25 g. sykur 125 g. hveiti 100 g. smjörlíki Pressugerið er hrært út í köldu vatninu. Eggi, sykri og hveiti er bætt út í. Deigið látið standa á köldum stað í ca. 15 mín. Flatt út á hveiti stráðu borði í ferkant ea. 30x30 cm. Smjörlíkið er liaft vel kalt og er skorið í þunnar sneiðar, sem lagðar eru yfir helminginn af deiginu. Hinum helmingnum hvolft yfir. Deigið er flatt út og brotið saman í 3 brot á hvorri hlið og látið á kaldan stað í ca. 15 mín. Þá er það aftur flatt lít og brotið eins saman og látið bíða í 15 min. Úr þessu deigi má búa til alls konar vínarbrauð, smjör- kökur o. fl. Deigið er flatt þunnt eða þykkt út, allt eftir því, hvern- ig vínarbrauð á að baka. Þegar búið er að móta vínarbrauðin eru þau látin hefast á bökunarplötunni í ea. 15 mín. KAMBAR (16 stykki) 1 skammtur vínarbrauðsdeig Fylling: 25 g. smjörlíki 25 g. flórsykur Skreyting: Saxaðar möndlur grófur sykur Deigið erflatt út í aflangt stykki ca. Vz cm. á þykkt og 16 cm. á breidd. Fyllingin er hrærð saman og smurð yfir deigið. Deigið er brotið saman í tvö lög, skorið í ca. 5 cm. breið stykki. Fjórar rifur eru skornar í aðra hliðina á hverju stykki. Kambarnir eru beygðir laus lega. Látnir hefast á bökunarplöt- unni i 15 mín. Þeir eru penslaðir með eggi og söxuðum möndlum og grófum sykri stráð yfir. Bakaðir í 15 mín. við sterkan hita. UMSLÖG (ca. 16 stykki) 1 skammtur vinarbrauðsdeig Fylling: 25 g. smjörlíki 40 g. sykur 25 g. saxaðir hnetukjarnar Sykurbráð 100 g. flórsykur 2msk. vatn g 22. júlí 1966 - ALÞÝÐUBL.4ÐIÐ Deigið er flatt út í V2 cm. þykkan ferhyrning, og skorið í stykki, ca. 8x8 cm. Sykur og smjörlíki er hrært saman og hnetunum bætt út í. Ein skeið af fyllingunni er sett á miðju hverrar köku. Hornin éru brotin upp að miðju. Látið hefa sig á smurðri bökunarplötu í ca. 15 mín. og penslað með eggi. Bak- að við góðan hita 220—230 gráður á C. Skreytt með sykurbráð, þegar umslögin hafa kólnað- MÖNDLUHORN (ca. 16 stykki) 1 skammtur vínarbrauðsdeig Fylling: 50 g. möndlur 50 g. flórsykur V2 eggjahvíta Deiginu er skipt í tvo hluta, og hvor um sig er flattur út í kringl- ótta köku, ca. V2 cm. á þykkt. — Henni er síðan skipt í 8 þríhyrn- inga. Möndlurnar eru saxaðar smátt og flórsykrinum blandað sam an við. Eggjahvítunni hrært sam- an við og hrært þar til fyllingin er mjúk. Á hvern þríhyrning ér sett ein teskeið af möndlufylling- unni. Þríhyrningunum rúllað sam- an frá breiðari hliðinni að oddin- um, þannig að horn myndist. Látið hefast á smurðri bökunarplötu í ca. 15 mín. Hornin eru pensluð með eggi og grófum sykri stráð yfir. VÍNARRÚLLUR (ca. 14 stykki) 1 skammtur vínarbrauðsdeig Fylling: 50 g. smjörlíki 50 g. flórsykur 1 msk. kanill Deigið er flatt út í ferkant, ca. 14x25 cm. Fyllingin er hrærð saman og henni smurt yfir. Deiginu er rúllað saman frá báðum hliðum. Skorið í 1 cm. breiðar sneiðar. Látið hefast á smurðri bökunarplötu í 15 mín. Penslað með eggi og bakað við góðan hita í 15 mín. ' ASTORIAKRANS 1 skammtur vínarbrauðsdeig Fylling: 50 g. saxaðar hnetur 50 g. saxaðar möndlur 50 g. saxað appelsínuhýði 50 g. rúsínur 25 g. sykur V2 dl. romm, sherry, madeira eða samsvarandi bragðefni. Deigið er flatt út í ferkanf ca. 30x75 cm. Fyllingin er hraérð sam- an og lögð á miðjuna í deiginu. Hliðarnar eru brotnar upp af fyll- ingunni. Mótaður krans á smurðri bökunarplötu. Látið hefast í ca. 15 mín. Penslaður með eggi og bakaður í ca. 20 mín. SMJÖRKAKA 1 skammtur vínarbrauðsdeig Fylling: Vanillukrem úr 2 dl. af mjólk (vanillubúðingur úr pakka), 25 g. möndlur 50 g. kúrennur 25 g. smátt skorið súkkat Sykurbráð: 100 g. flórsykur 2 msk. vatn Deiginu er skipt í 2 hluta. Annar hlutinn er flattur út í kringlótta köku. Smurt tertumót er klætt með deiginu. Helmingurinn af vanillu- kreminu er settur í mótið og helm ingnum af möndlum, kúrenum og súkkati stráð yfir. Hinn helming- urinn af deiginu er flattur út í aflangt stykki ca.15x35 cm. Það sem eftir er af kremi er látið ofan á og það sem eftir er af möndlum. kúrennum og súkkati er stráð yfir það. Rúllað saman eins og rúllu- terta. ✓ Á Ítalíu framleiða þeir nú efni og í skæruin litum. Þessi sínugulum lit og eins og sjá má Efnið er einhvers konar si' enn höfum við ckk séð neinar s' veitir ekki af að bæta skapið o skrautlegri regnkápu? Og af því að hér á móti ;á er ekkert að því að birta hér n „Bólbaðskjól’'. l’íílulJ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.